Ferill 416. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 416 . mál.


718. Fyrirspurn



til samgönguráðherra um úrbætur í öryggismálum sjómanna.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



    Hvernig og hvenær hyggst ráðherra bregðast við og bæta úr því ástandi í öryggismálum sjómanna sem fram kemur í skýrslu Siglingastofnunar Íslands um stöðugleika íslenskra fiskiskipa?
    Verða settar reglur um stöðugleika fiskiskipa sem gilda um öll skip, ný og gömul?
    Verður tryggt fé til að ljúka þeirri úttekt á stöðugleika fiskiskipa sem unnin var á árunum 1988–1993?