Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.

Fimmtudaginn 13. mars 1997, kl. 18:27:41 (4443)

1997-03-13 18:27:41# 121. lþ. 90.3 fundur 408. mál: #A Fjárfestingarbanki atvinnulífsins# frv., 407. mál: #A Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins# frv., GMS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur

[18:27]

Gunnlaugur M. Sigmundsson (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Ágúst Einarsson spyr hvort sá sem hér stendur sé einn stjórnarliða með þessa afstöðu. Ekki get ég dæmt um það. Ég hef ekki lagt mig eftir því að leita eftir því hver sé afstaða annarra stjórnarþingmanna til þessa máls. Ég stend klár á minni afstöðu í málinu en veit ekki hvort það eru fleiri sem eru mér sammála eða hvort allir aðrir stjórnarliðar vilja auka enn á ríkisbáknið.