Ferill 5. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 5 . mál.


639. Skýrsla



félagsmálaráðherra um afleiðingar langs vinnutíma hér á landi, samkvæmt beiðni.

(Lögð fyrir Alþingi á 121. löggjafarþingi 1996–97.)



Inngangur.


    Með beiðni (á þskj. 5) frá Margréti Frímannsdóttur og fleiri þingmönnum er þess óskað að félagsmálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um þau áhrif sem langur vinnutími hér á landi hefur á þjóðarbúið og hag íslenskra fjölskyldna. Þess er sérstaklega óskað að fram komi hver áhrif vinnutíma séu m.a. á:
    kjör launafólks,
    framleiðni fyrirtækja og afkomu þeirra,
    slysa- og veikindatíðni og
    fjölskyldulíf.
    Enda þótt hér sé hreyft mikilvægu málefni eru sumir þættir þess eðlis að nær útilokað er að gera þeim fullnægjandi skil jafnvel þótt miklu væri til kostað með rannsóknum. Þetta á við um áhrif langs vinnutíma á framleiðni fyrirtækja og afkomu þeirra. Einnig að því er varðar áhrif á fjölskyldulíf. Hins vegar eru tiltækar erlendar skýrslur um fyrrnefnda atriðið og að því verður vikið síðar. Ekki hefur tekist að afla gagna um áhrifin á fjölskyldulífið en þó hlýtur að mega fullyrða að áhrifin séu neikvæð. Samkvæmt upplýsingum Vinnueftirlits ríkisins eru til erlendar rannsóknir sem sýna að beint samband er á milli langs vinnutíma og aukinnar slysa- og veikindatíðni starfsmanna.
    Áhrif langs vinnutíma á kjör launafólks eru öllum kunn. Langur vinnutími eykur ráðstöfunartekjur eins og greinilega kom fram í samanburðarkönnun á lífskjörum hér á landi og í Danmörku sem var lögð fyrir Alþingi í vor. Þó verður að vekja athygli á því að upplýsingum um raunverulegan vinnutíma hér á landi er að ýmsu leyti áfátt eins og bent er á í skýrslu nefndar sem gerði úttekt á áhrifum þess að tilskipun Evrópusambandsins um skipulag vinnutíma taki gildi á Íslandi. Nánar er fjallað um skýrsluna hér á eftir. Í þessu sambandi er rétt að minna á að hér er um að ræða atriði sem meðal annars er skipað með samningum aðilda vinnumarkaðarins.
    Þegar hafa tekist nokkrir samningar á milli samtaka atvinnurekenda og samtaka launafólks um styttingu vinnutíma. Þeir helstu eru: Samningur frá 30. desember 1996 sem Alþýðusamband Íslands og fimm landssambönd þess gerðu við Vinnuveitendasamband Íslands. Samningur frá 23. janúar 1997 á milli annars vegar fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, Reykjavíkurborgar og launanefndar sveitarfélaga og hins vegar Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Kennarasambands Íslands. Enn fremur hefur verið undirritaður samningur á milli atvinnurekenda og samtaka launafólks varðandi vinnuskipulag í loðnubræðslum á Austurlandi.
    Samningar á milli Alþýðusambands Íslands og Vinnumálasambandsins eru langt komnir.
    Með framangreindum samningum er stigið markvisst skref í átt að almennri styttingu vinnutíma á Íslandi. Samningunum verður fylgt eftir með breytingu á IX. kafla laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, og er undirbúningur frumvarps hafinn.

Íslenskar skýrslur og tillögur um aðgerðir til að stytta vinnutíma.


    Stjórnvöld hafa gert tilraunir til að hafa áhrif á lengd vinnutíma en með takmörkuðum árangri.
    Árið 1987 skipaði félagsmálaráðherra nefnd þriggja manna sem falið var að leita leiða til að stytta vinnutíma án þess að tekjur skerðist. Í nefndinni áttu sæti Bolli Þór Bollason, skrifstofustjóri fjármálaráðuneytis, Jón Agnar Eggertsson, formaður Verkalýðsfélags Borgarness, og Víglundur Þorsteinsson framkvæmdastjóri.
    Helstu niðurstöður nefndarinnar voru að leggja til að yfirvinnukaup yrði lækkað en dagvinnukaup hækkað. Einnig benti nefndin á að í auknum mæli mætti staðgreiða skatt á launagreiðslur og takmarka yfirvinnu með lögum. Tillögur nefndarinnar voru sendar fjölmörgum samtökum á vinnumarkaði til umsagnar. Samandregið má segja að öllum umsagnaraðilum hafi borið saman um nauðsyn þess að stytta vinnutímann. Hins vegar lögðust langflestir umsagnaraðilar gegn þeirri tillögu nefndarinnar að leiðin að því marki væri að lækka aukavinnuálag. Samtök launafólks töldu nauðsynlegt að hækka dagvinnulaunin. Svo til allir umsagnaraðilar lögðust gegn lagasetningu sem takmarki aukavinnu og bentu í því sambandi á gildandi lög um lengd vinnutíma.
    Hér að framan er þess getið að nefnd á vegum ráðuneytisins hafi skilað skýrslu um áhrif þess að tilskipun Evrópusambandsins nr. 93/104/ESB taki gildi á Íslandi. Um er að ræða samráðsnefnd ráðuneytisins og helstu samtaka á vinnumarkaði um reglur á sviði félagsmála á Evrópska efnahagssvæðinu. Nefndin var skipuð 23. ágúst 1993. Í henni eiga sæti fulltrúar eftirtalinna aðila: Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Sambands íslenskra sveitarfélaga, fjármálaráðuneytisins, utanríkisráðuneytisins, Vinnumálasambandsins og Vinnuveitendasambands Íslands. Fulltrúi félagsmálaráðherra er formaður samráðsnefndarinnar.
    Með bréfi frá 2. júní 1995 var samráðsnefndinni falið að gera úttekt á áhrifum þess að tilskipun Evrópusambandsins nr. 93/104/ESB taki gildi á Íslandi. Þess var sérstaklega óskað að tekin yrði saman greinargerð um breytingar á lögum og reglugerðum sem kynni að leiða af gildistökunni. Einnig var farið fram á að varpað yrði ljósi á áhrif á skipulag vinnutíma opinberra starfamanna, t.d. þeirra sem starfa að heilsugæslu, og lagt yrði mat á þann kostnaðarauka fyrir ríkissjóð sem hlýst af skipulagsbreytingum á starfsemi hins opinbera. Loks var farið fram á það að samráðsnefndin upplýsti um líkur á samkomulagi aðila vinnumarkaðarins um framkvæmd tilskipunarinnar og hvaða kostnaður hlýst af gildistöku hennar fyrir atvinnulífið í heild.
    Í bréfi frá 2. febrúar 1996 gerir nefndin félagsmálaráðherra grein fyrir útekt sinni. Í því kemur fram að hún hafi unnið að samningu greinargerðar um málefnið á samtals 16 fundum. Með bréfinu fylgdi skýrsla sem nefndin tók saman og ber heitið: Skipulag vinnutíma. Skýrsla um áhrif af gildistöku tilskipunar ESB um skipulag vinnutíma nr. 93/104/ESB.
    Í skýrslunni eru ákvæði tilskipunar ESB um skipulag vinnutíma brotin til mergjar og gerð grein fyrir helstu meginreglum sem leiðir af gildistöku hennar á Evrópska efnahagssvæðinu.
    Í skýrslunni er vakin athygli á því að samráðsnefndinni hafi verið falið að leggja mat á þann kostnað sem hlýst af gildistöku tilskipunarinnar fyrir atvinnulífið. Nefndin er sammála um að mat á mögulegum kostnaði eða hagræði af þeim breytingum sem leiðir af skuldbindingum samkvæmt tilskipuninni sé háð fjölmörgum óvissuþáttum, m.a. að fyrir liggi áreiðanlegar upplýsingar um virkan vinnutíma landsmanna. Fulltrúar hagsmunaaðila, sem eiga sæti í nefndinni, eru þó sammála um að allar aðstæður í framleiðslu hafi breyst á undanförnum árum og áratugum þannig að hægt eigi að vera að skipuleggja vinnu innan þess ramma sem tilskipunin setur.
    Skýrslan er birt sem fylgiskjal með þessar skýrslu. Í henni er fjallað með einum eða öðrum hætti um atriði sem þingmenn Alþýðubandalagsins og óháðra hafa með beiðni sinni óskað eftir fá upplýsingar um.
    Vakin er á því athygli að í skýrslu félagsmálaráðherra um styttingu vinnutíma, sem lögð var fyrir Alþingi á 120. löggjafarþingi 1995–96, er einnig fjallað um það málefni sem hér er til umræðu.

Framleiðni fyrirtækja og afkoma þeirra.


    Í öðrum löndum hafa verið teknar saman skýrslur um áhrif vinnutíma á framleiðni og afkomu fyrirtækja. Skýrsla sænskrar nefndar um vinnutíma, lengd, skipulagningu og áhrif er sú nýjasta á þessu sviði (Arbetstid, längd, förläggning och inflytande — slutbetänkande av 1995 års arbetstidskommittee — SOU 1996:145). Skýrslan barst félagsmálaráðuneytinu í byrjun nóvember 1996.
    Samkvæmt erindisbréfi sænsku nefndarinnar fjallaði hún fyrst og fremst um þrjú viðfangsefni: Mat á langtímaáhrifum af ýmsum kostum við að stytta vinnutíma; rannsókn á því hvernig hægt sé að taka upp ákvæði um sveigjanlegan vinnutíma í sænsk lög; úttekt á áhrifum af gildistöku tilskipunar Evrópusambandsins um skipulag vinnutíma á lög og reglur í Svíþjóð um vinnutíma. Viðfangsefni sænsku nefndarinnar og áðurnefndrar samráðsnefndar félagsmálaráðuneytisins eru að ýmsu leyti hliðstæð.
    Í kafla 4.3 í skýrslunni fjallar sænska nefndin ítarlega um áhrif styttingu vinnutíma á fjárhagslega afkomu fyrirtækja og á framboð atvinnu. Sérstaklega er fjallað um styttingu vinnutímans og framleiðni í kafla 4.3.1 á bls. 101.
    Í upphafi kaflans vekur nefndin athygli á því að sænskum rannsóknum á áhrifum styttingar vinnutíma á framleiðni beri ekki saman. Þannig komi fram í skýrslu Åbergs (1986) að það hafi átt sér stað nokkur framleiðniaukning á 7. og 8. áratugnum. Hins vegar virðast rannsóknir Åbergs benda til þess að sé litið til lengri tíma virðist draga úr framleiðniaukningunni. Rannsóknir Anxo og Bigsten (1989) og Anxo og Sterner (1991) leiða í ljós að almenn stytting vinnutímans muni ekki nema að litlu leyti hafa áhrif á framleiðnina.
    Önnur rannsókn bendir í aðra átt. Skedinger (1994) kemst að þeirri niðurstöðu að framleiðni vinnunnar aukist um 0,7% fyrir hvern hundraðshluta sem vinnutíminn styttist.
    Sænska nefndin bendir á að skýringin á þessum mismunandi niðurstöðum sé ef til vill sú að rannsókn Skedinger taki ekki með tímabundnar sveiflur í rekstri en það sé gert í rannsókn Anxo og Sterner.
    Almennt er niðurstaða sænsku nefndarinnar sú að stytting vinnutímans leiði til minni framleiðslu. Styttri vinnutími getur leitt til vaxandi framleiðni en svo virðist sem stytting vinnutímans hafi mest áhrif á framleiðnina því lengri sem vinnudagurinn er við upphaf styttingarinnar. Því meir sem vinnutíminn er styttur því erfiðara virðist vera að auka framleiðsluna með aukinni framleiðni. Hversu mikið hægt er að auka framleiðnina veltur á atvinnugreininni. Í vissum atvinnugreinum, fyrst og fremst þjónustu, er tækifæri til hagræðingar háð ýmsum takmörkunum. Skilvirkni hefur þegar náð því stigi að frekari styttingu vinnutíma virðist ekki vera hægt að mæta með meiri hagræðingu.
    Ástæða er til að vekja athygli á umfjöllun í kafla 4.4. í sænsku skýrslunni um reynslu nokkurra landa í Vestur-Evrópu af styttingu vinnutíma.

