[prenta uppsett í dálka] 3. fundur
Kristín Ástgeirsdóttir:
Hæstv. forseti. Í sumar var gert samkomulag við heilsugæslulækna um uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og breytingar á verkaskiptingu, m.a. með svokölluðu valfrjálsu stýrikerfi. Sérfræðingar í öðrum greinum en heimilislækningum hafa lýst andstöðu við fyrirhugaðar breytingar. Læknafélagið hefur m.a. samþykkt ályktun sem þetta varðar og því er ljóst að ekki er komin niðurstaða í langvinnar deilur innan heilsugæslunnar. Því spyr ég hæstv. heilbrrh.: Hvað líður útfærslu á samkomulaginu við heilsugæslulækna frá því í sumar? Hvernig hafa sérfræðingar komið að því máli, eða með öðrum orðum hvar er málið statt?