Ferill 46. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 46 . mál.


46. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna.

Frá Svanfríði Jónasdóttur.



    Hvernig hefur forstöðumönnum opinberra stofnana verið kynnt þingsályktun um „framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna“ frá 7. maí 1993?
    Hefur forstöðumönnum verið bent sérstaklega á ákvæði framkvæmdaáætlunarinnar um starfsmannamál ríkisins við kynningu á nýjum lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna?





























Prentað upp.