Vinnutími og slysa- og veikindatíðni.


    Langur vinnudagur leiðir oft til þreytu hjá starfsmönnum, en þreytan getur verið mismikil. Það er einstaklingsbundið hve næmir menn eru fyrir áhrifum langs vinnudags og hversu þreyttir þeir verða. Með þreytu er átt við tímabundna minnkun á getunni til að vinna, ástand sem auðveldlega gengur til baka og sem stafar af endurtekningu eða stöðugri langvarandi áreynslu. Þreyttur maður hefur minni mátt eða hæfni til að bregðast við áreiti. Þreytu má skipta í tvo flokka, vöðvaþreytu og almenna þreytu. Báðir flokkar eru háðir lengd vinnudagsins eða áreynslu. Um almenna þreytu er stundum talað sem taugaþreytu eða andlega þreytu, hennar gætir fyrr og oftar ef svefn er ónógur eða óreglulegur.
    Ef vinnudagur er langur eykst sá tími sem menn eru í hættu að verða fyrir vinnuslysum. Því þarf við rannsóknir á löngum vinnudegi og tíðni vinnuslysa að taka tillit til þess að áhættutíminn lengist. Það hefur verið staðfest í rannsóknum að með löngum vinnudegi eykst slysatíðni þó meir en sem svarar því að menn eru lengur á vinnustaðnum. Það er því ljóst að samhengi er milli langs vinnudags, skorts á hvíld og hærri tíðni vinnuslysa. Nákvæmar rannsóknir á tilurð flugslysa sýna greinilega þátt þreytu í slysatíðninni. Oft hafa menn þó kosið að kalla það „mannleg mistök“ þegar t.d. þreyta og ónógur svefn eiga hlut að slysunum.
    Frekari upplýsingar um þetta efni er t.d. að finna í Basisbog I Arbejdsmedicin, bind II. Redaktor: Ib Andersen, Köbenhavn, Arbejdsmiljöinstituttet 1994; Tver, DF. Industrial medicine desk reference, London, Chapman and Hall, 1986; Price WJ, Holley DC, Shiftwork and safety in aviation, In: Scott A. Javids ed. Occupational Medicine, Shiftwork, Philadelphia, Hanley and Belfus, 1990.

Niðurlag.


    Í þessari skýrslu er fjallað í stuttu máli um tengsl vinnutíma við ýmsa þætti, t.d. framleiðslu og framleiðni, tekjur, fjölskyldulíf, slysa- og veikindatíðni. Vakin er athygli á nýlegri sænskri skýrslu um þetta málefni. Gerð er grein fyrir helstu niðurstöðum í skýrslu samráðsnefndar félagsmálaráðuneytisins og samtaka aðila vinnumarkaðarins um áhrif þess að tilskipun Evrópusambandsins um skipulag vinnutíma taki gildi á Íslandi. Skýrslan er birt sem fylgiskjal með þessari skýrslu. Bent er á fyrri skýrslur sem unnar hafa verið á vegum félagsmálaráðuneytisins um vinnutíma og leiðir til að stytta hann.
    Ítarlegri og umfangsmeiri úttekt krefst umtalsverðra fjármuna og mannafla. Ef Alþingi telur brýnt að ráðast í slíka úttekt er ekki óeðlilegt að hún verði framkvæmd á grundvelli sérstakrar þingsályktunar.
Fylgiskjal.


SKIPULAG VINNUTÍMA



Skýrsla um áhrif af gildistöku tilskipunar


ESB um skipulag vinnutíma nr. 93/104/ESB.


(Febrúar 1996.)



Samin samkvæmt ósk félagsmálaráðherra af


samráðsnefnd um reglur á sviði félagsmála


á Evrópska efnahagssvæðinu.



Samantekt.


    Skýrsla þessi er tekin saman í framhaldi af bréfi félagsmálaráðherra 2. júní 1995 til samráðsnefndar félagsmálaráðuneytisins og helstu samtaka á vinnumarkaði um reglur á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Í bréfinu kemur fram sú ósk ráðherra að nefndin taki saman skýrslu um áhrif þess að tilskipun Evrópusambandsins um skipulag vinnutíma nr. 93/104/EB taki gildi á Íslandi.
    Í skýrslunni er gerð grein fyrir afstöðu stjórnvalda og helstu samtaka á vinnumarkaði til þess að tilskipunin taki gildi á Evrópska efnahagssvæðinu og þar með á Íslandi. Í fyrstu höfðu stjórnvöld efasemdir um að lagalegar forsendur væru fyrir gildistöku tilskipunarinnar á Evrópska efnahagssvæðinu. Stefna utanríkisráðuneytsins er sú að Ísland eigi að staðfesta tilskipunina.
    Helstu samtök launafólks hafa stutt gildistöku tilskipunarinnar um skipulag vinnutíma.
    Enda þótt í upphafi hafi komið fram ábendingar frá fulltrúum samtaka atvinnurekenda um að efni tilskipunarinnar ætti mjög illa við aðstæður á íslenskum vinnumarkaði eru fulltrúar hagsmunaaðila og utanríkisráðuneytisins, sem eiga sæti í samráðsnefndinni, sammála um að með tilliti til þeirra almennu markmiða um vinnuvernd sem tilskipunin byggir á og vegna hagsmuna Íslands af góðri framkvæmd EES-samningsins sé óhjákvæmilegt að mæla með því að stjórnvöld staðfesti tilskipunina og hún verði þar með tekin upp á Evrópska efnahagssvæðinu.
    Í skýrslunni eru ákvæði tilskipunar ESB um skipulag vinnutíma reifuð. Meginreglur hennar eru þær að tryggja ber sérhverjum starfsmanni 11 klst. samfelldan daglegan hvíldartíma á hverju 24 klst. tímabili; að starfsmenn eigi rétt til hvíldarhlés ef daglegur vinnutími er lengri en 6 klst.; að tryggja að starfsmenn eigi rétt á samfelldum 24 klst. hvíldartíma á hverju sjö daga tímabili; að vikulegur vinnutími sé takmarkaður og að meðalvinnustundafjöldi fari ekki yfir 48 klst. að yfirvinnu meðtalinni; að tryggja öllum launamönnum rétt á árlegu fjögurra vikna launuðu leyfi; að tryggja að venjulegur vinnutími næturvinnustarfsmanns fari ekki að jafnaði yfir 8 klst. á hverju 24 klst. tímabili og að þetta viðmið sé hámark ef starfi fylgir mikið andlegt eða líkamlegt álag.
    Nefndin vekur á því athygli að nauðsynlegt er að breyta ákvæðum gildandi laga, t.d. um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, og kjarasamninga til samræmis við efni tilskipunarinnar.
    Samkvæmt bréfi ráðherra var nefndinni falið að leggja mat á þann kostnað sem hlýst af gildistöku tilskipunarinnar fyrir atvinnulífið. Nefndin er sammála um að mat á mögulegum kostnaði eða hagræði af þeim breytingum sem leiðir af skuldbindingum samkvæmt tilskipuninni er háð fjölmörgum óvissuþáttum, m.a. að fyrir liggi áreiðanlegar upplýsingar um virkan vinnutíma landsmanna.
    Nefndin vekur á því athygli að vinnutímarannsóknir á Íslandi séu skammt á veg komnar og því erfitt að segja eitthvað með fullri vissu um endanleg áhrif tilskipunarinnar á lengd vinnutíma. Svarið verði enn torfundnara í ljósi þess að ekki eru fullljós áhrif þeirra frávika sem tilskipunin gefur möguleika á og hvaða áhrif þau geta haft á framkvæmdina. Nefndin bendir á að allar aðstæður í framleiðslu hafi breyst á undanförnum árum og áratugum þannig að hægt eigi að vera að skipuleggja vinnu innan þess ramma sem tilskipunin setur.
    Samkvæmt ákvæðum tilskipunarinnar er heimilt að hrinda henni í framkvæmd með kjarasamningum. Í tillögukafla skýrslunnar kemur fram að fyrir liggi að Alþýðusamband Íslands hafi óskað eftir viðræðum við samningsaðila sína um efni tilskipunarinnar. Einnig hafa Bandalag háskólamanna og BSRB sett fram hliðstæða ósk gagnvart fjármálaráðuneytinu. Bæði Vinnumálasambandið og Vinnuveitendasambandið hafa lýst því yfir að samtökin séu tilbúin til slíkra viðræðna nú þegar. Af hálfu fjármálaráðuneytisins er hafinn undirbúningur málsins.
    Með tilliti til þessa telur nefndin eðlilegt að gefa aðilum vinnumarkaðarins nokkurt svigrúm til að ná samkomulagi sín á milli og freista þess þannig að aðlaga reglur tilskipunarinnar þeim aðstæðum sem fyrir hendi eru á íslenskum vinnumarkaði, t.d. þrjá mánuði. Að þeim tíma liðnum hefjist félagsmálaráðuneytið handa við undirbúning nauðsynlegrar lagasetningar sem geti tekið mið af því sem um semst innan ramma tilskipunarinnar.
    Í þessari skýrslu kemur fram að verulega skortir á að upplýsingar um lengd virks vinnutíma liggi fyrir eins og hann er skilgreindur samkvæmt tilskipuninni. Nefndin telur að það sé mjög brýnt að einum aðila verði þegar í stað falið að halda til haga upplýsingum um þetta efni og sjá um að þær séu aðgengilegar stjórnvöldum, sem og öðrum hagsmunaaðilum.
    Loks er lagt til að samin verði sérstök aðgerðaáætlun til að fylgja tilskipuninni eftir. Í henni verði kveðið á um upplýsingaherferð stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins sem hafi að markmiði að kynna efni tilskipunarinnar. Enn fremur verði í áætluninni lýsing á ábyrgð aðila hvers um sig og ábendingar um það hvernig framfylgja beri ákvæðum hennar.

