Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 20 . mál.


742. Skýrsla



forsætisráðherra um þróun launa og lífskjara á Íslandi á árunum 1991–1996, samkvæmt beiðni.

(Lögð fyrir Alþingi á 121. löggjafarþingi 1996–97.)



    Í októbermánuði á sl. ári óskuðu Ragnar Arnalds og fleiri þingmenn eftir skýrslu frá forsætisráðherra um þróun launa og lífskjara á Íslandi á árunum 1991–1996. Forsætisráðuneytið óskaði eftir því við Þjóðhagsstofnun að stofnunin annaðist gerð slíkrar skýrslu og fara svör við spurningum, er fram koma í skýrslubeiðninni, hér á eftir.

Inngangur.
    Á árunum 1991–1996 skipti mjög í tvö horn hvað hagvöxt varðar. Á fyrri hluta tímabilsins var samdráttur á kvarða þjóðartekna á mann um 5% 1992 og 1,8% 1993. Hins vegar glæddist hagvöxtur árin 1994 og 1995 og þjóðartekjur á mann jukust um 2,5% hvort árið og um 4% árið 1996. Í lok tímabilsins stóðu þjóðartekjur á mann hærra en í upphafi þess sem nemur 2,9%. Flestar hagstærðir mótuðust mjög af þessari þróun, þar á meðal kaupmáttur einstaklinga eins og rakið er síðar í þessari skýrslu.

Tafla 1. Nokkrar þjóðhagsstærðir 1990–1996.


Magnvísitölur á mann 100=1990.



Ár

Einkaneysla

Landsframleiðsla

Þjóðartekjur



1990           100
,0 100 ,0
100 ,0
1991           102
,9 100 ,1
101 ,4
1992           97
,1 95 ,6
95 ,8
1993           91
,9 95 ,4
94 ,1
1994           92
,7 98 ,0
96 ,5
1995           96
,4 99 ,5
98 ,9
1996           102
,1 104 ,1
102 ,9

Heimild: Þjóðhagsstofnun.

    Í þeim kjarasamningum sem gengið var til í febrúar 1990 náðist víðtæk samstaða milli samtaka launafólks, atvinnurekenda, ríkisvalds, banka og samtaka bænda og voru samningarnir kenndir við þessa samstöðu og nefndir þjóðarsáttarsamningar. Markmið samninganna var að tryggja kaupmátt og halda verðbólgu í skefjum. Samningarnir kváðu á um tiltölulega litlar launahækkanir, að dregið yrði úr gjaldskrárhækkunum opinberra fyrirtækja og að verð á búvörum skyldi haldast óbreytt um tiltekið skeið. Sá stöðugleiki í efnahagsmálum sem í kjölfarið fylgdi er vafalítið grunnur að þeim hagvexti sem nú hefur orðið og má í því sambandi sérstaklega horfa til áhuga erlendra fjárfesta.
    Mikil umskipti urðu í efnahagsstjórn á þessu tímabili. Hornsteinn þjóðarsáttarinnar var fast gengi krónunnar og var með þeirri stefnu lagður grunnur að hjöðnun verðbólgu. Umgjörð efnahagsákvarðana var einnig breytt og þær taka í dag mun meiri mið af markaðsaðstæðum en áður var. Þetta hefur m.a. haft í för með sér að aðhald í ríkisfjármálum og peningamálum hefur orðið mikilsverðara en áður var.
    Árangur af þessum umbótum í efnahagsmálum þjóðarinnar er umtalsverður og bent skal á það hér að þrátt fyrir allt var fórnarkostnaðurinn minni hérlendis en víða annars staðar. Atvinnuleysi jókst vissulega hröðum skrefum með minnkandi hagvexti og náði hámarki 1995 er atvinnuleysi nam 5% af vinnuafli. Atvinnuleysi er þó til muna minna hér á landi en erlendis og örugg teikn eru um að það fari enn minnkandi. Kaupmáttur minnkaði vissulega verulega, en þá þarf að hafa í huga að kaupmáttarfallið er ekki meira en gerst hefur á fyrri samdráttartímabilum.

1. Hvernig hefur kaupmáttur launa á Íslandi þróast á þessu tímabili?
    Tölur um laun og kaupmátt launa einstakra stétta á Íslandi eru takmarkaðar að mörgu leyti, einkum skortir á að upplýsingar séu samhæfðar og lítt eða ekkert er birt um laun og launakjör ýmissa stétta. Nefna má að engar tölur eru gefnar út um laun stjórnenda á einkamarkaði, en í úrtaki kjararannsóknarnefndar er öllum starfsmönnum á skrifstofu sem bera starfsheiti sem endar á „-stjóri“ sleppt. Engar reglulegar upplýsingar eru birtar um laun bankamanna og sama má segja um farmenn, svo tvær fjölmennar stéttir séu nefndar. Kjararannsóknarnefndir starfa bæði á samningssviði ASÍ og á opinbera markaðinum og birta þær báðar launaupplýsingar með reglulegum hætti. Hins vegar eru upplýsingarnar settar fram með ólíkum hætti og einnig er þeirra aflað með mismunandi aðferðum.

