Ferill 201. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 201 . mál.
227. Tillaga til þingsályktunar
um lagasetningu um umönnun aldraðra.
Flm.: Gunnlaugur M. Sigmundsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta undirbúa lagasetningu um umönnun aldraðra og þær kröfur og ábyrgð sem gerðar eru til þeirra er slíka þjónustu veita. Löggjöfin taki bæði til umönnunar sem fram fer um lengri eða skemmri tíma á sérhæfðum stofnunum og þjónustu sem öldruðum er veitt í heimahúsum af óskyldum aðilum, hvort heldur er opinberum aðilum eða einkaaðilum. Frumvarp þessa efnis verði lagt fyrir Alþingi eigi síðar en á haustþingi 1997.
Greinargerð.
Íslenskt þjóðfélag hefur á fáum áratugum breyst á mörgum sviðum samfara breyttri búsetu og atvinnuháttum meginþorra þjóðarinnar. Ein afleiðing breytinganna er að aðhlynning og hjúkrun aldraðra hefur í auknum mæli færst frá ættingjum til opinberra aðila, ýmist sem vistun á öldrunarstofnunum eða sem aðstoð sem veitt er í heimahúsum.
Kannanir á viðhorfum aldraðra sýna ótvírætt að það er ósk flestra að geta dvalist sem lengst á eigin heimili þegar aldurinn færist yfir og oft á tíðum þarf gamalt fólk tiltölulega litla hjálp til að geta búið í eigin íbúðum í stað þess að flytjast á öldrunarstofnun. Slík lausn er af flestum talin félagslega æskileg, jafnframt því að vera ódýrari fyrir samfélagið.
Eftir því sem þeim fjölgar sem komast á eftirlaunaaldur vex þörfin fyrir sérhæfðari öldrunarþjónustu og allar líkur eru á að sama þróun verði hér og í öðrum löndum, að upp vaxi ný atvinnugrein sem leitast við að sinna þeim óskum aldraðra sem ekki er komið til móts við af hálfu hins opinbera. Löggjafanum ber að setja lagaramma um slíka starfsemi þar sem tekið verður á þeim skilyrðum sem einkaaðilum og opinberum aðilum sem starfa að þessum málum ber að uppfylla. Með heildarlöggjöf um umönnun aldraðra væri lagður grunnur að því að þeir sem kaupa öldrunarþjónustu fái þá þjónustu sem þeir vænta, og enn fremur komið í veg fyrir að slík mál fari í sama farveg og víða erlendis þar sem óvandað fólk gerir leit aldraðra að öryggi og sjálfstæðu lífi að féþúfu, auk þess sem afbrotum í tengslum við umönnun aldraðra fjölgar.
Hér á landi hefur atvinnustarfsemi tengd byggingu svonefndra íbúða fyrir aldraða á vegum einkaaðila blómstrað um skeið, enda eftirspurn mikil þótt verð slíkra íbúða þyki oft á tíðum hátt. Þeir sem komið hafa að þessum málum efast sumir um að aldraðir séu með kaupum á slíkum íbúðum að fá þá þjónustu eða það öryggi í ellinni sem þeir vænta. Enginn dómur skal á það lagður hvort slíkar efasemdir eru réttmætar eða hvort það verð, sem sett er upp fyrir slíkar íbúðir, er í einhverju samhengi við raunverulegan byggingarkostnað og eðlilegan hagnað byggingaraðila. Mikil eftirspurn eftir slíkum íbúðum sýnir hins vegar ljóslega að aldraðir leggja mikið á sig til að geta búið sem lengst á eigin heimili. Það er ósk okkar allra, ungra sem aldinna, að fá tækifæri til að lifa eðlilegu einkalífi og ráða eigin högum sem lengst.