1. Inngangur.


    Hinn 2. júní 1995 sendi félagsmálaráðherra samráðsnefnd félagsmálaráðuneytisins og helstu samtaka á vinnumarkaði um reglur á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) bréf um hugsanlega gildistöku tilskipunar Evrópusambandsins um skipulag vinnutíma nr. 93/104/ESB á Evrópska efnahagssvæðinu. Í bréfinu kemur fram að tilskipunin hafi verið til umfjöllunar hjá íslenskum stjórnvöldum og í samráðsnefndinni. Í bréfinu er vísað til þess að í samráðsnefndinni hafi komið fram ábendingar frá fulltrúum samtaka atvinnurekenda um að efni tilskipunarinnar ætti mjög illa við aðstæður á íslenskum vinnumarkaði.
    Í bréfinu er lagt fyrir samráðsnefndina að gera úttekt á áhrifum þess að framangreind tilskipun taki gildi á Evrópska efnahagssvæðinu. Ráðherra óskar þess sérstaklega að tekin verði saman greinargerð um breytingar á lögum og reglugerðum sem kann að leiða af gildistöku. Einnig að varpað verði ljósi á áhrif af gildistöku tilskipunarinnar á skipulag vinnutíma opinberra starfsmanna, t.d. þeirra sem starfa að heilsugæslu, og að lagt verði mat á þann kostnaðarauka fyrir ríkissjóð sem hlýst af skipulagsbreytingum á starfsemi hins opinbera.
    Bent er á að í tilskipuninni sé gert ráð fyrir að við útreikning á meðalvinnutíma verði hægt að miða við mismunandi langan viðmiðunartíma. Til dæmis er gert ráð fyrir að forsenda þess að hægt verði að nýta lengsta viðmiðunartímann við framkvæmd tilskipunarinnar sé sú að byggt verði á heildarsamningum aðila vinnumarkaðarins.
    Með tilvísun til þessa óskar ráðherra eftir því að samráðsnefndin freisti þess að upplýsa hvaða líkur eru á samkomulagi aðila vinnumarkaðarins um þetta efni og hvaða kostnaður hlýst af gildistöku samþykktarinnar fyrir atvinnulífið í heild.
    Í samræmi við framangreint bréf ráðherra hefur samráðsnefndin tekið saman skýrslu sem hér liggur fyrir. Í öðrum kafla hennar er gerð grein fyrir upphaflegri kynningu á tilskipuninni og fyrstu viðbrögðum hagsmunaaðila og stjórnvalda við henni og síðari samskiptum íslenskra stjórnvalda og ESB vegna gildistöku tilskipunarinnar. Í þriðja kafla er efni tilskipunar ESB nr. 93/104/ESB dregið saman og þess freistað að setja það fram á aðgengilegan hátt, þ.e. gera grein fyrir gildissviði, helstu ákvæðum um hámark vinnutíma, undanþágum og eftirliti með framkvæmd.
    Fjórði kafli skýrslunnar er um ákvæði íslenskra laga, reglugerða og kjarasamninga um lengd vinnutíma.
    Fimmti kaflinn fjallar um vinnutíma á Íslandi. Í honum er þess freistað að varpa ljósi á lengd vinnutíma á Íslandi eins og hann er skilgreindur í tilskipuninni. Niðurstaðan er sú að þær upplýsingar, sem liggja fyrir, séu mjög ófullkomnar og leyfi ekki að dregnar séu af þeim mjög víðtækar ályktanir um raunverulegan vinnutíma landsmanna.
    Umfjöllun um áhrif þess að tilskipunin taki gildi á Íslandi er í sjötta kafla. Þar bendir samráðsnefndin á breytingar sem hafa orðið að undanförnu í íslensku þjóðfélagi, t.d. með þéttingu byggðar, almennari menntun, bættum samgöngum og umfram allt byltingu í geymslu sjávarfangs. Vélvæðing í landbúnaði hefur einnig haft umtalsverð áhrif.
    Sjöundi kaflinn hefur að geyma tillögur um það með hvaða hætti tilskipuninni verði hrundið í framkvæmd á Íslandi. Bent er á að breyta þurfi lögum, reglugerðum og kjarasamningum. Samráðsnefndin leggur áherslu á að aðilum vinnumarkaðarins gefist nokkurt svigrúm til að ná samkomulagi sín á milli og freista þess þannig að aðlaga reglur tilskipunarinnar þeim aðstæðum sem eru á íslenskum vinnumarkaði. Hún telur brýnt að einum aðila verði þegar í stað falið að halda til haga upplýsingum um virkan vinnutíma landsmanna og sjá um að þær séu aðgengilegar stjórnvöldum sem og öðrum hagsmunaaðilum. Í kaflanum er loks lagt til að samin verði sérstök aðgerðaáætlun til að fylgja tilskipuninni eftir.
    

2. Aðdragandi.


    Tilskipun Evrópusambandsins um skipulag vinnutíma kom fyrst til umfjöllunar á vettvangi félagsmálaráðuneytisins í október 1993 þegar drög að tilskipuninni voru lögð fyrir samráðsnefnd ráðuneytisins og helstu samtaka á vinnumarkaði um framkvæmd reglna á sviði félagsmála á Evrópska efnahagssvæðinu. Tilskipunin kom til umfjöllunar á fundum nefndarinnar haustið 1993 og fyrri hluta árs 1994.
    Í samráðsnefndinni komu þegar fram ábendingar frá fulltrúum samtaka atvinnurekenda um að efni tilskipunarinnar ætti mjög illa við aðstæður á íslenskum vinnumarkaði. Helstu rök samtaka atvinnurekenda voru þau að tilskipunin taki ekki mið af einhæfni íslensks atvinnulífs og smæð vinnumarkaðar og feli í sér óþarfa skriffinnsku. Að fenginni niðurstöðu framkvæmdastjórnar ESB um að tilskipunin eigi við á hinu Evrópska efnahagssvæði, sbr. umfjöllun hér að neðan, taldi VSÍ engu að síður að með tilliti til hagsmuna Íslands af góðri framkvæmd EES-samningsins væri óhjákvæmilegt að mæla með því að tilskipunin yrði tekin upp á Evrópska efnahagssvæðinu. Í bréfi, sem samtökin ásamt starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytisins sendu utanríkisráðuneytinu 23. mars 1995, er áréttuð sú afstaða að nauðsynlegt sé að reglur tilskipunarinnar verði aðlagaðar íslenskum aðstæðum, heimildir til undanþágu nýttar og viðmiðunartímabil og aðlögunartími verði sem lengstur.
    Samtök launafólks tóku afstöðu til hugsanlegrar gildistöku tilskipunarinnar á fyrri hluta árs 1994. BSRB tók afstöðu til tilskipunarinnar á fundi 3. mars 1994. Á þeim fundi var samþykkt að styðja tilskipun ESB um vinnutíma. Þessi afstaða er m.a. byggð á samþykktum 36. þings BSRB, sem haldið var árið 1991, þar sem gerð var krafa um styttingu vinnutíma og samþykkt að skora á ríkisvaldið að fella ákvæði um yfirvinnuskyldu brott úr lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Á fundi stjórnar og formanna BSRB kom jafnframt fram áhersla á skiptingu vinnunnar í ljósi aukins atvinnuleysis hér á landi.
    ASÍ tók formlega afstöðu til tilskipunarinnar 8. júní 1994. Í áliti miðstjórnar er vakin á því athygli að tilskipuninni sé ætlað að bæta vinnuumhverfi og auka vinnuvernd með öryggi og heilsu launþega í huga. Í framhaldi af því telur ASÍ eðlilegt að tilskipunin verði hluti af íslenskri löggjöf eins og aðrar hliðstæðar tilskipanir.
    Vinnumálasambandið tók formlega afstöðu til tilskipunarinnar með bréfi til félagsmálaráðuneytisins frá 27. apríl 1995. Í bréfinu kemur fram að samtökin eru afar ósátt við að tilskipunin taki gildi því að hún henti illa íslenskum aðstæðum og muni leiða til verulegra breytinga á vinnumarkaði og efni kjarasamninga. Vinnumálasambandið telur að af hálfu stjórnvalda verði að liggja ljóst fyrir hvort Íslendingar séu skuldbundnir til að taka upp þessa tilskipun. Telji stjórnvöld svo vera muni Vinnumálasambandið ekki fyrir sitt leyti leggjast gegn því að hún verði hluti af EES-samningnum.
    Bandalag háskólamanna (BHM) hefur tekið afstöðu til hugsanlegrar gildistöku tilskipunar um vinnutíma á Íslandi. Með bréfi frá 1. maí 1995 leggur BHM til að aðildarríkjum EES-samningsins verði þegar tilkynnt um þann ásetning ríkisstjórnar Íslands að staðfesta tilskipunina.
    Í utanríkisráðuneytinu voru í fyrstu uppi efasemdir um að lagalegar forsendur væru fyrir því að tilskipunin ætti að vera hluti af EES-samningnum þótt hún væri í samræmi við lagaheimildir Rómarsáttmálans. Í dag er það stefna utanríkisráðuneytisins að Ísland eigi að staðfesta tilskipunina.
    Í framhaldi af afstöðu íslenskra stjórnvalda sendi framkvæmdastjórn ESB fulltrúa í heimsókn til Íslands dagana 4. og 5. júlí 1994. Markmið heimsóknar fulltrúa ESB var að skýra fyrir stjórnvöldum og samtökum aðila vinnumarkaðarins ákvæði í tilskipuninni um skipulag vinnutíma.
    Íslensk stjórnvöld óskuðu eftir rökstuðningi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins fyrir þeirri afstöðu að tilskipanir ESB um skipulag vinnutíma skuli gilda á Evrópska efnahagssvæðinu. Félagsmálaráðuneytinu barst 2. mars 1995 skriflegur rökstuðningur framkvæmdastjórnar ESB fyrir því að tilskipun 93/104/ESB um skipulag vinnutíma og tilskipun 94/33/ESB um vinnu barna eigi að gilda á Evrópska efnahagssvæðinu. Þessi rök voru rædd á 26. fundi samráðsnefndar ráðuneytisins og helstu samtaka á vinnumarkaði um framkvæmd reglna á sviði félagsmála á Evrópska efnahagssvæðinu. Rök framkvæmdastjórnarinnar eru m.a. byggð á 62. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið þar sem kveðið er á um að samningsaðilar skuli einbeita sér að umbótum á vinnuskilyrðum starfsmanna, einkum að því er varðar öryggi og hollustuhætti. Samkvæmt 2. mgr. greinarinnar er tekið fram að í viðauka XIII séu talin upp ákvæði sem skuli framfylgja sem lágmarkskröfum á þessu sviði. Evrópusambandið tekur fram að framangreindar tvær tilskipanir eigi heima í þessum viðauka. Þær séu byggðar á a-lið í 118. gr. Rómarsamningsins sem heimilar framkvæmdastjórninni að afgreiða tilskipanir sem hafa að markmiði að auka öryggi og bæta heilsu starfsmanna. Þær miði augljóslega báðar að því að setja lágmarkskröfur en ekki að algjörri samræmingu á þessu sviði. Þær séu mikilvægur þáttur í evrópskri félagsmálastefnu og þannig þýðingarmikill þáttur í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Þá er vakin athygli á því að báðar tilskipanirnar gefa verulega möguleika á sveigjanleika bæði í sambandi við það með hvaða hætti þeim er hrint í framkvæmd og til að aðlaga ákvæði þeirra þeim aðstæðum sem fyrir hendi eru í hlutaðeigandi aðildarríki.

3. Tilskipun ESB um skipulag vinnutíma.


Gildissvið og skilgreiningar.