1.1 Kaupmáttur dagvinnulauna.
    Kaupmáttur dagvinnulauna þeirra stétta sem kjararannsóknarnefndirnar fjalla um er dreginn saman í töflu 2. Tekið skal fram að árið 1996 er áætlað og gildir það einkum fyrir ASÍ-hópinn.

Tafla 2. Kaupmáttur dagvinnulauna miðað við neysluverðsvísitölu.


Vísitölur 1990=100.



Áætlun


1990

1991

1992

1993

1994

1995

1996




Launavísitala      100
,0 101 ,5 100 ,7 98 ,1 97 ,8 100 ,5
104 ,6
Lágmarkslaun      100
,0 98 ,9 102 ,0 98 ,7 98 ,2 102 ,5
106 ,8
ASÍ                100
,0 101 ,3 103 ,3 100 ,4 99 ,7 102 ,2
106 ,2
Verkamenn      100
,0 101 ,6 101 ,7 99 ,6 100 ,0 103 ,2
105 ,0
Verkakonur      100
,0 105 ,5 103 ,0 104 ,3 102 ,5 105 ,6
105 ,9
Iðnaðarmenn      100
,0 100 ,3 102 ,4 99 ,3 96 ,6 98 ,0
97 ,9
Afgreiðslukarlar      100
,0 103 ,2 108 ,2 104 ,0 102 ,6 102 ,8
107 ,2
Afgreiðslukonur      100
,0 100 ,1 103 ,8 100 ,0 98 ,2 100 ,3
106 ,3
Skrifstofukarlar      100
,0 99 ,4 103 ,4 98 ,1 96 ,6 100 ,2
110 ,9
Skrifstofukonur      100
,0 101 ,5 107 ,9 105 ,1 109 ,0 111 ,3
126 ,2
BSRB      100
,0 100 ,6 101 ,6 100 ,7 100 ,3 103 ,1
108 ,4
BHM           100
,0 100 ,9 100 ,8 99 ,1 99 ,6 100 ,7
105 ,8
KÍ
               100 ,0 100 ,1 100 ,3 98 ,6 98 ,0 102 ,9 108 ,7

Heimild: Kjararannsóknarnefndir og Þjóðhagsstofnun.

1.2 Kaupmáttur ráðstöfunartekna; sundurliðaður eftir helstu atvinnustéttum.
    Ráðstöfunartekjur ráðast af margvíslegum þáttum öðrum en atvinnutekjum. Hér má nefna hjúskaparstöðu, hvernig tekjur skiptast milli hjóna, fjölda barna og vaxtagjöldum af húsnæðislánum. Loks þarf að taka tillit til annarra tekna fólks en af atvinnu og þess hvernig fólk nýtir ýmsa frádráttarliði sem bjóðast samkvæmt skattalögum.
    Hugtakið ráðstöfunartekjur er óskýrt í þessu samhengi. Það verður hér skilgreint sem atvinnutekjur að frádregnum tekjusköttum og viðbættum barnabótum og barnabótaauka. Nokkur vandkvæði eru með vaxtabætur (húsnæðisbætur í upphafi tímabilsins). Að því marki sem vaxtabætur aukast vegna hærri vaxtagjalda er vafasamt að álykta að ráðstöfunartekjur hafi aukist. Það er þó gert hér og þar fylgt gamalli hefð.
    Tafla 3 sýnir sundurliðun á ráðstöfunartekjum eftir hjúskapartöðu. Taflan er byggð á upplýsingum úr skattframtölum. Tekjuskattstofn er fenginn úr skattframtölum. Vaxtabætur eru samkvæmt álagningu og vaxtagjöldin eru áætluð eftir vaxtabótum.

Tafla 3. Tekjur, skattar og ráðstöfunartekjur á mánuði eftir hjúskaparstöðu.


Krónur á verðlagi hvers árs.







(Tafla 3. mynduð)



























    Ekki er hægt að skoða ráðstöfunartekjur eftir stéttum á neinn marktækan hátt þar sem skattframtölin gefa ekki færi á greiningu á tekjum einstakra stétta.

1.3 Kaupmáttur atvinnuleysisbóta.
    Atvinnuleysisbætur er jafnar kauptaxta Verkamannasambands fyrir fiskvinnslufólk með sjö ára starfsreynslu og er kaupmáttur þeirra því í aðalatriðum eins og kaupmáttur launa, eins og fram kemur í töflu 4.

Tafla 4. Atvinnuleysisbætur og kaupmáttur þeirra.




