Ferill 248. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


121. löggjafarþing 1996–1997.
Nr. 2/121.

Þskj.
496  —  248. mál.

Þingsályktun

um staðfestingu samninga um veiðar á norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1997.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirtalda samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1997 sem gerðir voru í Ósló 14. desember 1996:
     1.     Sameiginlega bókun um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða á norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 1997, ásamt bókun um sérstakar verndunarráðstafanir með tilliti til stjórnunar veiða á stofninum.
     2.     Samning milli Íslands og Færeyja um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 1997.
     3.     Samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands, efnahagslögsögu Noregs og fiskveiðilögsögu Jan Mayen á árinu 1997.
     4.     Samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 1997.

Samþykkt á Alþingi 20. desember 1996.