Ferill 25. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 25 . mál.


25. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 63/1993, um mat á umhverfisáhrifum, með síðari breytingum.

Flm.: Tómas Ingi Olrich.



1. gr.


    1. gr. laganna orðast svo:
    Markmið laga þessara er að koma í veg fyrir umhverfisspjöll. Í þeim tilgangi skal tryggt að fram fari mat á umhverfisáhrifum áður en tekin er ákvörðun um framkvæmdir sem kunna vegna staðsetningar, starfsemi sem þeim fylgir, eðlis eða umfangs að hafa í för með sér umtalsverða röskun og spjöll á umhverfi, náttúruauðlindum eða samfélagi. Það er enn fremur markmið laga þessara að tryggja að slíkt mat verði fastur liður í gerð skipulagsáætlana.

2. gr.


    1. mgr. 4. gr. laganna orðast svo:
     Lög þessi gilda um allar framkvæmdir sem kunna að hafa í för með sér umtalsverða röskun og spjöll á umhverfi, náttúruauðlindum eða samfélagi.

3. gr.


    6. gr. laganna orðast svo:
     Umhverfisráðherra er heimilt, að fengnu áliti skipulagsstjóra, að ákveða að tiltekin framkvæmd eða framkvæmdir, sem kunna að hafa í för með sér umtalsverða röskun og spjöll á umhverfi, náttúruauðlindum eða samfélagi en ekki er getið í 5. gr., verði háðar mati samkvæmt lögum þessum.
     Áður en ákvörðun skv. 1. mgr. er tekin skal ráðherra leita umsagnar framkvæmdaraðila, leyfisveitanda og hlutaðeigandi sveitarstjórna.
    Ákvörðun ráðherra skal fylgja rökstuðningur þar sem fram koma forsendur þess að þörf sé á mati á umhverfisáhrifum.

4. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp þetta var lagt fram á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga. Er það nú endurflutt óbreytt.
    Markmið laga nr. 63/1993, um mat á umhverfisáhrifum, er að koma í veg fyrir spjöll á náttúrunni sem oft eru afleiðing framkvæmda. Í markmiðsgrein laganna kemur þetta ekki skýrt fram. Vikið var að þessu grundvallaratriði í athugasemdum með frumvarpi til laga um umhverfismat. Mat á umhverfisáhrifum er ekki markmið laganna í sjálfu sér, heldur er matið það verkfæri sem löggjafinn hefur fengið framkvæmdarvaldinu til að koma í veg fyrir umhverfisspjöll.
    Tilgangur laganna er ekki að koma í veg fyrir breytingar. Þannig er það ekki í samræmi við tilgang laga um mat á umhverfisáhrifum að fella undir þau ýmsar framkvæmdir sem miða að því að endurheimta landgæði, efla gróðurlendi og hefta jarðvegseyðingu. Í sérstökum lögum er fjallað um hlutverk Landgræðslu ríkisins (lög nr. 17/1965) og Skógræktar ríkisins (lög nr. 3/1955) en þessum stofnunum er beinlínis ætlað það hlutverk að verja og efla gróðurlendi. Hefur löggjafinn ætlað þessum stofnunum það jákvæða þjóðþrifaverk að hafa forustu um endurheimt landgæða og eflingu þeirra.
    Grundvallarmunur er á því að meta spjöll sem verða í náttúrunni við virkjanaframkvæmdir, vegagerð eða við uppsetningu förgunarstöðva fyrir eitraðan úrgang annars vegar og hins vegar að leggja mat á breytingar sem verða á landi við uppgræðslu. Með ræktun örfoka lands og friðun er verið að koma af stað gróðurframvindu sem með skynsamlegri landnýtingu leiðir til eðlilegs ástands gróðurs miðað við aðstæður hverju sinni. Þær aðgerðir eiga því ekkert sameiginlegt með því sem lögum um mat á umhverfisáhrifum er fyrst og fremst ætlað að fjalla um, þ.e. röskun og spjöll á umhverfi af völdum framkvæmda.
    Í 5. gr. laga nr. 63/1993, um mat á umhverfisáhrifum, eru tilgreindar þær framkvæmdir sem ætíð skulu háðar mati á umhverfisáhrifum. Þegar frumvarp til laga um umhverfismat var til umfjöllunar í umhverfisnefnd Alþingis bárust ábendingar frá nokkrum aðilum um að eðlilegt væri að framkvæmdir við framræslu votlendis, landgræðslu og skógrækt yrðu felldar undir 5. gr. laganna og þannig ætíð háðar mati á umhverfisáhrifum. Umhverfisnefnd Alþingis féllst ekki á þetta sjónarmið. Í nefndaráliti kom fram að nefndin væri sammála um að nauðsynlegt væri að skipulega væri unnið að verkefnum á þessu sviði með tilliti til fjölþættra landnota og umhverfisverndar. Þannig gæti verið ástæða til að fram færi mat á umhverfisáhrifum eða hliðstæður undirbúningur áður en ráðist yrði í meiri háttar verkefni af þessum toga, enda er heimild til þess í 6. gr. laganna. Það er álit flutningsmanns frumvarps þessa að ekki sé rétt að beita heimildarákvæðinu nema líklegt sé að framkvæmdir valdi umhverfisspjöllum og er það í samræmi við markmið laganna.
    Við framkvæmd laga um umhverfismat hefur komið í ljós að framkvæmdarvaldið hefur talið ástæðu til þess að beita heimildarákvæði laganna vegna landgræðsluverkefna. Hefur því til stuðnings verið vitnað sérstaklega í nefndarálit umhverfisnefndar, en litið hefur verið fram hjá þeirri staðreynd að nefndin hafnaði því að fella skógrækt og landgræðslu undir framkvæmdir sem eru háðar mati á umhverfisáhrifum. Verður að gera ráð fyrir að þessi beiting heimildarákvæðisins hafi fordæmisgildi um framkvæmd laganna. Flutningsmaður telur því nauðsynlegt að taka af tvímæli að því er varðar markmið laganna og þrengja heimildarákvæði 6. gr. Gengur flutningsmaður út frá því að með þessari breytingu verði landgræðsla og skógrækt ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Áætlanagerð á vegum Landgræðslu ríkisins og Skógræktar ríkisins hefur tekið miklum framförum á síðustu árum. Gera verður ráð fyrir að í áætlanagerð framangreindra stofnana felist það mat að þau verkefni, sem ráðist er í hverju sinni, séu nauðsynleg framfaramál og jákvæðir áfangar á sviði umhverfismála.
    Þá felur frumvarp þetta í sér nákvæmari markmiðslýsingu en nú er í 1. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum. Eru með því tekin af öll tvímæli um að lögunum sé ætlað að tryggja að með mati á umhverfisáhrifum sé komið í veg fyrir umhverfisspjöll. Til samræmis eru gerðar breytingar á 4. og 6. gr. laganna þannig að í stað þess að miðað sé við umtalsverð áhrif á umhverfi er lagt til að miðað verði við umtalsverða röskun og spjöll.
    Enn fremur eru gerðar breytingar á 1., 4. og 6. gr. laganna í þá veru að kveðið er á um að meta skuli hugsanlegan skaða á umhverfi, náttúruauðlindum eða samfélagi, þ.e. að það nægi að framkvæmdir hafi neikvæð áhrif á einhvern einn þessara þátta en ekki á alla þrjá þættina eins og orðalag gildandi laga gefur tilefni til að álykta.
    Loks er lagt til að bætt verði við 6. gr. laganna nýrri málsgrein þar sem kveðið er á um að ráðherra skuli rökstyðja ákvörðun sína um að framkvæmdir skuli háðar mati á umhverfisáhrifum þannig að forsendur fyrir því að þörf sé talin á matinu komi skýrt fram. Talin er full þörf á að kveða sérstaklega á um þetta atriði þar sem um verulega íþyngjandi ákvarðanir er að ræða, en ákvæði 21. og 22. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, um rökstuðning eru hér til fyllingar eftir því sem við getur átt.