Atvinnuleysisbætur

Kaupmáttur

    

M.v. neyslu-

Þróun m.v.


Vísitala

verðsvísitölu

launavísitölu


Kr./mán.

1990=100

1990=100




1990          
42.023
100 ,0 100 ,0 100 ,0
1991          
45.101
107 ,3 100 ,5 99 ,0          
1992          
46.296
110 ,2 99 ,4 98 ,8
1993          
46.554
110 ,8 96 ,1 98 ,0
1994          
46.554
110 ,8 94 ,6 96 ,8
1995          
49.588
118 ,0 99 ,1 98 ,6
1996          
52.894
125 ,9 103 ,4 98 ,9

Heimild: Atvinnuleysistryggingasjóður og Þjóðhagsstofnun.

    Atvinnuleysisbætur eru lægri en skattleysismörk öll árin. Rétt er að vekja athygli á margvíslegum breytingum sem orðið hafa á lögum um Atvinnuleysistryggingasjóð á þessu tímabili sem hafa mikil áhrif á lífskjör atvinnulauss fólks. Með breytingum er gerðar voru við endurskoðun laganna árið 1993 öðluðust þeir sem standa utan stéttarfélaga rétt til bóta og með sömu lögum fengu sjálfstætt starfandi einstaklingar rétt til bóta. Þá voru bætur að nokkru tengdar tekjum. Ef tekjur viðkomandi síðustu 6 mánuði fyrir skráningu eru hærri að meðaltali en nemur tvöföldum atvinnuleysisbótum á mánuði, frestast þá réttur til bóta þar til meðaltekjur eru orðnar jafnháar tvöföldum bótum.

1.4 Kaupmáttur grunn elli- og örorkulífeyris.
    Vægi grunnlífeyris hefur farið minnkandi á síðari árum miðað við aðrar bætur sem elli- og örorkulífeyrisþegum stendur til boða. Kaupmáttur grunnlífeyris hefur þróast sem segir í töflu 5.

Tafla 5. Grunnlífeyrir aldraðra og öryrkja og kaupmáttur hans.




Kaupmáttur

Þróun elli- og


Elli- og örorku-

elli- og örorku-

örorkulífeyris


lífeyrir

lífeyris

m.v. laun




1990          
11.125
100 ,0 100 ,0
1991          
11.943
100 ,5 99 ,1     
1992          
12.260
99 ,5 98 ,8     
1993          
12.329
96 ,1 98 ,0
1994          
12.329
94 ,7 96 ,8
1995          
12.822
96 ,8 96 ,3
1996          
13.373
98 ,8 94 ,4

Heimild: Tryggingastofnun ríkisins og Þjóðhagsstofnun.

    Grunnlífeyrir varð tekjutengdur árið 1992. Tekjutengingin gildir þó aðeins gagnvart tekjum af öðru en lífeyri og tekjur maka skerða ekki lífeyri. Í töflunni að ofan er miðað við óskertan lífeyri. Jafnframt er í töflunni sýnd þróun grunnlífeyris miðað við launavísitölu Hagstofu Íslands. Sá samanburður leiðir í ljós að grunnlífeyrir hefur ekki hækkað í takt við launaþróun, sem rekja má til þess m.a. að ýmsar eingreiðslur hafa verið greiddar sem uppbót á tekjutryggingu og heimilisuppbætur en ekki á grunnlífeyri.

1.5 Kaupmáttur elli- og örorkulífeyris.
    Miðað er við einhleypan ellilífeyrisþega sem er með fulla tekjutryggingu og nýtur bæði almennra og sérstakra heimilisuppbóta. Til þess að eiga rétt á fullri sérstakri heimilisuppbót þarf viðkomandi lífeyrisþegi að vera alveg tekjulaus og búa einn.

Tafla 6. Elli- og örorkulífeyrir með tekjutryggingu og uppbót.




Kaupmáttur m.v.

Lífeyrir m.v.


neysluverðsvísitölur

þróun launavísitölu


Ellilífeyrir með

Örorkulífeyrir með

Ellilífeyrir með

Örorkulífeyrir með

    

tekjutryggingu

tekjutryggingu

tekjutryggingu

tekjutryggingu


og heimilis-

og heimilis-

og heimilis-

og heimilis-


uppbótum

uppbótum

uppbótum

uppbótum




1990          
100,0
100,0 100,0 100,0
1991          
102,0
102,0 100,6 100,6
1992          
101,2
102,4 100,5 101,7
1993          
100,9
102,3 102,9 104,3
1994          
98,8
100,2 101,0 102,4
1995          
99,9
101,2 99,4 100,7
1996          
101,6
103,0 97,1 98,4


Heimild: Tryggingastofnun ríkisins og Þjóðhagsstofnun.

    Tekjutrygging var jafnhá fyrir elli- og örorkulífeyrisþega fram til 1. febrúar 1992 en frá þeim tíma er tekjutrygging öryrkja 2,8% hærri en til ellilífeyrisþega.