Þjóðfélagið mun seint geta komið til móts við allar þarfir þess fjölmenna hóps sem á næstu árum og áratugum telst til eftirlaunaþega og aldraðra og því leikur ekki vafi á að hér á landi, líkt og í mörgum öðrum löndum, verða á allra næstu árum til fjölmörg fyrirtæki sem leitast munu við að koma til móts við þessar þarfir með því að bjóða öldruðum persónulega umönnun, aðstoð og hjúkrun.
Flutningsmanni er ekki kunnugt um að til séu aðgengilegar upplýsingar um umfang þeirrar öldrunarþjónustu sem veitt er í heimahúsum af einkaaðilum hér á landi eða hver sé álitin líkleg þróun slíkrar starfsemi á næstu árum. Samkvæmt gögnum frá Bandaríkjunum áætlar atvinnumálaráðuneytið þar í landi ( Labour Department) að heimahjúkrun og persónuleg þjónusta í heimahúsum séu þær tvær atvinnugreinar sem vaxa munu hraðast þar í landi á árunum 1994–2005. Ekki er ástæða til annars en að ætla að þróunin hér geti að einhverju leyti orðið svipuð og í Bandaríkjunum. Áætlun ráðuneytisins um tíu atvinnugreinar sem vaxa munu hraðast, mælt í þörf fyrir aukið vinnuafl, er þannig:
Atvinnugreinar
Aukning
Heimahjúkrun
120%
Aðstoð í heimahúsum (ekki hjúkrun)
83%
Utanaðkomandi þjónusta við fyrirtæki
79%
Þrif og umhirða bifreiða (ekki viðgerðir)
75%
Tölvur og hugbúnaðargerð
70%
Félagsleg þjónusta
69%
Skriffinnska tengd heilbrigðisþjónustu
65%
Dagvistun barna
59%
Ráðningarþjónusta og skyld starfsemi
58%
Byggingariðnaður
58%
Umönnunarþjónustan í Bandaríkjunum ( National Association for Home Care) áætlar að þar í landi njóti nú sjö milljónir Bandaríkjamanna aðhlynningar í heimahúsum á vegum óskyldra aðila og á árabilinu 1985–94 hefur þeim fyrirtækjum sem veita slíka þjónustu fjölgað úr 6.000 í 17.000. Opinbera sjúkratryggingakerfið ( Medicare) greiðir á árinu 1996 fyrir þá heimahjúkrun sem 3,9 milljónir manna af framangreindum 7 milljónum njóta og hefur sá fjöldi aukist um 2 milljónir einstaklinga frá árinu 1990 er tryggingarnar greiddu fyrir heimahjúkrun 1,9 milljóna einstaklinga. Á sama tímabili hafa greiðslur hins opinbera vegna þessarar þjónustu aukist úr 3,9 milljörðum dollara í 18,1 milljarð dollara.
Sami aðili hefur látið frá sér fara tölulegar upplýsingar um hvaða aðilar það eru sem kaupa aðhlynningu í heimahúsum:
— 67% kaupenda þjónustunnar eru konur en 33% karlar.
— 65 ára eða eldri eru 72% kaupenda, 15% eru á aldrinum 45 ára til 64 ára og 13% eru yngri en 45 ára.
— Aðhlynning skiptist þannig eftir umfangi þjónustu: 4% fá stöðuga umönnun allan sólarhringinn, 32% fá aðstoð oftar en þrisvar í viku, 41% fá aðstoð tvisvar til þrisvar í viku og 23% einu sinni í viku.
