Ferill 269. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 269 . mál.


522. Fyrirspurn



til forsætisráðherra um vísitölubindingu langtímalána.

Frá Kristjáni Pálssyni.



    Telur ráðherra að tenging langtímalána við vísitölu hafi efnahagslega þýðingu?
    Eru hugmyndir uppi um að fella niður heimildir til að tengja lán við breytingar á vísitölu?
    Hve há voru vísitölubundin lán að meðaltali á fjölskyldu um síðustu áramót?
    Hve há voru vísitölubundin lán að meðaltali á fyrirtæki um síðustu áramót?
    Hve langan tíma tæki að afnema vísitölubindingu lána eftir að ákvörðun um það væri tekin?