2. Hvaða breytingar hafa orðið á lífskjörum aldraðra, örykja og sjúklinga með breytingum á lögum, reglugerðum, lyfjakostnaði og þjónustugjöldum á fyrrnefndu tímabili?
    Engin tök eru á heildstæðri úttekt á lífskjörum þeirra hópa sem nefndir eru í spurningunni. Undir liðum 1.4 og 1.5 hér að framan er fjallað um kaupmátt lífeyris. Hér verða taldar til helstu breytingar sem gerðar hafa verið á lyfjakostnaði og þjónustugjöldum sjúkrastofnanna. Loks er yfirlit yfir helstu lög er varða bótaþega Tryggingastofnunar ríkisins árin 1991 til 1996.

2.1. Lyfjakostnaður.
    Verulegar breytingar hafa verið gerðar í lyfjamálum á því tímabili sem hér er miðað við og hefur markmið þessara aðgerða verið að reyna að draga úr mjög ört vaxandi kostnaði samfélagsins. En lyfjakostnaður utan sjúkrahúsa nam 0,89% af landsframleiðslu árið 1990 og 0,98% árið 1995, eða um 4,5 milljörðum króna.
    Árið 1991 var fastagjald fyrir lyf hækkað umtalsvert. Lyf voru flutt milli greiðsluflokka. Með þessari tilfærslu fjölgaði mjög þeim lyfjum sem sjúklingar greiða sjálfir fyrir.
    Í ágúst 1992 var gerð sú breyting að fastagjald var lagt niður en í staðinn teknar upp hlutfallsgreiðslur lyfjakaupenda. Læknar voru hvattir til að ávísa á sem ódýrust lyf. Í janúar 1993 var hlutfallsleg greiðsluþátttaka sjúklinga vegna lyfjakaupa aukin. Það var gert þannig að tiltekin var lágmarksgreiðsluþátttaka fyrir lyf, auk þess sem fjölgað var lyfjum sem sjúklingar greiða að fullu fyrir. Hlutdeild lyfjakaupenda var hækkuð lítillega 1. febrúar 1996.
    Á móti þessu hefur álagning lyfja verið lækkuð. Heildsöluálagning var lækkuð í febrúar 1993 og cif og fob kostnaðarstuðlar í júní 1993 og þá var álagning í heild- og smásölu lækkuð í desember 1994.
    Á þessu árabili hefur hlutdeild lyfjakaupenda hækkað úr u.þ.b. 18% af útsöluverði í um 31–32% sem raunar er meðalgreiðsluhlutfall í Evrópulöndum. Þá hefur virk verð- og vörustýring leitt til þess að dregið hefur umtalsvert úr notkun sýklalyfja og í auknum mæli hefur neysla færst frá 6dýrum lyfjum til ódýrari lyfja. Með þessu hefur dregið úr lyfjaútgjöldum þjóðarinnar.

Tafla 7. Lyfjaverð.



Lyfjaverð


Neysluverð

umfram alm.


Lyfjaverð

vísitala

verðbreytingu




1991           100
,0 100 ,0
100 ,0
1992           118
,2 103 ,7
113 ,9
1993           147
,8 108 ,0
136 ,9
1994           152
,0 109 ,6
138 ,7
1995           152
,3 111 ,5
136 ,6
1996           164
,0 114 ,0
143 ,9

Heimild: Hagstofa Íslands.

    Lyfjaverð til notenda hefur hækkað umtalsvert á þessum árum og langt umfram almennt verðlag. Þetta er sýnt í töflu 7, sem byggð er á verði lyfja í grunni neysluverðsvísitölu.

2.2 Þjónustugjöld.
    Umtalsverðar breytingar hafa orðið á skipan heilbrigðismála á þessu tímabili og hafa þær miðað að því að auka kostnaðarhlutdeild notenda. Áætlað er að til heilbrigðismála hafi þjóðin varið 38,8 milljörðum kr. árið 1996, þar af er gert ráð fyrir að notendur hafi greitt 16,5% en samsvarandi hlutfall árið 1990 var 13,4%. Útgjöld til þessa málaflokks hafa aukist að magni um sem nemur 3,7% á mann frá 1990 til 1996 og sem hlutfall af landsframleiðslu hafa útgjöld til þessa málaflokks nánast staðið í stað.
    Í töflu 8 er grein gerð fyrir helstu breytingum á hlutdeild sjúkratryggðra í lækniskostnaði árin 1991–1996.

Tafla 8. Hlutdeild sjúkratryggðra í lækniskostnaði 1991–1996.