    Í þessum hluta skýrslunnar er gerð grein fyrir umfangi og inntaki tilskipunar Evrópusambandsins nr. 93/104/ESB um skipulag vinnutíma. Þar sem fram koma skýringar á einstökum atriðum er stuðst við fundargerðir samráðsnefndarinnar og upplýsingar frá Evrópusambandinu sem fram komu á áðurnefndum kynningarfundi fulltrúa ESB sem haldinn var á Íslandi dagana 4. og 5. júlí 1994. Annarra heimilda er getið í neðanmálsgreinum.
    Tilskipunin um skipulag vinnutíma byggir á a-lið í 118. gr. Rómarsáttmálans sem kveður á um að ESB skuli með útgáfu tilskipana setja lágmarkskröfur til að stuðla að umbótum, einkum að því er varðar vinnuumhverfi til að tryggja aukna öryggis- og heilsuvernd starfsmanna. Í aðfaraorðum tilskipunarinnar er vísað til þessa ákvæðis og yfirlýsingar um grundvallarréttindi launafólks sem samþykkt var á fundi leiðtogaráðs Evrópubandalagsins í Strassborg 9. desember 1989. Í yfirlýsingunni er tekið fram að innri markaður bandalagsins verði að leiða til bættra lífskjara og starfsskilyrða launafólks. Því markmiði eigi m.a. að ná með umbótum er varða lengd og skipulag vinnutíma. Enn fremur segir að sérhver launamaður í Evrópusambandinu skuli eiga rétt á hvíldartíma í hverri viku og launuðu árlegu leyfi.
    Í aðfaraorðum tilskipunarinnar er einnig vísað til tilskipunar um lögleiðingu ráðstafana sem stuðla að bættu öryggi og heilsu starfsmanna á vinnustöðum nr. 89/391/ESB. Enn fremur er tekið fram að umbætur á öryggi, hollustuháttum og heilbrigði starfsmanna á vinnustað sé markmið sem stefna beri að og skuli ekki ráðast af hreinum efnahagslegum sjónarmiðum. Að auki er á það bent að með fyrirmælum um lágmarkskröfur að því er varðar skipulag vinnutíma sé stuðlað að bættum starfsskilyrðum launafólks í Evrópusambandinu.

    1. gr. um gildissvið.
    Tilskipunin gildir um daglegan og vikulegan lágmarkshvíldartíma og árleg leyfi, um hlé og hámarksvinnutíma á viku, enn fremur um tiltekna þætti í tengslum við næturvinnu, vaktavinnu og vinnutilhögun. Í greininni er vísað til þess að hún gildi um alla starfsemi á vegum hins opinbera eða einkaaðila.
    Til frekari skýringar á orðunum „hins opinbera“ eða „einkaaðila“ er vísað til 2. gr. tilskipunar nr. 89/391/ESB um lögleiðingu ráðstafana sem stuðla að bættu öryggi og heilsu starfsmanna á vinnustöðum. Í 1. mgr. þeirrar greinar er tekið fram að tilskipunin taki til allra greina atvinnulífsins bæði á vegum einkaaðila og hins opinbera og innan sviga eru nefnd eftirfarandi dæmi um starfsemi sem hún tekur til: Iðnaður, landbúnaður, verslun, stjórnun, þjónusta, menntun, menningarstarfsemi, frístundaiðja o.s.frv. Í 2. mgr. 2. gr. tilskipunar nr. 89/391/ESB er að finna undantekningar frá meginreglu 1. mgr. sem fyrst og fremst eiga við tiltekna starfsemi hins opinbera, t.d. löggæslu og varnar- og öryggismál og tiltekna starfsemi á sviði almannavarna.
    Utan við gildissvið tilskipunar nr. 93/104/ESB eru ýmiss konar flutningar á landi, sjó og vötnum. Sama gildir um fiskveiðar og aðra vinnu á sjó, svo og starfstengt nám lækna.

    2.     gr. um skilgreiningar.
    Í 2. gr. tilskipunarinnar er að finna eftirfarandi orðskýringar:
     Vinnutími er sá tími sem starfsmaður er við störf eða er vinnuveitanda innan handar og innir af hendi störf sín eða skyldur í samræmi við innlend lög eða réttarvenju.
     Hvíldartími er sá tími sem ekki telst til vinnutíma.
     Næturvinnutími er tímabil sem er ekki skemmra en sjö klukkustundir, eins og skilgreint er í innlendum lögum, og verður undir öllum kringumstæðum að vera á tímabilinu frá miðnætti til kl. 5.00 að morgni.
    Einnig er að finna eftirfarandi skýringu á orðinu næturvinnustarfsmaður sem samkvæmt tilskipuninni er:
    annars vegar starfsmaður sem að jafnaði vinnur að minnsta kosti þrjár stundir af daglegum vinnutíma að næturlagi; og
    hins vegar starfsmaður sem ætlast er til að inni af hendi tiltekinn hluta af árlegri vinnu sinni að næturlagi og er sá hluti skilgreindur að vali viðkomandi aðildarríkis:
         
    
    með innlendri löggjöf, að undangengnu samráði við aðila vinnumarkaðarins; eða
         
    
    með heildarsamningum eða samningum sem gerðir eru milli aðila vinnumarkaðarins í hverju landi eða á hverjum stað um sig.     
    Í 2. gr. er enn fremur orðið vaktavinna skýrt þannig að það merki vinnu sem einkennist af því að henni er skipt á vaktir þar sem hver starfsmaður tekur við af öðrum á sama vinnustað samkvæmt tilteknu kerfi, með vaktaskiptum, sem getur verið hvort heldur sem er samfellt eða ósamfellt og krefst þess að starfsmaður vinni á mismunandi vöktum yfir tiltekið tímabil sem er mælt í dögum eða vikum. Vaktavinnustarfsmaður er starfsmaður sem tekur þátt í vaktavinnu.

Lágmarkshvíldartími — hámarksvinnutími.


    3. gr. um daglegan hvíldartíma.
    Í greininni er kveðið á um 11 klst. samfelldan daglegan hvíldartíma á hverju 24 klst. tímabili.
    Af hálfu fulltrúa ESB hefur komið fram það álit að eðlilegast sé að byrja að telja hvíldartímann þegar starfi lýkur. Ekki er heimilt að reikna hvíldartímann yfir lengra tímabil en 24 klst. Frávik eru þó heimil samkvæmt nánari ákvæðum í 17. gr.

    4. gr. um hlé frá vinnu.
    Tryggja skal að allir starfsmenn eigi rétt á hvíldarhléi ef daglegur vinnutími er lengri en sex stundir. Kveða skal á um hversu langt það skuli vera og við hvaða forsendur skuli miða í kjarasamningum eða að öðrum kosti í löggjöf.

    5. gr. um vikulegan hvíldartíma.
    Í greininni er kveðið á um samfellda 24 klst. hvíld að viðbættum 11 klst. sem um getur í 3. gr. á hverju sjö daga tímabili. Heimilt er þó að kveða á um 24 stunda lágmarkshvíld ef hlutlægar eða tæknilegar ástæður réttlæta slíkt eða skipulag vinnunnar leyfir. Kannað hefur verið hvort skylda sé að veita 24 klst. hvíldina innan sjö daga tímabilsins eða hvort hún megi falla á næsta sjö daga tímabil. Af hálfu ESB hefur komið fram að talning hefst við upphaf hverrar vinnulotu. Að því er varðar 24 klst. hvíldina hefur verið upplýst að veita verði tvisvar sinnum 24 klst. hvíld á 14 dögum, sem er viðmiðunartíminn, ef hlutlægar og tæknilegar aðstæður réttlæta slíkt eða skipulag vinnunnar leyfir.
    Vissar heimildir til frávika er þó að finna í 17. gr.     

    6. gr. um vikulegan vinnutíma.
    Hér er kveðið á um að vikulegur vinnutími sé takmarkaður með kjarasamningum eða lögum. Er gert ráð fyrir að meðalvinnustundafjöldi á viku megi ekki vera lengri en 48 stundir. Miðað er við unnar meðalvinnustundir að jafnaði á fjögurra mánaða tímabili.
    Hægt er að lengja viðmiðunartímabilið í sex mánuði með lögum og allt að 12 mánuði, t.d. ef gerðir hafa verið samningar um það á milli aðila vinnumarkaðarins.
    Í tilskipuninni er að finna tvær undantekningarreglur.
    Heimilt er að víkja frá ákvæðum 6. gr. þegar lengd vinnutímans verður ekki mæld eða fyrir fram ákveðin vegna sérstakra eiginleika starfsins eða stjórnendur geta sjálfir ákveðið vinnutímann einkum ef um er að ræða:
    framkvæmdastjóra eða einstaklinga sem hafa sjálfstætt ákvörðunarvald,
    starfsmenn innan fjölskyldu og
    starfsmenn safnaða eða þá sem taka þátt í trúarathöfnum.
    Annar kostur er að aðildarríki er heimilt að láta vera að beita ákvæðinu að því tilskildu að það tryggi að enginn atvinnurekandi krefjist þess að starfsmaður vinni meira en 48 stundir á viku að jafnaði á fjögurra mánaða tímabili nema starfsmaðurinn hafi samþykkt að vinna lengur.
    Nánari upplýsingar sem fram hafa komið um einstaka þætti greinarinnar eru:
    Með hugtakinu „vinnutími“ skv. 6. gr. er átt við hámarks vikulegan vinnutíma en með honum skal talin vinna við undirbúning og frágang og biðtími ef eftirtalin þrjú skilyrði eru uppfyllt:
    starfsmaður er í raun að vinna,
    starfsmaður er til ráðstöfunar fyrir atvinnurekanda,
    starfsmaður er að sinna skyldustörfum.
    Ef þessi skilyrði eru uppfyllt verður að ganga úr skugga um að starfsmaður vinni ekki lengri vinnutíma en 48 klst. að jafnaði á viðmiðunartímabili.
    Tilskipunin miðar samkvæmt aðfaraorðum sínum m.a. að bættum starfsskilyrðum launafólks í bandalaginu með því að mæla fyrir um lágmarkskröfur um skipulagningu vinnutímans. Að meginstefnu til má ætla að tilgangurinn sé að setja hámarksvinnutíma sérhvers starfsmanns takmörk með þessum hætti. Samkvæmt ákvæðum tilskipunarinnar er þó ekki lögð skylda á atvinnurekendur að fylgjast með hugsanlegu vinnuframlagi starfsmanna í þágu annarra atvinnurekenda.

Árlegt orlof.


    Tekið er fram að aðildarríkin skuli gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að allt launafólk fái árlegt orlof á launum í að minnsta kosti fjórar vikur. Rétturinn er háður skilyrðum sem mælt er fyrir um í löggjöf hlutaðeigandi aðildarríkis eða innlendri réttarvenju. Óheimilt skal vera að láta peningaleg hlunnindi koma í stað lágmarkstímabils launaðs árlegs orlofs nema þegar um er að ræða starfslok.

Næturvinna, vaktavinna, vinnutilhögun.


    Samkvæmt tilskipuninni gilda sérstakar reglur um vinnu næturvinnu- og vaktavinnustarfsmanna. Þær eiga við um lengd næturvinnutíma og öryggis- og heilsuvernd. Slíkar reglur eru nýmæli hér á landi þar sem ekki eru í gildi sérstakar reglur um næturvinnu.

    8. gr. um lengd næturvinnu.
    Meginreglan er sú að venjulegur vinnutími næturvinnustarfsmanns fari ekki að jafnaði yfir átta tíma á hverju 24 klukkustunda tímabili. Viðmiðunartímabil skal ákveða í samráði við aðila vinnumarkaðarins eða með kjarasamningum. Heimildir eru til frávika í ákveðnum tilvikum skv. 17. gr. Í greininni er að finna ákvæði um næturvinnustarfsmenn sem gegna störfum sem eru sérstaklega áhættusöm eða mikið líkamlegt eða andlegt álag fylgir. Þeir skulu ekki vinna lengur en átta stundir á hverju 24 klst. tímabili. Hlutaðeigandi ríki er látið það eftir að skilgreina þessi hugtök í löggjöf eða með kjarasamningum.