Erfitt getur verið að henda reiður á hvernig kostnaður við þá aðhlynningu sem veitt er í heimahúsum skiptist þar sem fjölmargt eldra fólk semur beint við einstaklinga um að veita slíka þjónustu. Kostnaður hjá þeim sem fá þjónustu fyrir tilstilli viðurkenndra fyrirtækja á þessu sviði skiptist þannig:
Greiðandi
Hlutfall
Opinberar sjúkratryggingar
42%
Félagsleg aðstoð
16%
Tryggingafélög
13%
Notandi þjónustunnar
23%
Aðrir aðilar
6%
Í Bandaríkjunum er nú talið að brýn þörf sé á samræmdri löggjöf um þjónustu sem öldruðum er veitt, en þar hefur þróunin orðið hvað örust í þá átt að fólk búi sem lengst í eigin húsnæði en vistist ekki á stofnunum. Reynslan þar í landi sýnir að með viðleitni eldri borgara til að komast hjá því að þurfa að flytjast á elliheimili hefur opnast leið fyrir óheiðarlegt fólk til að féfletta þá er öldrunarþjónustu kaupa. Löggjöf um þjónustu utanaðkomandi aðila við aldraða í Bandaríkjunum nær ekki til umönnunar í heimahúsum frekar en hér á landi. Í skjóli þess að ekki er um að ræða opinbert eftirlit með starfsemi þjónustuaðila eða samræmingu á þeim kröfum sem gera ber til þjónustunnar hafa að undanförnu komið upp mörg erfið mál í Bandaríkjunum þar sem eldri borgarar verða fyrir barðinu á sviksömu og óvönduðu fólki. Það sorglega er að gamalt fólk sem hleypir utanaðkomandi fólki inn á heimili sín til aðstoðar gerir það í þeirri von að geta með því móti komist hjá því að fara á elliheimili. Reynslan sýnir enn fremur að í mjög mörgum tilvikum lætur það ættingja eða yfirvöld ekki vita verði það fyrir barðinu á óheiðarlegum „umönnunaraðilum“ af ótta við að þurfa að flytjast á elliheimili eða vera talið of gamalt til að gæta sín sjálft. Talið er að í 80% tilvika segi þolendur ekki frá slíkum brotum.
Í rannsókn sem gerð var í Bandaríkjunum á 150 tilvikum þar sem upp hefur komist um brot má flokka brotin þannig (ath. að summan er yfir 100% þar sem um fleiri en eina tegund brots er oft að ræða):
Brot
Hlutfall
Þjófnaður
73%
Ofbeldi og kynferðisleg áreitni
19%
Vanhirða
15%
Í 94% tilvika var hinn brotlegi ófaglærður aðstoðarmaður en í 6% tilvika var um faglært hjúkrunarfólk að ræða. Af þeim sem veita eldra fólki heimilisaðstoð í Bandaríkjunum eru 10% karlar og 90% konur. Karlar eru hins vegar viðriðnir 23% brota en konur 77%.
Sem betur fer munu fá dæmi um þess konar brot á Íslandi gagnvart eldri borgurum þótt vissulega hafi slík tilvik komið upp. Það er engu síður trú flutningsmanns að nauðsyn sé á að löggjafinn setji starfsemi sem byggist á umönnun aldraðra fastar skorður án þess að komið sé í veg fyrir að slík þjónusta fái að þróast á eðlilegan hátt. Með setningu löggjafar um þær kröfur sem gerðar eru til þeirra sem veita alhliða öldrunarþjónustu er tryggt að aldraðir fái notið góðrar og ábyrgrar umönnunar í ellinni, jafnt á stofnunum sem einkaheimilum. Með slíkri löggjöf er jafnframt dregið úr líkum á að það sama hendi hér á landi og gerst hefur í Bandaríkjunum þar sem þeir þegnar þjóðfélagsins sem eru hvað varnarlausastir verða oft fyrir barðinu á óheiðarlegu fólki sem fær aðgang að heimilum viðkomandi undir yfirskini hjálpar og aðhlynningar. Nauðsynlegt er enn fremur að stuðla að því að aldraðir sem dveljast á öldrunarheimilum fái haldið persónulegri reisn sinni og sé sýnd sú virðing sem þeir eiga skilið af þjóðfélagi sem þeir hafa tekið þátt í að byggja upp af eljusemi og umhyggju fyrir komandi kynslóðum.