Viðbrögð ríkisstjórnarinnar við kröfum ASÍ

Mánudaginn 17. febrúar 1997, kl. 15:05:56 (3505)

1997-02-17 15:05:56# 121. lþ. 71.1 fundur 191#B viðbrögð ríkisstjórnarinnar við kröfum ASÍ# (óundirbúin fsp.), KÁ
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur

[15:05]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þessi svör. Þetta skýrir stöðuna aðeins gagnvart félmn. Við megum þá væntanlega bíða eftir niðurstöðu frá þessum viðræðum. Ég gef mér að hæstv. félmrh. muni verða með í þessum hópi og þá skýrast þessi mál væntanlega á morgun. En gert er ráð fyrir að þessi stóru og mjög svo umdeildu frv. verði komin til umræðu í vikunni. Þannig að því fyrr sem þetta skýrist því betra.