    9. gr. um rétt til læknisskoðunar.
    Aðildarríkjunum ber að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að tryggja að starfsmenn sem vinna næturvinnu eigi rétt á læknisskoðun þeim að kostnaðarlausu fyrir og eftir ráðningu í næturvinnustarf, enn fremur að þeir eigi kost á læknisskoðun með reglulegu millibili. Tekið er fram að læknisskoðunina megi framkvæma innan ramma hinnar opinberu heilsugæslu.
    Aðildarríkjum tilskipunarinnar ber að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja næturvinnumönnum, sem eiga við vanheilsu að stríða er rekja má til vinnutíma þeirra, þegar þess er kostur, flutning í dagvinnustörf sem henta þeim.

     10.–12. gr. um tryggingar, tilkynningarskyldu og öryggis- og heilsuvernd vegna næturvinnu.
    Aðildarríki er heimilt að mæla fyrir um að teknar séu tryggingar til hagsbóta fyrir tiltekna hópa næturvinnustarfsmanna sem taka áhættu með vinnu sinni hvað varðar öryggi eða heilbrigði.
    Einnig ber aðildarríki að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að atvinnurekandi, sem að jafnaði hefur næturvinnustarfsmenn í þjónustu sinni, veiti hlutaðeigandi stjórnvaldi upplýsingar um næturvinnuna ef þeirra er óskað.
    Loks skulu aðildarríkin gera nauðsynlegar ráðstafanir til hagsbóta fyrir næturvinnustarfsmenn og þá sem stunda vaktavinnu þannig að sérstakt tillit sé tekið til þeirra við öryggis- og heilsugæslu.

    13. gr. um vinnutilhögun.
    Í greininni er sett almenn leiðbeiningarregla fyrir aðildarríkin um að þau geri ráðstafanir til að tryggja að atvinnurekandi, sem hyggst haga vinnu eftir ákveðinni tilhögun, hafi í huga að aðlaga vinnuna starfsmanninum. Markmiðið á að vera að draga úr einhæfni starfa og lina áhrif þess að störf eru unnin með fyrir fram ákveðnum hraða.

Ýmis ákvæði.


    15. gr. um hagstæðari ákvæði.
    Í greininni er tekið fram að ákvæði tilskipunarinnar skuli ekki skerða hagstæðari skipan mála sem verndar öryggi og heilsu starfsmanna, t.d. samkvæmt lögum einstakra aðildarríkja eða hafi verið samið um slíkt í kjarasamningum.

Viðmiðunartímabil.


    16. gr. um viðmiðunartímabil.
    Í 16. gr. tilskipunarinnar er að finna ákvæði um lengd viðmiðunartímabila sem leggja skal til grundvallar við útreikning meðalvinnutíma. Viðmiðunartímabil við ákvörðun á vikulegum hvíldartíma er þannig að hámarki 14 dagar. Varðandi vikulegan hámarksvinnutíma er það fjórir mánuðir og skal greitt orlof og veikindaleyfi ekki hafa áhrif á meðaltalsútreikninginn. Viðmiðunartímabil varðandi lengd næturvinnu skal hins vegar ákveðið í samráði við aðila vinnumarkaðarins eða með kjarasamningum. Falli vikulegur 24 stunda lágmarkshvíldartími saman við viðmiðunartímabilið skal ekki telja
hann með við meðaltalsútreikninginn. Heimild til frávika er í 17. gr.

Frávik.


    17. gr. um frávik.
    Tilskipunin heimilar samkvæmt ákvæðum sínum ýmis frávik frá fyrrgreindum reglum um hvíldar- og vinnutíma og viðmiðunartímabil. Tilgangurinn er að veita möguleika á að aðlaga reglur tilskipunarinnar þeim aðstæðum sem fyrir hendi eru í hlutaðeigandi aðildarríki.
    Að nokkru leyti hefur þegar verið gerð grein fyrir mögulegum frávikum varðandi hvern einstakan efnisþátt. Hér á eftir verður fjallað um þessar reglur í heild en þær eru í meginatriðum ferns konar:
    Í 1. mgr. 17. gr. er að finna heimild fyrir aðildarríkin til að víkja frá reglum tilskipunarinnar um daglegan hvíldartíma, hlé, vikulegan hvíldartíma, hámarksvinnutíma á viku, lengd næturvinnu og viðmiðunartímabil þegar lengd vinnutímans verður ekki mæld eða fyrir fram ákveðin vegna sérstakra eiginleika starfsins eða starfsmenn geta sjálfir ákveðið vinnutímann. Þetta á einkum við stjórnendur (managing executives), starfsmenn innan sömu fjölskyldu og þá sem starfa á vegum kirkna og trúfélaga. Ávallt verður þó að gæta almennra meginreglna um öryggis- og heilsuvernd starfsmanna.
    Samkvæmt 2. mgr. er í ákveðnum tilvikum heimilt að víkja frá reglum tilskipunarinnar um daglegan hvíldartíma, hlé, vikulegan hvíldartíma, lengd næturvinnu og viðmiðunartímabil með heimild í lögum, reglugerðum, stjórnvaldsfyrirmælum eða kjarasamningum að því tilskildu að hlutaðeigandi starfsmenn fái samsvarandi hvíldartíma í staðinn eða í undantekningartilvikum, verði því ekki við komið, viðeigandi vernd.
    Með heildarkjarasamningum eða samkvæmt þeim reglum sem þar eru settar og með samningum við einstök stéttarfélög má víkja frá reglum um daglegan hvíldartíma, hlé, vikulegan hvíldartíma, lengd næturvinnu og viðmiðunartímabil. Sem fyrr gildir að hlutaðeigandi starfsmenn skulu fá samsvarandi hvíldartíma í staðinn. Önnur skilyrði eru ekki tilgreind. Aðildarríkjunum er hins vegar heimilt að setja nánari reglur um það hvernig aðilar vinnumarkaðarins skulu beita þessari heimild.
    Þá eru settar sérstakar reglur varðandi lengd viðmiðunartímabils vegna vikulegs hámarksvinnutíma. Frávik, sem heimilt er að ákveða með lögum eða kjarasamningum samkvæmt þeim heimildum sem taldar eru í 1.–3. tölul. hér að framan, má ekki verða til þess að viðmiðunartíminn verði lengri en sex mánuðir. Aðildarríkin geta þó ákveðið að leyfa að samið sé um 12 mánaða viðmiðunartímabil í kjarasamningum. Til þess þurfa þá að liggja hlutlægar eða tæknilegar ástæður eða starfið sé þess eðlis.
    Af hálfu fulltrúa ESB hefur verið tekið fram að skráin yfir frávik í 17. gr. sé ekki tæmandi.

     B-liður 1. mgr. 18. gr. Heimild aðildarríkja til að undanskilja hámarksvinnutímareglur tilskipunarinnar.
    Samkvæmt b-lið 1. mgr. 18. gr. getur aðildarríki látið vera að beita ákvæðum tilskipunarinnar um hámarksvinnutíma ef það virðir almennu meginreglurnar um öryggis- og heilsuvernd starfsmanna. Skilyrði er einnig að það tryggi að enginn vinnuveitandi krefjist þess að starfsmaður vinni meira en 48 klst. á viku að jafnaði á fjögurra mánaða viðmiðunartímabili nema með samþykki starfsmanns. Hlutaðeigandi ríki skal einnig tryggja að starfsmaðurinn sé ekki látinn gjalda neitunar, virkt eftirlit sé með vinnutíma starfsmanna sem vinna slíka vinnu, m.a. með því að skrár yfir þá séu til reiðu fyrir vinnueftirlit, og að yfirvöld hafi heimild til að banna eða takmarka möguleika starfmanna til að vinna meira en 48 stundir að meðaltali á viku á fjórum mánuðum. Sérstök athygli er á því vakin að ekki er hægt að nýta saman heimildir til frávika skv. 17. og 18. gr. tilskipunarinnar hvað varðar hámarksvinnutíma.
    Þetta ákvæði á að koma til endurskoðunar eftir sjö ár.

Lokaákvæði, gildistaka.


    Tilskipuninni skal hrint í framkvæmd eigi síðar en 23. nóvember 1996. Fyrir þann tíma skulu aðildarríkin hafa samþykkt nauðsynleg lög og stjórnsýslufyrirmæli eða fullvissað sig um að aðilar vinnumarkaðarins hafi gengið frá samningum þar um.

Eftirlit.


    Í tilskipuninnni er ekki fjallað ítarlega um eftirlit með framkvæmd hennar að frátöldum ákvæðum 18. gr. um eftirlit lögbærra yfirvalda velji aðildarríki að láta vera að beita ákvæðum tilskipunarinnar um hámarksvinnutíma. Að öðru leyti er aðilarríkjunum látið eftir að útfæra eftirlitsþáttinn.
    Í 5. mgr. 18. gr. er kveðið á um að á fimm ára fresti taki aðildarríkin saman fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins skýrslu um framkvæmd tilskipunarinnar. Eðlilegt er að minna á í þessu samhengi að íslensk stjórnvöld eru samkvæmt EES-samningnum háð eftirliti Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) hvað varðar framkvæmd tilskipunarinnar í heild.

Samantekt.


    Draga má meginreglur tilskipunarinnar saman þannig að aðildarríkjunum sé skylt:
—    að tryggja sérhverjum starfsmanni 11 klst. samfelldan daglegan hvíldartíma á hverju 24 klst. tímabili (3. gr.);
—    að tryggja að starfsmenn eigi rétt á hvíldarhléi ef daglegur vinnutími er lengri en 6 klst. (4. gr.);
—    að tryggja að starfsmenn eigi rétt á samfelldum 24 klst. hvíldartíma á hverju sjö daga tímabili til viðbótar við hvíld skv. 3. gr. (5. gr.);
—    að tryggja að virkur vikulegur vinnutími sé takmarkaður og að meðalvinnustundafjöldi fari ekki yfir 48 klst. að yfirvinnu meðtalinni (6. gr.);
—    að tryggja öllum launamönnum rétt á árlegu fjögurra vikna launuðu leyfi (7. gr.);
—    að tryggja að venjulegur vinnutími næturvinnustarfsmanns fari ekki að jafnaði yfir 8 klst. á hverju 24 klst. tímabili og að þetta viðmið sé hámark ef starfi fylgir mikið andlegt eða líkamlegt álag (8. gr.);
—    að tryggja rétt næturvinnustarfsmanna til ókeypis heilbrigðismats og, ef þess er kostur, tilfærslu í dagvinnustörf ef rekja má heilsuleysi þeirra til næturvinnunnar (9. gr.).
    Við aðstæður sem tilgreindar eru í tilskipuninni má víkja frá þessum meginreglum hennar.

4. Íslenskar lagareglur og ákvæði samninga.


Inngangur.


    Í íslenskum lögum eru ekki bein ákvæði um hámarksvinnutíma. Gildandi lög byggja á því að vernda starfsmenn gegn óhóflega löngum vinnutíma með því að tryggja þeim lágmarkshvíld. Helstu ákvæði um vinnutíma og hvíldartíma er að finna í lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Í lögum nr. 88/1971 er kveðið á um að í hverri viku skuli ekki vera fleiri en 40 dagvinnutímar sem vinna beri á virkum dögum á því dagvinnutímabili sem aðilar koma sér saman um. Um vinnutíma er að öðru leyti fjallað í kjarasamningum.

