Staða þjóðkirkjunnar

Mánudaginn 12. maí 1997, kl. 16:56:48 (6144)

1997-05-12 16:56:48# 121. lþ. 122.1 fundur 301. mál: #A staða þjóðkirkjunnar# frv., KÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 122. fundur

[16:56]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Með þessari brtt. er verið að taka upp hina svokölluðu fimm ára reglu sem sett var í lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna á síðasta þingi. Ég hef ekki sannfæringu fyrir því að hér sé verið að fara leið sem hentar kirkjunni þó ég sé ekki þar með að segja að sú uppástunga sem var í 39. gr. sé endilega rétt. Um þetta eru mjög deildar meiningar innan kirkjunnar. Ég held að það þurfi að skoða ráðningarmál presta og stöðu þeirra miklu betur og því treysti ég mér ekki til þess að styðja þessa brtt.