Ferill 136. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. –
136
. mál.
151. Fyrirspurn
til samgönguráðherra um samkeppnisstarfsemi á vegum Póst- og símamálastofnunar.
Frá Viktori B. Kjartanssyni.
Hvernig var staðið að ákvörðun um það þegar Póst- og símamálastofnun hóf að selja almenningi aðgang að innhringiþjónustu fyrir internet á liðnu sumri?
Er það í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar að Póst- og símamálastofnun hefur að undanförnu aukið umsvif sín í samkeppnisrekstri á ýmsum sviðum?
Mun ráðherra, sem handhafi hlutabréfa ríkisins í Pósti og síma hf., beita sér fyrir eða styðja frekari útþenslu fyrirtækisins í samkeppnisrekstri þegar hlutafélagið hefur tekið til starfa 1. janúar næstkomandi?
Telur ráðherra að ríkið eða ríkisfyrirtæki ættu að beita sér fyrir samkeppnisrekstri á fleiri sviðum?
Er uppsetningu hnitpunkta á landsbyggðinni vegna innhringiþjónustu fyrir internet lokið?