[prenta uppsett í dálka] 96. fundur
Forseti (Guðni Ágústsson):
Forseti vill taka fram að þessi ákvæði þingskapa hafa verið framkvæmd þannig, síðan þau voru sett 1985, að miðað er við að málin komi til bókunar fullfrágengin til skjalavarðar fyrir lok vinnudags föstudaginn 4. apríl. Takist ekki að prenta eða fjölfalda skjöl fyrir lok þingfundar þann dag verður haldinn útbýtingarfundur mánudaginn 7. apríl.