Almennt gjald

Gjald elli- og örorkulífeyrisþega

Að Að Að
Að
kvöldi kvöldi kvöldi kvöldi Á eða Á eða Á eða Á eða dag- um dag- um dag- um dag- um
tíma helgi tíma helgi tíma helgi tíma helgi
15. febrúar 1990
Heimilislæknar 0 500 400 1.000 0 500 400 1.000 Sérfræðingar 900 300 Rannsóknir 300 100 15. febrúar 1992 Heimilislæknar
600 1.000 1.000 1.500 200 350 350 500 Heimilislæknar eftir þak 400 900 150 300 Sérfræðingar 1.500 500 Sérfræðingar eftir þak 0 0 Rannsóknir 600 200 Rannsóknir eftir þak 0 0 25. janúar 1993 Heimilislæknar 600 1.000 1.000 1.500 200 400 400 600 Heimilislæknar eftir þak 200 600 600 900 0 200 200 300 Sérfræðingar 1.200+40% 1/3 af almennu gjaldi Sérfræðingar eftir þak 1/3 af almennu gjaldi 1/9 af almennu gjaldi Rannsóknir 900 300 Rannsóknir eftir þak 300 100 1. febrúar 1996 Heimilislæknar 700 1100 1100 1600 300 500 400 600 Heimilislæknar eftir þak 300 700 700 1000 100 300 300 400 Sérfræðingar 1.400+40% 500 + 1/3 af 40% Sérfræðingar eftir þak 500 + 1/3 af 40% 1/9 af almennu gjaldi, þó a.m.k. 300 Rannsóknir 1.000 300 Rannsóknir eftir þak 400 100 Heimild: Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti.

    Frá 15. janúar 1992 hefur verið í gildi þak á greiðslur hvers sjúkratryggðs einstaklings sem nemur 12.000 kr. á hverju almanaksári vegna heimsókna á heilsugæslustöðvar, eða til heimilislæknis, vitjana lækna og sérfræðilæknishjálpar. Þak á greiðslum elli- og örorkulífeyrisþega var þó lægra eða 3.000 kr. á ári. Þann 1. júní 1992 gekk í gildi reglugerð sem m.a. kvað á um að að börn eldri en 6 ára og greitt er umönnunarbætur vegna greiða eins og lífeyrisþegar. Frá 1. júlí njóta þeir sem verið hafa atvinnulausir í a.m.k. 6 mánuði sömu kjara og lífeyrisþegar.

2.3 Helstu breytingar á lögum er varða bótaþega Tryggingarstofnunar ríkisins 1991–96.
    Lög nr. 29 27. mars 1991, um breytingar á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971. Kveðið var á um breytingu á reglum um greiðslu vasa- og sjúkradagpeninga.
    Lög nr. 79 23. desember 1991, um breytingar á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971.
        Með lögunum var komið á umönnunarbótum til forráðamanna sjúkra og fatlaðra barna.
    Lög nr. 1 24. janúar 1992, um ráðstafanir í ríkisfjármálum og varða breytingu á á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971.
        Lögin fólu í sér margvíslegar breytingar:
        Ákvæði var um skerðingu elli- og örorkulífeyris vegna tekna, slysaörorka er þó undanskilin.
        Ákvæði var um hækkun tekjutryggingar örorkulífeyrisþega umfram ellilífeyrisþega.
        Endurgreiðsla vegna tannréttinga takmörkuð og bundin við alvarleg tilfelli.
        Ákvæði var um að þátttaka sjúkling í læknis- og lyfjakostnaði geti verið samkvæmt hlutfallsgjaldi.
        Breytingar voru gerðar á ákvæðum um tannlæknakostnað:
        Endurgreiðslur vegna barna 5 ára og yngri hækkuðu úr 75% af kostnaði í 85%.
        Í stað þess að skólatannlækningar væru gjaldfrjálsar var krafist 15% kostnaðargreiðslu foreldra.
    Lög nr. 104 28. desember 1992, um breytingar á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971.
        Barnalífeyrir var hækkaður verulega, en á móti voru mæðra/feðralaun lækkuð verulega. Meðlag hækkaði eins og barnalífeyrir.
        Endurgreiðsla vegna tannlækninga barna og unglinga undir 15 ára aldri voru lækkaðar úr 85% af kostnaði í 75%. Börn og unglingar fengu þó rétt á einni skoðun á ári án endurgjalds.
        Endurgreiðsla vegna tannlækninga lífeyrisþega með skerta tekjutryggingu var lækkuð úr 75% í 50% af kostnaði. En endurgreiðslur tannlæknakostnaðar annarra lífeyrisþega voru felldar niður, en áður námu þær 50% kostnaðar.
    Lög nr. 74 19. maí 1993, um breytingar á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971.
        Með lögunum var heimilað að endurgreiða sjúklingi útlagðan kostnað vegna læknishjálpar og lyfja.
    Lög nr. 148 30. desember 1994, um ráðstafanir í ríkisfjármálum og varða breytingu á á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971.
        Ákvæði var um að húsaleigubætur skyldu ekki skerða lífeyrisbætur.
        Ákvæði var um að árleg endurskoðun á frítekjumarki tekjutryggingar skyldi ganga í gildi 1. september ár hvert í stað 1. júlí svo sem áður var.
        Ákvæði var í lögunum að bætur skyldu greiddar 1. virka dag hvers mánaðar en ekki 3. virka dag.
        Gildandi reglur um skerðingu sérstakrar heimilisuppbótar voru felldar inn í lögin.
    Lög nr. 144 28. desember 1995, um ráðstafanir í ríkisfjármálum og varða breytingu á á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971.
    Ákvæði var um að helmingur fjármagnstekna bótaþega skyldu koma til skerðingar á bótum.
        Skerðing grunnlífeyris var hækkuð úr 25% af tekjum umfram frítekjur í 30%.
        Með lögunum fékkst heimild til að reikna þeim sem ekki höfðu sinnt lagaskyldu til að greiða til lífeyrissjóðs tekjur, jafnar þeim sem hann hefði fengið úr lífeyrissjóði.
        Ákvæði var um að fella niður greiðslur sjúkradagpeninga til fyrirtækja er þau greiða starfsfólki laun í veikindum.
        Tenging bótaupphæða í almannatryggingalögum við laun í almennri verkamannavinnu var afnumin.
        Mæðra/feðralaun voru lækkuð.
        Ekkjulífeyrir var felldur niður, en þeim sem nutu hans þá þegar verður greiddur hann þar til lífeyrisþegi nær 67 ára aldri.
        Heimilað var að greiða dánarbætur til ekkju vegna barna undir 18 ára aldri frá 12 í 48 mánuði til viðbótar við 6 mánaða dánarbætur ekkju.
    Lög nr. 95 14. júní 1996, um breytingar á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971.
        Heimilað að hækka tekjuviðmiðun örorkulífeyrisþega sem fengið hafa eingreiðslu skaðabóta vegna örorku við útreikning tekjutengdra bóta.
    Lög nr. 100 14. júní 1996 um breytingar á lögum um almannatryggingar, nr. 67/1971.
        Með lögunum var styrkur til kaupa á næringarefnum heimilaður.

