Ferill 59. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 59 . mál.


59. Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um afleiðingar afnáms línutvöföldunar.

Frá Kristjáni Pálssyni.



    Hvaða áhrif, jákvæð og neikvæð, telur ráðherra afnám línutvöföldunarinnar hafa?
    Telur ráðherra ástæðu til að setja vinnuhóp á laggirnar til að meta breytingar sem verða m.a. á þróun byggðar, atvinnu, sjósóknar og ferskfisksútflutnings vegna afnáms línutvöföldunarinnar?
    Mun ráðherra endurskoða afnám línutvöföldunarinnar eftir reynslu yfirstandandi fiskveiðiárs ef breytingin er talin hafa skaðað þjóðina að mati óvilhallra aðila?