Ferill 118. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 118 . mál.
129. Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 50/1984, um lífeyrissjóð bænda, með síðari breytingum.
(Lagt fyrir Alþingi á 121. löggjafarþingi 1996.)
1. gr.
2. gr.
Lífeyrir skv. I. kafla skal hvert ár miðast við viðmiðunarlaun undanfarandi fimm almanaksára.
3. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Samkvæmt gildandi lögum um lífeyrissjóð bænda hafa ríkissjóður, Stofnlánadeild landbúnaðarins og lífeyrissjóður bænda borið útgjöld vegna lífeyrisgreiðslna skv. 17. og 18. gr. laganna sbr. 24. gr. þeirra. En í þessum ákvæðum er kveðið á um lífeyri til bænda sem fæddir eru árið 1914 eða fyrr. Samkvæmt gildandi lögum eiga útgjöld vegna þessara lífeyrisgreiðslna að verða borin af lífeyrissjóði bænda frá og með 1. janúar 1997. Fyrir liggur að lífeyrissjóður bænda hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til að taka á sig þau útgjöld sem ríkissjóður og Stofnlánadeild landbúnaðarins hafa borið hingað til. Í ljósi þess og með hliðsjón af þeim breytingum sem lagðar hafa verið til í frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum á árinu 1997, að því er varðar lög um eftirlaun aldraðra, er lagt til að gildandi fyrirkomulagi um kostnaðarhlutdeild ríkissjóðs og Stofnlánadeildar landbúnaðarins vegna lífeyrisgreiðslna til bænda sem fæddir eru árið 1914 eða fyrr verði haldið óbreyttu. Þetta fyrirkomulag hefur verið framlengt til fimm ára í senn en nú er lagt til að fyrirkomulagið verði lögfest með þessum hætti til frambúðar.
Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið er í 1. gr. frumvarpsins lagt til að tilvísun til ársloka 1996 verði felld brott. Um forsendur vísast til almennra athugasemda.
Í 2. gr. frumvarpsins er lagt til að ákvæði um grunnlífeyri og uppbót á lífeyri verði gerð ótímabundin með sama hætti.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breyting á lögum
nr. 50/1984, um lífeyrissjóð bænda.
Samkvæmt frumvarpi þessu verður framlag ríkissjóðs til lífeyrissjóðs bænda vegna einstaklinga sem fæddir voru 1914 og fyrr ekki fellt niður 1. janúar 1997, eins og kveðið er á um í núgildandi lögum, heldur verður það lögfest til frambúðar. Er það í samræmi við sambærilega breytingu sem fyrirhugað er að gera á lögum nr. 113/1994, um eftirlaun til aldraðra, með frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum á árinu 1997. Á þessu ári verður framlagið um 140 m.kr. en reikna má með að það lækki talsvert frá einu ári til annars. Ef miðað er við að greiðslurnar lækki árlega með vaxandi hraða hlutfallslega uns þær verði orðnar engar eftir 15 ár mundi heildarfjárhæðin sem fallið hefði niður að óbreyttum lögum alls hafa numið allt að 1 milljarði kr.