3. Hvaða breytingar hafa orðið á skuldastöðu heimilanna á fyrrnefndu tímabili?
    Skuldir heimila við lánastofnanir eru settar fram í eftirfarandi töflu.

Tafla 9. Skuldir heimila 1990–1996.




Skuldir heimila í lok tímabils


í milljónum króna


Á verðlagi

Á verðlagi

Hlutfall skulda og


hvers árs

í jan. 1997

ráðstöfunartekna




1990          
170.726
201.893 75 ,2%
1991          
211.270
232.093 85 ,9%
1992          
237.367
256.745 100 ,4%
1993          
262.518
275.711 112 ,8%
1994          
289.054
299.813 118 ,9%
1995          
316.227
322.754 123 ,7%
1996, sept.     
342.880
341.712 127 ,1%

Heimild: Seðlabanki Ísland og Þjóðhagsstofnun.

    Reiknað á föstu verði í janúar 1997 hafa skuldir heimilanna aukist um tæplega 110 milljarða króna. Hlutfall skulda af ráðstöfunartekjum hefur aukist um 41% prósentustig. Hér er eingöngu litið á skuldir heimilanna og þróun þeirra. Hin hlið málsins er auðvitað eignir sem á móti standa, svo sem peningalegar eignir og fasteignir. Í þessu sambandi er eign heimilanna í lífeyrissjóðum hvað mikilvægust, en sjóðirnir hafa mjög styrkst, m.a. vegna þess að greitt er af öllum launum á almennum vinnumarkaði.

4. Hver er fjöldi nauðungaruppboða á húseignum einstaklinga og fjöldi gjaldþrota á þessum árum?
4.1 Nauðungaruppboð.
    Ekki eru til heildstæðar tölur um nauðungaruppboð á íbúðarhúsnæði. Upplýsingar fengust um fjölda uppboða að kröfu Húsnæðisstofnunar.

Tafla 10. Nauðungaruppboð á íbúðarhúsnæði einstaklinga


að kröfu Húsnæðisstofnunar ríkisins.



1992

1993

1994

1995

1996




Byggingasjóður ríkisins     
236
266 249 253 172
Húsbréfadeild     
39
121 179 233 28
Byggingasjóður verkamanna     
55
77 112 142 181
Samtals     
330
464 540 628 611


Heimild: Húsnæðisstofnun ríkisins.

4.2 Gjaldþrot einstaklinga.
    Úr málaskrám héraðsdómsstóla má lesa fjölda gjaldþrota. Málaskrárnar eru hins vegar ekki til á tölvutæku formi fyrr en frá og með 1993. Úrskurðir um gjaldþrot á hendur einstaklingum hefur verið sem hér segir.

