Ferill 373. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. –
373
. mál.
651. Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um áhrif reglugerða um matvæli á innflutning frá löndum utan
Evrópska efnahagssvæðisins.
Frá Guðrúnu Helgadóttur.
Tóku reglugerð nr. 588/1993, um merkingu, auglýsingu og kynningu matvæla, og reglugerð nr. 586/1993, um merkingu næringargildis matvæla, gildi að loknum eins árs aðlögunarfresti samkvæmt ákvæðum til bráðabirgða?
Hafa reglugerðirnar haft áhrif á innflutning frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins?
Prentað upp.