Ákvæði laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.


    Ákvæði um hvíldartíma og frídaga eru í IX. kafla laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Samkvæmt 52. gr. laganna skal haga vinnutíma þannig að á hverjum sólarhring, reiknað frá byrjun vinnudags, fái starfsmenn a.m.k. 10 stunda samfellda hvíld. Samkvæmt 2. mgr. greinarinnar er heimilt að stytta hvíldartímann í átta stundir með samkomulagi milli aðila vinnumarkaðarins þegar um er ræða vaktavinnu, störf að landbúnaði eða björgun verðmæta frá skemmdum, svo sem sjávarafla. Skv. 53. og 54. gr. er hægt að víkja enn frekar frá ákvæðum um hvíldartíma að uppfylltum nánar tilgreindum skilyrðum.

Ákvæði laga um vinnutíma opinberra starfsmanna.


    Fjallað er um vinnutíma starfsmanna og skipulag vinnutímans í nokkrum greinum laga nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, en með mismunandi hætti.
    Samkvæmt 31. gr. laga nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkins, er starfsmanni ríkisins skylt að vinna yfirvinnu sem nemur allt að þriðjungi af lögmæltum vikulegum vinnutíma sé þess óskað. Mörg sveitarfélög hafa sett hliðstæðar reglur í samþykktum sínum um réttindi og skyldur starfsmanna. Í 73. gr. laga nr. 8/1986 eru starfsmenn við stjórnsýslu sveitarfélaga sagðir hafa réttindi og skyldur opinberra starfsmanna með tilvísun í framangreind lög um ríkisstarfsmenn.
    

Ákvæði kjarasamninga.


    Almennt er vikulegur virkur vinnutími samkvæmt kjarasamningum 37 stundir og fimm mínútur. Í samningum er kveðið á um vinnutíma, hvíldartíma, vaktir og hlé. Samkvæmt samkomulagi ASÍ við samtök atvinnurekenda, sem byggðist á lögum nr. 46/1980, ber að haga vinnutíma starfsmanna þannig að á hverjum sólarhring fái þeir a.m.k. 10 stunda samfellda hvíld. Heimilt er að haga vöktum þannig að samfelld hvíld fari niður í átta stundir. Í samkomulaginu er t.d. ákvæði sem tekur til björgunar verðmæta frá skemmdum og er þá heimilt að vinna samfellt í allt að 16 stundir á sólarhring. Í þeim tilvikum þegar mikill sjávarafli berst að landi er heimilt að takmarka samfelldan hvíldartíma við átta stundir.
    Samtök opinberra starfsmanna og fjármálaráðuneytið hafa ekki gengið frá samkomulagi samkvæmt heimild í lögum nr. 46/1980. Hins vegar eru í kjarasamningum opinberra starfsmanna ákvæði um átta stunda lágmarkshvíld á hverjum 24 stundum sem takmarkar vinnutíma við 16 stundir að meðtöldum matar- og kaffihléum. Vaktavinnumenn hjá hinu opinbera eiga ekki fortakslausan rétt til matar- og kaffihléa.
    Takmarkanir þær í kjarasamningum, sem hér hefur verið fjallað um, eru ekki afdráttarlausar í þeim skilningi að unnt er að brjóta þær enda komi þá til sérstakar greiðslur.
    Í mörgum tilvikum eru í gildi kjarasamningar um vaktavinnufyrirkomulag. Þannig er t.d. um vaktafyrirkomulag í fiskmjölsverksmiðjum, á bensínstöðvum og vinnutíma lögreglumanna, lækna, hjúkrunarfólks og fleiri stétta.

5. Lengd vinnutíma á Íslandi.


    Nefndin hefur freistað þess að afla gagna sem geta leitt í ljós raunverulega lengd vinnutíma á Íslandi. Helstu aðilar, sem afla upplýsinga um vinnutíma, eru kjararannsóknarnefnd, Hagstofa Íslands og Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Nefndin er sammála um að þær upplýsingar, sem liggja fyrir, séu mjög ófullkomnar og leyfi ekki að dregnar séu af þeim mjög víðtækar upplýsingar um raunverulegan vinnutíma landsmanna. Annars vegar er um að ræða upplýsingar sem byggja á greiddum vinnustundum. Gallinn við þessar upplýsingar er sá að mjög oft er greiddur vinnutími lengri en raunverulega unnar stundir. Þetta gildir oft um vaktavinnufólk. Hins vegar er um að ræða upplýsingar sem byggja á spurningakönnunum þar sem launamaðurinn er spurður um lengd vinnutímans. Í því tilviki gleymist oft að draga frá matar- og kaffihlé þannig að uppgefinn vinnutími verður einnig lengri. Af þessu leiðir að ekki eru til áreiðanlegar upplýsingar um raunverulegan vinnutíma á Íslandi. Hins vegar virðast tiltækar upplýsingar benda til þess að almennur vinnutími fari fram úr því sem mælt er fyrir um í tilskipun Evrópusambandsins. Með þessum fyrirvara fer hér á eftir almenn umfjöllun um tiltækar rannsóknir á þessu sviði. Í fylgiskjölum með skýrslunni er að finna töflur um lengd vinnutíma.

Upplýsingar kjararannsóknarnefndar um vinnutíma.


    Kjararannsóknarnefnd birtir ársfjórðungslega upplýsingar um meðalvinnutíma og dreifingu hans. Niðurstöðurnar byggja annars vegar á úrtaki 11–12 þúsund starfsmanna hjá liðlega 100 fyrirtækjum á almennum vinnumarkaði og hins vegar á u.þ.b. 5 þúsund starfsmönnum hjá ríki og Reykjavíkurborg sem eru félagsmenn stéttarfélaga innan ASÍ. Þetta lætur nærri því að vera fjórðungur félagsmanna viðkomandi stéttarfélaga.
    Meðalvinnutími miðast við fólk í fullu starfi sem skilgreint er sem sá hluti úrtaksins sem skilar meira en 400 dagvinnustundum á ársfjórðungi eða sem svarar 31 stund á viku að jafnaði. Reiknað er hlutfall yfirvinnustunda af dagvinnustundum viðkomandi hóps og því hlutfalli síðan bætt við fulla dagvinnu. Sé dæmi tekið af einstaklingi sem skilar 500 dagvinnustundum og 100 yfirvinnustundum reiknast yfirvinnuhlutfallið 20% eða átta yfirvinnustundir á viku. Niðurstaða útreikninga um vikulegan vinnutíma viðkomandi væri því 48 stundir (40 í dagvinnu og átta í yfirvinnu).
    Þessi aðferð hefur bæði kosti og galla. Kostirnir eru þeir að sneitt er hjá vandamálum eins og þeim að í úrtakinu eru starfsmenn stöðugt að hefja störf eða hætta störfum og að mjög mismunandi er hvort og með hvaða hætti fyrirtæki skrá fjarvistir af ýmsum toga. Gallinn við aðferðina er sá að ekki er um meðaltal vinnutíma að ræða heldur nær því sem kallast gæti dæmigerður (greiddur) vinnutími. Þannig er meðalvinnutími fólks í 100% starfi ofmetinn sem svarar greiddum en óunnum neysluhléum (kaffitímum) og fjarvistum vegna veikinda o.fl. Meðalvinnutíminn er jafnframt ofmetinn vegna þess að ekki er reiknað með þeim sem eru í minna en 100% starfshlutfalli.
    Meðalvinnutími alls landverkafólks hefur verið u.þ.b. 46,5 stundir undanfarin ár samkvæmt vinnutímakönnun kjararannsóknarnefndar. Séu greidd neysluhlé, 3 stundir á viku, og veikindafjarvistir, 2 stundir á viku að jafnaði, dregin frá fæst sú niðurstaða að unnar (ekki greiddar) stundir fólks í fullu starfi hafi verið 41,5.
    Í fskj. IV er sýnd dreifing vinnutíma fólks í fullu starfi. Fram kemur að 87% landverkafólks í fullu starfi fá greiddar færri en 55 stundir að jafnaði á viku sem þýðir að unnar stundir eru tæplega 50. Vinnutímatilskipunin mun því ekki snerta þennan hóp en hún snertir þau 13% sem eftir standa. Í þeim hópi eru verkamenn fjölmennastir.
    Kjararannsóknarnefnd birtir einnig dreifingu vinnutíma fólks í föstu starfi en svo er það fólk skilgreint sem er með í úrtakinu þrjá ársfjórðunga í röð og eru niðurstöður byggðar á miðársfjórðungnum. Þetta er gert til að eyða áhrifum þess að hluti úrtaksins hefur störf eða hættir störfum á hverjum ársfjórðungi. Á hinn bóginn er vinnutíminn ekki hækkaður upp með sama hætti og við útreikning meðalvinnutíma. Þessi dreifing sýnir allt aðra mynd en þegar einungis fullvinnandi eru skoðaðir og er niðurstaðan sú að hámarksvinnutími vinnutímatilskipunarinnar snerti um 5% landverkafólks.

Kjararannsóknarnefnd opinberra starfsmanna (KOS).


    KOS birtir reglulega upplýsingar um greiðslur eftir launategundum og reiknuðum fjölda stöðugilda starfsmanna ríkisins og Reykjavíkurborgar. Miðast flokkunin við heildarsamtök og stéttarfélög starfsmanna. KOS safnar hvorki kerfisbundið upplýsingum um vinnutíma né upplýsingum um greiðslur eftir því hvort um er að ræða vinnu á dagvinnutíma eða utan hans. Í fskj. VI er yfirlit yfir ársverk starfsmanna ríkisins árin 1993 og 1994.

Vinnutími samkvæmt könnunum Hagstofu Íslands.


    Hagstofa Íslands hóf gerð reglubundinna kannana á vinnumarkaðinum í apríl 1991. Tvisvar á ári er leitað símleiðis til um 4.400 einstaklinga á aldrinum 16–74 ára sem valdir eru af handahófi úr þjóðskrá og þeir spurðir um stöðu sína á vinnumarkaðinum. Lengd vinnutíma er meðal þess sem spurt er um. Niðurstöður kannana Hagstofu Íslands er að finna í töflum í fskj. V með þessari skýrslu.
    Samráðsnefndin vekur á því athygli að könnun Hagstofunnar er spurningakönnun þar sem tilteknar spurningar eru lagðar fyrir launafólk um það hversu langan vinnutíma það vinni. Niðurstaðan gæti orðið önnur ef beitt væri reglum tilskipunar ESB við útreikning vinnutímans. Hins vegar er nefndin sammála um að upplýsingar Hagstofunnar benda til þess að vinnutími í a.m.k. sumum starfsgreinum sé umfram það sem tilskipunin leyfir.

Vinnutími samkvæmt könnunum Félagsvísindastofnunar.


    Félagsvísindastofnun hefur frá árinu 1988 af og til staðið fyrir lífskjarakönnunum. Þær hafa verið byggðar á viðtölum við einstaklinga sem koma úr hendingarúrtaki 2.000 manns á aldrinum 16–75 ára. Úrtakið er tekið úr þjóðskrá. Lengd vinnutíma er meðal þess sem spurt er um í könnuninni.

Vinnutími háskólamanna.