Tafla 11. Gjaldþrot einstaklinga 1993–1995.



               1993 1994 1995

Fjöldi gjaldþrota     
414
722 871

Heimild: Landshagir 1996.

    Til samanburðar má nefna að árunum 1982 til 1990 voru kveðnir um 400 gjaldþrotaúrskurðir að meðaltali á ári.

5. Hver er fjöldi nýbyggðra íbúða þessi ár?
    Þjóðhagsstofnun safnar ítarlegum upplýsingum um byggingu íbúðarhúsnæðis á landinu öllu hjá byggingarfulltrúum. Samkvæmt þeim tölum var fjöldi fullgerðra íbúða þessi ár eins og greint er frá í töflu 12.

Tafla 12. Fullgert íbúðarhúsnæði 1991–1996.




Ár

Fjöldi íbúða M 3 (þús.)




1991     
1.611
698
1992     
1.596
745
1993     
1.600
702
1994     
1.718
746
1995     
1.231
522
1996 Áætlun     
1.285
545
Meðaltal     
1.506
660


Heimild: Þjóðhagsstofnun.

    Meðaltalið um 1.500 íbúðir á ári er talið um það bil nægja til að fullnægja þörf landsmanna fyrir viðbótarhúsnæði. Til samanburðar má nefna að á tímabilinu 1986–1990 voru árlega byggðar 1.664 íbúðir að jafnaði.

6. Hver hafa vanskil hjá Húsnæðisstofnun ríkisins verið á þessum árum?
    Frá og með 1994 skilgreinir Húsnæðisstofnun ríkisins vanskil sem ógreiddar gjaldfallnar greiðslur sem eru þriggja mánaða og eldri. En fyrir þann tíma voru allar gjaldfallnar greiðslur talin til vanskila. Rökin fyrir þessari breytingu eru þau að greiðsluáskoranir eru fyrst sendar til skuldara þremur mánuðum eftir gjalddaga. Yfirlit Húsnæðisstofnunar ríkisins miðast við stöðuna 1. janúar ár hvert. Samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar voru vanskil í öllum sjóðum er undir Húsnæðisstofnun heyra sem segir í töflu 13.

Tafla 13. Vanskil hjá Húsnæðisstofnun ríkisins 1991–1996.




Gömul skilgreining

Ný skilgreining


1991

1992

1993

1994

1995

1996



Fjárhæðir í millj. kr.
Útlán alls     
78.200
106.500 123.800 141.900 159.800 176.800
Vanskil     
610
720 828 1.289 2.002 2.100
Hlutfall lána í vanskilum     
0,8%
0,7% 0,7% 0,9% 1,2% 1,2%

Fjöldi lántakenda
Fjöldi lántakenda í heild     
52.551 53.622 55.410 56.904
Fjöldi lántakenda í vanskilum     
3.315 5.017 7.220 6.697
Hlutfall lántakenda í vanskilum     
6,3% 9,4% 13% 11,8%

Heimild: Húsnæðisstofnun ríkisins.

7. Hvaða breytingar hafa verið gerðar á barnabótum, vaxtabótum og tekjuskattslögum á árunum 1991–1996?
    Hér á eftir fer yfirlit yfir helstu breytingar sem gerðar hafa verið á lögum um tekju- og eignarskatt einstaklinga, lögum um greiðslur til barnafólks og greiðslur til fólks vegna húsnæðis. Í nokkrum tilvikum er einnig minnst á breytingar á öðrum lögum ef þær breytingar tengjast með beinum eða óbeinum hætti breytingum á ofangreindum lögum.
    Einungis er farið yfir almennar breytingar á þessum lögum en ekki er fjallað um ýmsar sérstakar breytingar, svo sem breytingar sem tengjast skattlagningu einstaklinga í atvinnurekstri. Ekki er fjallað um almennar breytingar sem gerðar hafa verið á fjárhæðum og hlutföllum á milli ára, en þeim eru gerð skil í töflum A–J í viðauka.
    Yfirlitinu er skipt upp í kafla eftir málaflokkum og þær fjárhæðir sem þar koma fram eru þær sem notast var við í fyrsta skipti sem lögin tóku gildi og þurfa því ekki að vera sömu fjárhæðir og komu fram í lagatextanum. Í yfirlitinu er gert ráð fyrir að lesandinn hafi einhverja þekkingu á þessum lögum því yfirleitt er einungis fjallað um breytingar frá fyrri lögum og ekki farið nákvæmlega út í það hvernig einstök lög eru í heild sinni.

