Ferill 6. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 6 . mál.
6. Frumvarp til laga
um að fella niður þjónustugjöld í heilsugæslu.
Flm.: Ögmundur Jónasson, Bryndís Hlöðversdóttir, Hjörleifur Guttormsson,
Kristinn H. Gunnarsson, Margrét Frímannsdóttir, Ragnar Arnalds,
Sigríður Jóhannesdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Svavar Gestsson.
Breyting á lögum um almannatryggingar,
nr. 117/1993, með síðari breytingum.
1. gr.
Í stað fyrri málsliðar 66. gr. laganna koma tveir málsliðir, svohljóðandi:
Ráðherra er heimilt að kveða á um nánari framkvæmd laga þessara í reglugerð. Í reglugerðinni er þó ekki heimilt að leggja gjöld á þá einstaklinga sem leita þjónustu heilsugæslunnar.
Breyting á lögum um heilbrigðisþjónustu,
nr. 97/1990, með síðari breytingum.
2. gr.
2. mgr. 20. gr. laganna orðast svo:
Ekki eru tekin gjöld fyrir þjónustu heilsugæslunnar við einstaklinga. Um þjónustu sem aðrir greiða fer eftir sérstakri gjaldskrá sem ráðherra setur.
Gildistaka.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Frá og með fjárlögum fyrir árið 1992 hafa álögur á sjúklinga verið auknar jafnt og þétt. Af þeim sökum hefur kjararýrnun orðið mest hjá því fólki sem á við sjúkdóma að stríða. Þessar álögur hafa birst í ýmsum myndum, dregið hefur verið úr stuðningi við einstaklinga í gegnum almannatryggingar, t.d. með aukinni greiðsluþátttöku í tannlæknakostnaði fyrir börn og ellilífeyrisþega, og gildir það sama almennt um kostnaðarhlutdeild sjúklinga á heilbrigðisstofnunum. Staða þeirra sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda hefur þannig stórversnað. Þau gjöld sem hér um ræðir, þ.e. komugjöld á heilsugæslustöðvar, eru aðeins hluti af stærri mynd og þau ber að skoða í ljósi óheillaþróunar síðustu ára. Vegna þess hve mikilvæg heilsugæslan er sem grunnur heilbrigðisþjónustunnar er mikilvægt að einmitt þar verði hafist handa við að snúa til réttrar áttar á ný.
Þess skal getið að ýmsar reglur hafa gilt um hámarksgreiðslur fyrir læknisþjónustu og heilsugæslu. Í upphafi áratugarins var þannig 8 þús. kr. hámark fyrir aðra en elli- og örorkulífeyrisþega. Þessari upphæð var breytt og einnig var innleidd sú regla að eftir að viðmiðunarupphæð var náð var aðeins veittur afsláttur þar sem áður hafði verið þak á greiðslur. Viðmiðunarupphæðin nú er 12 þús. kr. fyrir einstakling, 6 þús. kr. fyrir öll börn undir 16 ára aldri í sömu fjölskyldu og 3 þús. kr. fyrir lífeyrisþega.
2. mgr. 20. gr. laga um heilbrigðisþjónustu hljóðar nú svo:
„Ráðherra setur gjaldskrá fyrir veitta þjónustu heilsugæslustöðva og skal hún vera í samræmi við hliðstæðar gjaldskrár samkvæmt lögum um almannatryggingar.“
Þessi grein eða ígildi hennar hefur verið í lögunum um heilbrigðisþjónustu frá upphafi. Nú er lagt til að hún verði felld niður og að heilsugæsla verði ókeypis framvegis. Ástæðurnar eru þessar:
Í frumvarpinu er einnig lagt til að heimildin til að leggja á gjöld í heilsugæslu verði afnumin úr almannatryggingalögum. Þar hljóðar ákvæðið nú á þessa leið:
„Ráðherra er heimilt í reglugerð að kveða á um nánari framkvæmd laga þessara. Þá er ráðherra heimilt að birta sem reglugerðir reglur Evrópubandalagsins um almannatryggingar, enda eigi ákvæði þeirra stoð í lögum þessum.“
Hér á eftir fer yfirlit yfir komugjöld í heilsugæslunni frá og með fjárlögum fyrir árið 1992:
Greiðslur fyrir komu á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis.
Lífeyrisþegar og börn
Almennt gjald
yngri en 16 ára
Án afsláttarkorts
Með afsláttarkorti
Án afsláttarkorts
Með afsláttarkorti
Koma á heilsugæslustöð eða til
heimilislæknis á dagvinnutíma.
Koma á heilsugæslustöð eða til
heimilislækna utan dagvinnutíma.
Vitjun heilsugæslu- eða heimilis-
læknis á dagvinnutíma.
Vitjun heilsugæslu- eða heimilis-
læknis utan dagvinnutíma.
Krabbameinsleit hjá heimilislækni
eða á heilsugæslustöð.
Koma til röntgengreiningar eða
rannsókna.