Ferill 5. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 5 . mál.


5. Beiðni um skýrslu



frá félagsmálaráðherra um afleiðingar langs vinnutíma hér á landi.

Frá Margréti Frímannsdóttur, Bryndísi Hlöðversdóttur, Hjörleifi Guttormssyni,


Kristni H. Gunnarssyni, Ragnari Arnalds, Sigríði Jóhannesdóttur,


Steingrími J. Sigfússyni, Svavari Gestssyni og Ögmundi Jónassyni.



    Með vísan til 46. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að félagsmálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um þau áhrif sem langur vinnutími hér á landi hefur á þjóðarbúið og hag íslenskra fjölskyldna. Í skýrslunni komi fram hver áhrif vinnutíma eru m.a. á:
    kjör launafólks,
    framleiðni fyrirtækja og afkomu þeirra,
    slysa- og veikindatíðni og
    fjölskyldulíf.
    Þess er óskað að skýrslan verði tekin til umræðu þegar henni hefur verið dreift meðal þingmanna.

Greinargerð.


    Á síðasta þingi óskaði þingflokkur Alþýðubandalagsins og óháðra eftir skýrslu um muninn á launum og lífskjörum á Íslandi og í Danmörku.
    Í þeirri skýrslu kemur glögglega fram að íslenskt launafólk þarf að vinna mun lengri vinnutíma en launafólk í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við. Oft er litið á langan vinnutíma sem afleiðingar þess hve lágir launataxtar eru algengir hér á landi, launafólk verði að bæta sér upp lág laun með óhóflega löngum vinnudegi. Ekki er úr vegi að athuga hvort það sé ekki vegna þessa langa vinnutíma sem launataxtar eru svona lágir. Líklegt er að áhrif langs vinnutíma komi m.a. fram í minni framleiðni, lélegri skipulagningu vinnu og þar af leiðandi verri afkomu fyrirtækja.
    Langur vinnutími er einnig líklegur til að auka fjarveru vegna veikinda og e.t.v. slysatíðni. Fróðlegt væri t.d. að kanna á hvaða tímum er algengast að vinnuslys eigi sér stað og hvort tengsl séu á milli vinnutíma og slysatíðni. Ekki þarf að fjölyrða um þann aukna kostnað sem veikindi og slys leiða af sér fyrir samfélagið á ýmsum sviðum og sem e.t.v. má rekja til þessa langa vinnutíma.
    Langur vinnutími og mikið álag fækkar samverustundum fjölskyldunnar, hefur áhrif á uppeldi og öll samskipti innan og utan heimilis og getur þar með orsakað los innan fjölskyldunnar og hugsanlega leitt til margvíslegra félagslegra vandamála.
    Nauðsynlegt er að vandað verði til þessarar skýrslu þannig að hægt verði að hafa hliðsjón af niðurstöðum hennar í mótun heildarstefnu um styttingu vinnutímans án lækkunar launa.


Prentað upp.