Forseti (Guðni Ágústsson):
Útbýtt er á fundinum þskj. 730, Áhrif breytinga á ríkisviðskiptabönkunum, fsp., flm. Jóhanna Sigurðardóttir og Guðmundur Árni Stefánsson.
Forseti vill taka fram að fyrirspurn þessari er útbýtt samkvæmt 2. mgr. 49. gr. þingskapa að ósk fyrirspyrjanda, en forseti synjaði fsp. Atkvæðagreiðsla um fsp. fer fram á næsta fundi, á morgun.