Ferill 54. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 54 . mál.
411. Nefndarálit
um till. til þál. um fullgildingu samnings um framkvæmd ákvæða hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna frá 10. desember 1982 um verndun deilistofna og víðförulla fiskstofna og stjórnun veiða úr þeim.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um tillöguna og fengið á sinn fund Tómas H. Heiðar, aðstoðarþjóðréttarfræðing utanríkisráðuneytisins, og Arnór Halldórsson, deildarstjóra í sjávarútvegsráðuneytinu, auk þess sem þeir hafa sent nefndinni nánari skýringar á nokkrum atriðum samningsins. Þá óskaði nefndin eftir áliti sjávarútvegsnefndar og umhverfisnefndar og eru álit nefndanna birt sem fylgiskjöl með áliti þessu.
Markmiðið með gerð úthafsveiðisamningsins, eins og samningurinn er jafnan nefndur, er að stuðla að verndun og sjálfbærri nýtingu deilistofna og víðförulla fiskstofna. Telur nefndin að samningurinn geti haft mikla þýðingu og að hagsmunum Íslendinga sé best borgið með því að samningurinn njóti alþjóðlegrar viðurkenningar. Í ljósi þess er skynsamlegt að Ísland sé í hópi þeirra ríkja sem fyrst eru til að fullgilda úthafsveiðisamninginn þótt ákvæði hans öðlist ekki gildi fyrr en 30 ríki hafa fullgilt hann.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Tómas Ingi Olrich var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 17. des. 1996.
Geir H. Haarde,
Össur Skarphéðinsson.
Árni R. Árnason.
form., frsm.
Siv Friðleifsdóttir.
Svavar Gestsson.
Hjálmar Árnason.
Lára Margrét Ragnarsdóttir.
Kristín Ástgeirsdóttir.
Fylgiskjal I.
Umsögn sjávarútvegsnefndar.
(25. nóvember 1996.)
Vísað er til bréfs utanríkismálanefndar frá 1. nóvember sl. þar sem óskað er eftir áliti sjávarútvegsnefndar á 54. máli, tillögu til þingsályktunar um fullgildingu samnings um framkvæmd ákvæða hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna frá 10. desember 1982 um verndun deilistofna og víðförulla fiskstofna og stjórnun veiða úr þeim.
Sjávarútvegsnefnd hefur haldið tvo fundi um málið, þar af annan sameiginlegan með umhverfisnefnd þar sem Arnór Halldórsson frá sjávarútvegsráðuneyti og Tómas H. Heiðar frá utanríkisráðuneyti mættu og fóru yfir efni tillögunnar.
Samningur sá sem um ræðir var samþykktur samhljóða af þeim ríkjum er tóku þátt í úthafsveiðiráðstefnu Sameinuðu þjóðanna á síðasta ári og hefur Ísland þegar undirritað hann. Meginviðfangsefni samningsins er stjórnun veiða á úthafinu og hefur Ísland þar eins og mörg önnur ríki mikilla hagsmuna að gæta.
Sjávarútvegsnefnd styður fullgildingu samningsins en leggur áherslu á að ötullega verði unnið að því af hálfu íslenskra stjórnvalda fram að gildistöku samningsins að tryggja hagsmuni Íslands sem best innan þess ramma sem samningurinn kemur til með að setja. Þá leggur nefndin einnig áherslu á að íslenskum útgerðarmönnum verði auðveldað að nýta sér sóknarfæri á úthafinu.
Guðný Guðbjörnsdótttir sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk áliti þessu.
Virðingarfyllst,
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður sjávarútvegsnefndar.
Fylgiskjal II.
Umsögn umhverfisnefndar.
(16. desember 1996.)
Umhverfisnefnd hefur, sbr. bréf utanríkismálanefndar frá 1. nóvember sl., fjallað um 54. mál, tillögu til þingsályktunar um fullgildingu samnings um framkvæmd ákvæða hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna frá 10. desember 1982 um verndun deilistofna og víðförulla fiskstofna og stjórnun veiða úr þeim. Fékk nefndin á sinn fund Tómas H. Heiðar frá utanríkisráðuneyti og Arnór Halldórsson frá sjávarútvegsráðuneyti.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við afgreiðslu málsins.
f.h. umhverfisnefndar,
Ólafur Örn Haraldsson
formaður.