Ferill 411. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 411 . mál.


708. Tillaga til þingsályktunar


um þátttöku Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu.

Flm.: Svanfríður Jónasdóttir, Jón Baldvin Hannibalsson, Ásta R. Jóhannesdóttir.


    Alþingi samþykkir að fela ríkisstjórninni að gera ráðstafanir til að Ísland verði aftur aðili að Alþjóðahvalveiðiráðinu. Mótmæli Alþingis við banni við hvalveiðum yrðu hluti þeirra ráðstafana.

Greinargerð.

    Ísland gerðist aðili að alþjóðasáttmálanum um skipan hvalveiða árið 1948 en samþykkti úrsögn úr Alþjóðahvalveiðiráðinu 1991 á þeim forsendum að ráðið starfaði ekki í samræmi við sáttmálann. Vera Íslands utan Alþjóðahvalveiðiráðsins hefur ekki orðið til þess að hvalveiðar yrðu hafnar hér við land að nýju.
    Þrátt fyrir að Ísland hafi sagt sig úr ráðinu á þeim forsendum að vera í ráðinu kæmi í veg fyrir sjálfbæra nýtingu hvalastofna og þrátt fyrir tilraun til að skapa möguleika á að hefja að nýju hvalveiðar í samtökum með Norðmönnum, Grænlendingum og Færeyingum (NAMMCO) hafa hvalveiðar ekki hafist. Í raun virðast minni möguleikar á því ef Ísland stendur utan Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC). NAMMCO hefur ekki orðið sá vettvangur sem vonir voru bundnar við m.a. vegna þess að Norðmenn hafa áfram starfað innan Alþjóðahvalveiðiráðsins og hafa nú í skjóli þess hafið hrefnuveiðar. Ekki eru líkur á að Norðmenn yfirgefi IWC, enda virðast þeir telja að staða þeirra til veiða yrði mun verri utan ráðsins. Þeir hafa m.a. bent á það sem merki um breytingar á afstöðu innan ráðsins að þeir skuli komast upp með að hefja hvalveiðar að nýju. Sé litið til stöðu Norðmanna virðist einsýnt að hagsmunum okkar væri betur borgið með því að vera einnig innan ráðsins. Japanir stunda einnig hvalveiðar í vísindaskyni. Þær veiðar fara fram þrátt fyrir veru þeirra í IWC og eru löglegar samkvæmt sáttmálanum. Á sama tíma hafa Íslendingar ekki veitt neinn hval.
    Það kom fram í greinargerð með þingsályktunartillögu ríkisstjórnar Davíðs Oddsonar frá 1994 um hvalveiðar að eftirlitsreglur tækju óhjákvæmilega mið af þeirri umfjöllun sem ætti sér stað og þeim ákvörðunum sem teknar væru innan Alþjóðahvalveiðiráðsins. Bæði í hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna og framkvæmdaáætlun Ríó-ráðstefnunnar er mælt fyrir um skyldu ríkja til samstarfs í þessum efnum og 65. gr. hafréttarsamningsins fjallar sérstaklega um þessar skyldur hvað varðar sjávarspendýr. Þar segir að ríki skuli „starfa saman með verndun sjávarspendýra í huga og [skuli] hvað hvali snertir einkum starfa á vettvangi viðeigandi alþjóðastofnana að verndun og stjórnun þeirra og rannsóknum á þeim“.


Prentað upp.

    Það er jafnframt ljóst að við gætum ekki selt Japönum hvalaafurðir þótt við hæfum veiðar á meðan við stöndum utan ráðsins. Samþykkt ráðsins frá áttunda áratugnum bannar að lönd innan ráðsins kaupi hvalaafurðir af ríkjum utan þess. Rökin fyrir því að standa utan ráðsins eru því harla léttvæg orðin þegar við verðum við allar okkar ákvarðanir að taka tillit til þeirrar stefnumótunar sem þar fer fram, hversu óvísindaleg sem okkur kann að finnast hún. Við erum bundin af ákvörðunum ráðsins hvort sem við erum utan þess eða innan. Möguleikar okkar til að hafa áhrif á þá stefnumótun eru mestir ef við eigum þar sæti.
    Innganga Íslendinga í Alþjóðahvalveiðiráðið, og þar með í samfélag þeirra þjóða sem í raun ráða úrslitum um hvalveiðar í heiminum, mun undirstrika vilja okkar til að undirgangast alþjóðlegar samþykktir í náttúruverndarmálum. Því telja flutningsmenn rétt að ganga aftur í Alþjóðahvalveiðiráðið, þrátt fyrir þá staðreynd að afstaða ráðsins til hvalveiða sé ekki einungis byggð á vísindalegum forsendum heldur einnig pólitískum.
    Alþingi samþykkti með naumum meiri hluta árið 1983 að nýta ekki rétt landsins til að gera fyrirvara við samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um tímabundna stöðvun veiða í atvinnuskyni, en slíkur fyrirvari hefði þýtt að Ísland hefði ekki verið bundið af henni. Sem lið í þeirri ákvörðun að ganga í ráðið aftur yrði Alþingi að samþykkja að gera slíkan fyrirvara, mótmæla banni við hvalveiðum, og yrði það þáttur í þeim ráðstöfunum sem samþykkt þessarar ályktunar felur í sér.