    Takmarkaðar upplýsingar eru til um vinnutíma háskólamanna. Árið 1990 framkvæmdi Gallup á Íslandi könnun á kjörum háskólamanna. Könnunin var unnin fyrir kjarasamanburðarnefnd fjármálaráðherra og BHMR. Hún náði til 700 eintaklinga sem voru í opinberri þjónustu og starfsmanna hjá einkafyrirtækjum. Í könnuninni var þess freistað að komast að lengd vinnutíma háskólamanna. Helstu niðurstöður voru þær að heildarvinnustundafjöldi reyndist vera 180 til tæplega 195 stundir á mánuði. Könnunin leiddi í ljós sérstaklega langan vinnutíma hjá heilbrigðisstéttum.

6. Helstu áhrif þess að tilskipunin taki gildi á Íslandi.


    Eins og fram hefur komið eru vinnutímarannsóknir á Íslandi skammt á veg komnar og því erfitt að segja eitthvað með fullri vissu um endanleg áhrif tilskipunarinnar á lengd vinnutíma. Svarið verður enn torfundnara í ljósi þess að ekki eru fullljós áhrif þeirra frávika sem tilskipunin gefur möguleika á og hvaða áhrif þau geta haft á framkvæmdina.
    Smæð þjóðar, dreifð byggðar og sveiflukenndur afli sjávarútvegs, sem hefur verið undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar, kallaði á miklar sveiflur í vinnutíma hér á landi. Þjóðin ólst upp við óstöðuga vinnu sem einkenndist af óhóflegum vinnutíma sem gat varað sólarhringum saman, með dauðum köflum inn á milli. Árstíðarbundnar sveiflur í landbúnaði auk óstöðugs tíðarfars eru einnig kunnar þótt þær hafi ekki verið jafnmiklar og í sjávarútvegi. Þá hefur töluverður skortur á sérhæfðu eða sérmenntuðu vinnuafli oft skapað vandamál við skipulagningu vinnunnar hér á landi líkt og víða annars staðar á jaðarsvæðum. Af því leiðir mikið vinnuálag á þá starfsmenn sem eru tiltækir.
    Á þessu hefur orðið mikil breyting með þéttingu byggðar, almennri menntun, bættum samgöngum og umfram allt byltingu í geymslu sjávarfangs. Þróun verktækni við bygginga- og mannvirkjagerð og vélvæðing í landbúnaði hafa einnig haft umtalsverð áhrif í þessa átt. Því ætti að vera unnt að skipuleggja flest störf innan þess ramma sem tilskipunin setur.
    Þótt rannsóknir séu einnig fátæklegar þegar kemur að tengslum milli afkasta og verðmætasköpunar og lengd vinnutíma má færa fyrir því sterk rök að verðmætasköpun vaxi ekki í neinu samræmi við lengd vinnutíma. Þannig má ætla að langur vinnudagur svo vikum skiptir, hvað þá mánuðum eða árum, hafi slæm áhrif á afköst og gæði vinnunnar. Því má jafnvel halda fram að almenn stytting vinnutíma samfara endurskipulagningu vinnunnar geti leitt til aukinna afkasta og meiri verðmætasköpunar þegar á heildina er litið.
    Þá eru uppi skoðanir um að samdráttur í yfirvinnu gæti skapað atvinnutækifæri og þar með dregið úr atvinnuleysi. Allir stjórnmálaflokkar og aðilar vinnumarkaðar eru sammála um að æskilegt sé að fjölga atvinnutækifærum og útrýma atvinnuleysi.
    Ekki þarf að eyða löngu máli í heilsufarslegar ástæður þess að draga úr löngum vinnutíma en ætla má að samdráttur í vinnutíma hafi í för með sér bætta heilsu og þar með, að öðru óbreyttu, lægri kostnað við heilsugæslu landsmanna.
    Í ljósi sögunnar má ætla að afleiðingar tilskipunarinnar muni að miklu leyti ráðast af framkvæmd hennar. Ef hún á að ná markmiðum sínum er mikilvægt að áhersla sé lögð á fræðslu um efni hennar og nauðsyn þess að henni sé fylgt eftir í raun. Annars er hætta á að árangur verði takmarkaður. Það er verðugt verkefni fyrir stjórnvöld og aðila vinnumarkaðarins að beita öllum tiltækum ráðum til að kynna efni tilskipunarinnar og þeirra laga og samninga sem komið verður á í kjölfar hennar.

7. Tillögur.


Breytingar á lögum.


    Eins og þegar hefur komið fram í skýrslunni felast í vinnutímatilskipuninni reglur sem ekki eru í fullu samræmi við gildandi lög og kjarasamninga svo sem meginreglan um 11 stunda hvíld á sólarhring. Þá er þar einnig kveðið á um nýmæli sem ekki eru í gildandi reglum hér á landi. Á það fyrst og fremst við um hámarksvinnutíma á viku. Ljóst er því að gildistaka tilskipunarinnar kallar á endurskoðun á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, og lögum og samþykktum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna auk kjarasamninga.

Framkvæmd með samningum aðila vinnumarkaðarins.


    Samkvæmt ákvæðum tilskipunarinnar er heimilt að hrinda henni í framkvæmd með kjarasamningum. Fyrir liggur að Alþýðusamband Íslands hefur óskað eftir viðræðum við Vinnumálasambandið og Vinnuveitendasamband Íslands um efni tilskipunarinnar. Einnig hafa Bandalag háskólamanna og BSRB sett fram hliðstæða ósk gagnvart fjármálaráðuneytinu. Bæði Vinnumálasambandið og Vinnuveitendasambandið hafa lýst því yfir að samtökin séu tilbúin til slíkra viðræðna nú þegar. Af hálfu fjármálaráðuneytisins er hafinn undirbúningur málsins.
    Með tilliti til þessa telur nefndin eðlilegt að gefa aðilum vinnumarkaðarins nokkurt svigrúm til að ná samkomulagi sín á milli og freista þess þannig að laga reglur tilskipunarinnar að þeim aðstæðum sem eru á íslenskum vinnumarkaði, t.d. þrjá mánuði. Að þeim tíma liðnum hefjist félagsmálaráðuneytið handa við undirbúning nauðsynlegrar lagasetningar sem taki mið af því sem um semst innan ramma tilskipunarinnar.

Mæling á lengd virks vinnutíma.


    Í þessari skýrslu kemur fram að verulega skortir á upplýsingar um lengd virks vinnutíma eins og hann er skilgreindur samkvæmt tilskipun nr. 93/104/ESB. Samráðsnefndin vekur athygli á að með gildistöku tilskipunarinnar verður aðildarríki að geta lagt fram gögn um virkan vinnutíma. Nefndin telur að það sé mjög brýnt að einum aðila verði þegar í stað falið að halda til haga upplýsingum um þetta efni og sjá um að þær séu aðgengilegar stjórnvöldum sem og öðrum hagsmunaaðilum.

Aðgerðaáætlun.


    Lagt er til að samin verði sérstök aðgerðaáætlun til að fylgja tilskipuninni eftir. Í henni verði kveðið á um upplýsingaherferð stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins sem hafi að markmiði að kynna efni tilskipunarinnar. Enn fremur verði í áætluninni lýsing á ábyrgð hvers aðila um sig og ábendingar um það hvernig framfylgja beri ákvæðum hennar.



Fskj. I.

Skrá yfir fulltrúa í samráðsnefnd félagsmálaráðuneytisins


og helstu samtaka á vinnumarkaði um reglur


á sviði félagsmála sem gilda á EES.


    Félagsmálaráðherra skipaði 23. ágúst 1993 samráðsnefnd til að fjalla um framkvæmd reglna á sviði félagsmála sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu. Nefndinni var einnig falið það hlutverk að vera ráðgefandi við mótun á afstöðu íslenskra stjórnvalda til tillagna að nýjum reglum á sviði félagsmála sem kunna að taka gildi á efnahagssvæðinu.
    Í nefndinni eiga sæti:
    Fulltrúi félagsmálaráðherra og formaður, Gylfi Kristinsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu.
    Fulltrúi Alþýðusambands Íslands: Halldór Grönvold, skrifstofustjóri ASÍ.
         Varamaður hans er Ari Skúlason, framkvæmdastjóri ASÍ.
    Fulltrúi Bandalags háskólamanna: Birgir Björn Sigurjónsson, framkvæmdastjóri BHM.          Varamaður hans er Martha Á. Hjálmarsdóttir.
    Fulltrúi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja: Björn Arnórsson, hagfræðingur BSRB.
         Varamaður hans er Jónas Magnússon.
    Fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga: Jón G. Kristjánsson starfsmannastjóri.
         Varamaður hans er Lúðvík Hjalti Jónsson viðskiptafræðingur.
    Fulltrúi fjármálaráðuneytisins: Gunnar Björnsson deildarstjóri.
         Varamaður hans er Guðmundur H. Guðmundsson deildarstjóri.
    Fulltrúi utanríkisráðuneytisins: Björgvin Guðmundsson sendifulltrúi.
         Varamaður hans er Axel Nikulásson sendiráðsritari.
    Fulltrúi Vinnumálasambandsins: Jón Rúnar Pálsson lögfræðingur.
         Varamaður hans er Jóngeir Hlinason framkvæmdastjóri.
    Fulltrúi Vinnuveitendasambands Íslands: Hrafnhildur Stefánsdóttir, lögfræðingur VSÍ.          Varamaður hennar er Óskar Maríusson efnaverkfræðingur.
    Skipun samráðsnefndarinnar er ótímabundin.
    


Fskj. II.


Bréf félagsmálaráðherra 2. júní 1995 til samráðsnefndar um reglur


á sviði félagsmála á Evrópska efnahagssvæðinu.


    Tilskipun Evrópusambandsins um skipulag vinnutíma nr. 93/104/ESB hefur verið undanfarna mánuði til umfjöllunar hjá íslenskum stjórnvöldum og í samráðsnefnd félagsmálaráðuneytisins og helstu samtaka á vinnumarkaði um framkvæmd reglna á sviði félagsmála á Evrópska efnahagssvæðinu. Í samráðsnefndinni komu þegar fram ábendingar frá fulltrúum samtaka atvinnurekenda um að efni tilskipunarinnar ætti mjög illa við aðstæður á íslenskum vinnumarkaði.
    Hér með er lagt fyrir samráðsnefndina að gera úttekt á áhrifum þess að framangreind tilskipun taki gildi á Evrópska efnahagssvæðinu. Þess er sérstaklega óskað að tekin verði saman greinargerð um breytingar á lögum og reglugerðum sem kann að leiða af gildistöku. Einkum er talið nauðsynlegt að varpa ljósi á áhrif af gildistöku tilskipunarinnar á skipulag vinnutíma opinberra starfsmanna, t.d. þeirra sem starfa að heilsugæslu, og að lagt verði mat á þann kostnaðarauka fyrir ríkissjóð sem hlýst af skipulagsbreytingum á starfsemi hins opinbera.
    Í tilskipuninni er gert ráð fyrir að við útreikning á meðalvinnutíma verði hægt að miða við mismunandi langan viðmiðunartíma. Til dæmis er gert ráð fyrir að forsenda þess að hægt verði að nýta lengsta viðmiðunartímann sé samþykki hlutaðeigandi starfsmanns og að við framkvæmd tilskipunarinnar sé byggt á heildarsamningum aðila vinnumarkaðarins.
    Í þessu sambandi er mikilvægt að samráðsnefndin freisti þess að upplýsa hvaða líkur eru á samkomulagi aðila vinnumarkaðarins um þetta efni og hvaða kostnaður hlýst af gildistöku samþykktarinnar fyrir atvinnulífið í heild.
    Það er mikilvægt að framangreindar upplýsingar liggi sem fyrst fyrir.

