Ferill 197. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 197 . mál.


223. Frumvarp til laga



um breyting á vegalögum, nr. 45/1994.

Flm.: Svavar Gestsson, Sigríður Jóhannesdóttir,


Hjörleifur Guttormsson.



1. gr.


    Á eftir orðinu „skógræktarsvæða“ í niðurlagi 1. mgr. 16. gr. laganna kemur: vegi sem sérstaklega eru afmarkaðir fyrir umferð reiðhjóla.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarpið var lagt fram á 118. og 120. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu. Þá fylgdi því þessi stutta greinargerð:
    Notkun reiðhjóla hefur aukist hér á landi á undanförnum árum. Hafa bæjarfélög brugðist við því með því að leggja sérstakar brautir fyrir umferð reiðhjóla. Þannig hefur orðið til nær samfellt net reiðhjólastíga á þéttbýlissvæðinu á suðvesturhorni landsins.
    Þessi mál hafa ekki verið flutt inn á vettvang Alþingis áður. Hér er lögð fram tillaga um að vegir, afmarkaðir fyrir reiðhjól, verði teknir inn í vegalög sem væri fyrsta skrefið. Í framhaldi af því þyrfti svo að verða til samfellt net reiðhjólastíga á stærri svæðum. Vonandi verður tillagan til að vekja umræður sem síðan leiða til ákvarðana á Alþingi í þessum efnum.