Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf.

Fimmtudaginn 13. mars 1997, kl. 20:48:28 (4458)

1997-03-13 20:48:28# 121. lþ. 90.3 fundur 408. mál: #A Fjárfestingarbanki atvinnulífsins# frv., 407. mál: #A Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins# frv., ÁE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur

[20:48]

Ágúst Einarsson (andsvar):

Herra forseti. Nú er skammt stórra höggva milli. Fyrst ræða Gunnlaugs Sigmundssonar hér fyrr í kvöld, aðalsérfræðings Framsfl. í þessum málaflokki, sem lagðist þvert gegn þessu frumvarpi. Nú kemur annar stjórnarþingmaður, líka sérmenntaður á þessu sviði, einn helsti sérfræðingur Sjálfstfl. og leggst mjög gegn þeim frv. sem hér eru til umræðu. Ég mun á eftir ræða betur við herra forseta, um framhald þessarar umræðu. Hv. þm. rakti þetta vel og fór vel yfir málið og röksemdir hans voru sannfærandi. Að hluta til höfðu þær komið fram hjá okkur stjórnarandstæðingum varðandi þetta mál, en hér liggur fyrir andstaða eins sjálfstæðisþingmanns í viðbót því hæstv. viðskrh. gerði lítið úr andstöðu hv. þm. Gunnlaugs Sigmundssonar. Það væri nú bara einn þingmaður þar, en nú virðast fleiri varadekk springa. En ég vil spyrja hv. þm. hvort hann geti upplýst okkur stjórnarandstæðinga um hvernig háttar til um stuðning við frv. í þingflokki Sjálfstfl. Ég sé að hv. þm. Geir H. Haarde, formaður þingflokksins, er kominn hér í salinn og verður spurður um þetta hér á eftir. Því það er satt að segja mjög óvanalegt að við ræðum hér mjög stórt og mikilvægt stjórnarfrv. og þeir einu stjórnarþingmenn sem hafa talað í málinu fyrir utan hæstv. ráðherra hafa gert meira en að leggjast gegn frv., þeir hafa fundið því allt til foráttu og rakkað það niður og það með sterkum rökum og þar að auki eru þeir þungavigtarmenn í stjórnarliðinu. Mér þætti vænt um að hv. þm. gæti upplýst mig betur um stöðu málsins, ef hann hefur tök á því, í sínum eigin þingflokki.