Umferðarlög

Föstudaginn 09. maí 1997, kl. 17:40:17 (6067)

1997-05-09 17:40:17# 121. lþ. 120.15 fundur 61. mál: #A umferðarlög# (hlífðarhjálmar fyrir hjólreiðar) frv., ÖS (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur

[17:40]

Össur Skarphéðinsson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Það er sennilega til að bíta höfuðið af skömminni sem mér skilst að nú sé hv. þm. Sólveig Pétursdóttir, formaður allshn., líka á leið héðan í burtu. Hér erum við að ræða mál sem falla undir allshn. og það getur vel verið að hér sé einn hæstv. ráðherra staddur, en það er nánast enginn sjálfstæðismaður staddur hér og hv. þm. Sólveig Pétursdóttir, sem er formaður nefndarinnar, er líka á leiðinni í burtu. Og maður spyr sig: Hvað á þessum flokki að líðast mikið gagnvart þinginu?

Það hefur komið fram í fyrri ræðum mínum um stjórn fundarins að ég hef ekki mjög hátt álit á kurteisi hæstv. dómsmrh. gagnvart þinginu. En miðað við það að hann er þó sá sjálfstæðismaður sem er hæst settastur sem hér er staddur, þá finnst mér að hann ætti alla vega að sýna okkur, sem þó erum hérna til að ræða hans mál, þá kurteisi að upplýsa hvort það sé rétt sem fram hefur komið að Sjálfstfl. hafi stefnt mönnum sínum norður í land og þar af leiðandi geti þeir ekki verið hér við umræðuna.