Páll Pétursson (sign)


___________



Berglind Ásgeirsdóttir (sign)




Fskj. III.

Tilskipun ESB nr. 93/104/ESB frá 23. nóvember 1993


um ákveðna þætti er varða skipulag vinnutíma.



(7 síður myndaðar.)



Fskj. IV.

Töflur frá kjararannsóknarnefnd sem sýna lengd vinnutíma.


    Tafla 2.11. sýnir dreifingu heildarvinnutíma fólks í fullu starfi á 2. ársfjórðungi 1995. Taflan sýnir einungis vinnutíma þeirra sem unnu fleiri en 400 dagvinnustundir og er vinnutíminn færður upp til samræmis við fulla dagvinnu.
    Tafla 2.12 sýnir raunverulegt vinnuframlag starfsmanna með því að taka einungis mið af vinnutíma þeirra einstaklinga sem voru í úrtakinu á 1. ársfjórðungi 1995 og unnu einnig hjá sama fyrirtæki á 4. ársfjórðungi 1994 og 2. ársfjórðungi. 1995. Þannig eru þeir sem hófu störf eða hættu á miðjum ársfjórðungnum teknir út. Niðurstaðan sýnir því meðalvinnutíma þeirra starfsmanna sem voru við störf allan ársfjórðunginn að frádregnum fjarvistum, svo sem vegna veikinda og orlofs.
    Tölurnar sýna uppsafnaðar prósentur.


(Tvær töflur myndaðar.)




Fskj. V.

Töflur frá Hagstofu Íslands sem sýna lengd vinnutíma.




(3 síður myndaðar.)






Fskj. VI.

Fjármálaráðuneytið,
starfsmannaskrifstofa:


Yfirlit yfir ársverk starfsmanna ríkisins árin 1993–94.


Meðaltal ársverka janúar til desember 1993 miðað við meðaltal


janúar til desember 1994, skipt eftir ráðuneytum og tegundum.


(6. febrúar 1995.)






(4 síður myndaðar.)


Neðanmálsgrein: 1
Utanríkisráðuneytið (sendiráð Íslands í Brussel) sendi 21. janúar 1994 minnisblað þessa efnis til formanna EFTA og ESB í vinnuhópi IV varðandi afstöðu Íslands til tilskipunar 93/104/ESB.
Neðanmálsgrein: 2
Tilskipanir, sem settar voru fyrir árið 1992, eru auðkenndar með skammstöfuninni EB eða EBE fyrir Evrópubandalagið. Árið 1992 var nafni bandalagsins breytt í Evrópusambandið og skammstöfunin ESB tekin upp. Þessi skammstöfun er notuð í skýrslunni í því skyni að gæta samræmis.
Neðanmálsgrein: 3
Fjallað er um umbætur á lífskjörum og bætt starfsskilyrði í 10. mgr. í yfirlýsingunni um grundvallarréttindi launafólks frá 9. desember 1989.
Neðanmálsgrein: 4
Í þessu sambandi er rétt að vekja á því athygli að ákvæði í a-lið 118. gr. í Rómarsáttmálanum skapar lagagrundvöll fyrir aðgerðum Evrópusambandsins á sviði öryggis og hollustuhátta á vinnustöðum. Tilskipun nr. 89/391/ESB hefur að geyma almennar meginreglur um forvarnir gegn áhættu við störf og verndun öryggis og heilsu.
Neðanmálsgrein: 5
Í áliti sænskrar nefndar sem gerði úttekt á áhrifum þess að tilskipunin um skipulag vinnutíma taki gildi í Svíþjóð er vakin á því athygli að í tilskipuninni eru nefnd dæmi um starfsemi hins opinbera sem gæti fallið utan gildissviðsins. (EG:s arbetstidsdirektiv och dess konsekvenser för det svenska regelsystemet, SOU 1995:92, bls. 56.)
Neðanmálsgrein: 6
Vakin er athygli á því að vissir flutningar falla bæði utan tilskipunar um skipulag vinnutíma og reglugerðar ESB nr. 3820/85 frá 20. desember 1985 um samhæfingu tiltekinnar löggjafar á sviði félagsmála er varðar flutninga á vegum.
Neðanmálsgrein: 7
Sjá 3. mgr. 1. gr. tilskipunar 93/104/ESB um skipulag vinnutíma.
Neðanmálsgrein: 8
Á fundi með fulltrúum ESB í Brussel 18. janúar 1994 kom fram að öll skilyrði 1. tölul. 2. gr. þurfa að vera uppfyllt. Í því felst að tími sem starfsmaður er í raun að vinna, tími þar sem hann er til ráðstöfunar fyrir atvinnurekanda og tími sem varið er til að framkvæma skyldustörf telst vinnutími í skilningi tilskipunarinnar. Samkvæmt þessu teljast bakvaktir ekki til vinnutíma nema sá hluti þeirra þegar starfsmaður er í raun að vinna. Sama gildir um neyslutíma, þ.e. matar- og kaffitíma. Hann fellur utan vinnutímans. Af þessu leiðir að virkur vikulegur dagvinnutími að frádregnum kaffitímum er 37 stundir og 5 mínútur en ekki 40 stundir.
Neðanmálsgrein: 9
Á áðurnefndum fundi með fulltrúum framkvæmdastjórnar ESB 18. janúar 1994 var rætt um útreikning á vinnutíma vaktmanna á hótelum. Við þá umræðu kom fram að Evrópusambandið styðst að einhverju leyti við skilgreiningar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) í þessu sambandi. Í samþykkt ILO nr. 171 um næturvinnu er það notað yfir alla vinnu sem unnin er í a.m.k. 7 stundir samfleytt, þar með talið á tímabilinu frá miðnætti til kl. 5 að morgni. Orðið næturvinnumaður nær til starfsmanns sem ráðinn hefur verið til vinnu og vinnur verulegan hluta vinnutímans í næturvinnu þannig að það er umfram tiltekin mörk. Stjórnvöld hafa svigrúm til að setja reglur um það efni að höfðu samráði við hlutaðeigandi aðila vinnumarkaðarins. Þetta má einnig gera með ákvæðum í kjarasamningum.
Neðanmálsgrein: 10
Hér er stuðst við álit fulltrúa ESB sem kom fram á fundi með fulltrúum EFTA sem haldinn var í Brussel 18. janúar 1994, sjá nánar fundargerð 11. fundar samráðsnefndar félagsmálaráðuneytisins um reglur á sviði félagsmála á Evrópska efnahagssvæðinu.
Neðanmálsgrein: 11
Hér er stuðst við álit fulltrúa ESB sem kom fram á fundi með fulltrúum EFTA sem haldinn var í Brussel 18. janúar 1994, sjá nánar fundargerð 11. fundar samráðsnefndar félagsmálaráðuneytisins um reglur á sviði félagsmála á Evrópska efnahagssvæðinu.
Neðanmálsgrein: 12
Í 17. gr. er notað enska heitið „managing executives“.
Neðanmálsgrein: 13
Sbr. 17. gr. 1. tölul.
Neðanmálsgrein: 14
Sbr. 1. mgr. i-lið b-liðar 18. gr.
Neðanmálsgrein: 15
Sjá 7. gr. tilskipunarinnar.
Neðanmálsgrein: 16
Á fundinum með fulltrúum ESB í Brussel 18. janúar 1994 var að því spurt hvort aðilar vinnumarkaðarins getu samið um frávik frá einstökum ákvæðum tilskipunarinnar. Þessu var svarað þannig að aðildarríki verði að hrinda í framkvæmd öllum ákvæðum hennar. Sjá nánar fundargerð 11. fundar samráðsnefndar félagsmálaráðuneytins um reglur á sviði félagsmála á EES.
Neðanmálsgrein: 17
Rétt er að upplýsa að af hálfu ESB hefur komið fram sú túlkun á orðinu „frávik“ (derogation) að í því felist að framfylgja verði ákvæðum tilskipunarinnar en viss sveigjanleiki sé þó fyrir hendi. Í því felst ekki að heimilt sé að víkja til hliðar ákvæðum. Sjá nánar fundargerð 11. fundar samráðsnefndar félagsmálaráðuneytisins og helstu samtaka á vinnumarkaði. Fundurinn var haldinn 20. janúar 1994.
Neðanmálsgrein: 18
2. mgr. 17. gr. heimilar frávik í eftirtöldum tilvikum:
a. Frá reglum um daglegan hvíldartíma, hlé, vikulegan hvíldartíma, lengd næturvinnu og viðmiðunartímabil:
    1.    Í störfum þar sem vinnustaður er fjarri búsetustað eða langt á milli mismunandi vinnustaða starfsmanns.
    2.    Í störfum sem tengjast öryggis- og eftirlitsstörfum sem krefjast stöðugrar viðveru til verndar fólki og eignum, svo sem störfum öryggisvarða.
    3.    Í störfum sem fela í sér þörf á samfelldri þjónustu eða framleiðslu, einkum á sjúkrahúsum og dvalarstofnunum, í höfnum og á flugvöllum, við fjölmiðla, póst- og fjarskiptaþjónustu, sjúkra-, bruna- og almannavarnaþjónustu, vatns- og rafmagnsframleiðslu og dreifingu og sorphirðu, í atvinnugreinum þar sem ekki er unnt að rjúfa vinnuferli af tæknilegum ástæðum í rannsóknar- og þróunarvinnu og í landbúnaði.
    4.    Þegar útlit er fyrir aukavinnu, einkum í landbúnaði og ferða- og póstþjónustu.
b.    Frá reglum um daglegan og vikulegan hvíldartíma: Í vaktavinnu og þegar um er að ræða starfsemi þar sem vinnunni er skipt upp yfir daginn, einkum hvað varðar ræstingar.
Neðanmálsgrein: 19
Þetta kom fram á áðurnefndum fundi fulltrúa ESB og EFTA í Brussel 18. janúar 1994, sjá nánar fundargerð 11. fundar samráðsnefndar félagsmálaráðuneytisins og helstu samtaka á vinnumarkaði. Á sama fundi var skipst á skoðunum við fulltrúa ESB um skilgreiningu á „family“ í „family workers“. Því hefur verið svarað til að einstök ríki geti skilgreint hugtakið. Spurt hefur verið um muninn á „collective agreements“ og „agreements concluded between the two sides of industry“. Samkvæmt svörum fulltrúa ESB er því í báðum tilvikum átt við kjarasamninga samkvæmt íslenskri löggjöf.
Neðanmálsgrein: 20
Á því er vakin athygli að þeir sem gegna lögreglustörfum eða annarri öryggisþjónustu eru undanþegnir ákvæðinu um hámarksyfirvinnuskyldu í viku hverri.
Neðanmálsgrein: 21
Sjá samkomulag ASÍ og samtaka atvinnurekenda frá 10. apríl 1981.
Neðanmálsgrein: 22
Sjá Lífskjör og lífshættir á Íslandi, Stefán Ólafsson, Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands 1990, bls. 17.
Neðanmálsgrein: 23
Niðurstöður könnunarinnar eru birtar í BHMR Kjarafréttir: „Skýrsla Gallups“, Reykjavík í apríl 1991 (fjölrit).