Stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands

Þriðjudaginn 11. mars 1997, kl. 15:35:42 (4273)

1997-03-11 15:35:42# 121. lþ. 87.5 fundur 409. mál: #A stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands# frv., JBH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 87. fundur

[15:35]

Jón Baldvin Hannibalsson (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. tók sér í munn orðaleppana um að hann vísaði á bug söguskýringum. Það er rétt að bæta við þessa sögulegu upprifjun þeirri staðreynd að hæstv. fyrrv. viðskrh. skipaði einn af þingmönnum Sjálfstfl., hv. þm. Matthías Bjarnason, í forustu fyrir nefnd til þess að reyna að leita sátta innan þingflokks Sjálfstfl. um þá litlu breytingu að gera þetta ríkisapparat að hlutafélögum, ekki með einkavæðingu, vegna þess að það var svo öflug andstaða áhrifamikilla þingmanna í Sjálfstfl. gegn því að stíga það hænufet. Svo er hv. þm. að spyrja aðra hvort þeir séu fylgjandi því að breyta yfir í hlutafélagaform eða stuðla að einkavæðingu.

Það þarf ekkert að spyrja slíkra spurninga að því er mig varðar. En ég mun ekki kaupa þessar breytingar hvaða verði sem er. Það var meginefni minnar ræðu að ég vil að tryggt verði að við förum ekki úr öskunni í eldinn. Ég vil að þessi breyting þjóni þeim tilgangi að auka samkeppni en draga ekki úr henni. Ég tel að þetta tryggi heilbrigðara fjárhagslegt bankakerfi en ekki fákeppni eða einkavinavæðingu.