Afbrigði

Föstudaginn 21. mars 1997, kl. 13:45:13 (4843)

1997-03-21 13:45:13# 121. lþ. 96.91 fundur 263#B afbrigði# (afbrigði við dagskrá), Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 96. fundur

[13:45]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Í 2. mgr. 36. gr. þingskapa segir að lagafrv. sem útbýtt er sex mánuðum eftir þingsetningu verði því aðeins tekin á dagskrá að meiri hluti þingmanna samþykki það. Hliðstætt ákvæði er í 6. mgr. 44. gr. að því er varðar þál. Frestur samkvæmt þessum ákvæðum þingskapa rennur út 1. apríl nk. Þannig stendur á að frestinum lýkur meðan á páskahléi þingsins stendur og því leggur forseti til að veitt verði afbrigði frá þingsköpum og frestur þessi lengdur til föstudagsins 4. apríl.