1. Tekjuskattur.
1.1 Skatthlutfall
.
    Frá og með álagningu 1991 (staðgreiðslu 1990) hækkaði tekjuskattshlutfallið úr 30,8% í 32,8% en á móti var persónu- og sjómannaafsláttur einnig hækkaður (4.– 6. gr. laga nr. 117/1989).
    Við álagningu 1994 (staðgreiðslu 1993) hækkaði tekjuskattshlutfallið úr 32,8% í 34,3% (8. gr. laga nr. 111/1992).
        Ástæðan fyrir þessari hækkun var niðurfelling aðstöðugjalds á árinu 1993 (lög nr. 113/1992). Í lögunum var kveðið á um að sveitarfélög fái sérstakt framlag úr ríkissjóði. Framlag ríkissjóðs svaraði til 80% af álögðu aðstöðugjaldi gjaldaárið 1993 sem hefði fallið til hvers sveitarfélags ef ekki hefði komið til niðurfelling gjaldsins. Þetta ákvæði gilti einungis við álagningu 1993.
    Við álagningu 1994 og 1995 var lagður á sérstakur 5% tekjuskattur á tekjur umfram 2.440.080 kr. hjá einhleypingi og 4.880.160 kr. hjá hjónum (álagning 1994) (23. gr. laga nr. 111/1992).
        Þessi sérstaki skattur hefur verið framlengdur þannig að hann var einnig í gildi við álagningu 1996 (18. gr. laga nr. 147/1994) og mun verða í gildi við álagningu 1997 (25. gr. laga nr. 145/1995) og 1998 (20. gr. laga nr. 137/1996).
    Við álagningu 1995 (staðgreiðslu 1994) lækkaði tekjuskattshlutfallið úr 34,3% í 33,15% (6. gr. laga nr. 122/1993). Á móti var hámarksútsvar sveitarfélaga hækkað úr 7,5% í 9,2% og einnig var sett ákvæði um lágmarksútsvar 8,4% (6. gr. laga nr. 124/1993). Jafnframt voru lög um aðstöðugjald felld brott (7. gr. laga nr. 124/1993).
    Frá og með álagningu 1996 hækkuðu viðmiðunarmörk vegna hins sérstaka tekjuskatts í 2.805.840 kr. hjá einstaklingi og í 5.611.680 kr. hjá hjónum (við álagningu 1995 voru þessar fjárhæðir 2.494.080 kr. og 4.988.160 kr.) (18. gr. laga nr. 147/1994).

1.2 Frádráttur frá tekjum.
    Við álagningu 1990 hækkaði hámarksfrádráttur vegna fjárfestingar í atvinnurekstri úr 75 þús. kr. (við álagningu 1989) í 115 þús. kr. hjá einstaklingi úr 150 þús. kr. í 230 þús. kr. hjá hjónum (1. gr. laga nr. 118/1989).
    Við álagningu 1991 hækkaði hámarksfrádráttur vegna arðs af hlutabréfum úr 10% í 15% af nafnverði (2. gr. laga nr. 63/1990).
    Við álagningu 1992 lækkaði hámarksfrádráttur vegna fjárfestingar í atvinnurekstri úr 125.925 kr. (við álagningu 1991) í 94 þús. kr. hjá einstaklingi og úr 251.850 kr. í 188 þús. kr. hjá hjónum (3. gr. laga nr. 85/1991).
    Við álagningu 1994 lækkaði frádráttur vegna innlegs á húsnæðissparnaðarreikning úr 25% í 20%. Frádrátturinn lækkaði síðan um 5% á hverju ári uns hann féll niður og nýtist í síðasta skipti við álagningu 1997 (30. gr. og 32. gr. laga nr. 111/1992).
    Frá og með álagningu 1995 lækkaði hámarksfrádráttur vegna arðs af hlutabréfum úr 15% í 10% af nafnverði (2. gr. laga nr. 111/1992).
    Vegna álagningar 1995 og 1996 var frádráttur vegna fjárfestingar í atvinnurekstri lækkaður í 80% af fjárhæðinni. Frádrátturinn átti síðan að lækka í 50% við álagningu 1997 og 1998 og falla svo niður frá og með álagningu 1999 (2. gr. og 23. gr. laga nr. 111/1992).
        Síðar var hætt við að lækka frádráttinn í 50% og að fella hann niður (2.gr. laga nr. 147/1994).
    Frá og með álagningu 1995 var þeim sem höfðu leigutekjur af íbúðarhúsnæði, án þess að það teldist vera atvinnurekstur, heimilt að draga allt að 80% frá þeim tekjum, þó eigi hærri fjárhæð en 25.980 kr. fyrir hvern mánuð sem húsnæðið er í leigu í stað þess að skila inn rekstraryfirliti vegna húsnæðisins (2. gr. laga nr. 147/1994).
    Við álagningu 1996 (staðgreiðslu 1995) var þeim sem voru 70 ára eða eldri heimilt að draga frá tekjum 15% af greiddum lífeyri úr lífeyrissjóðum (2. gr. laga nr. 147/1994).
    Frá og með 1. apríl 1995 var heimilt að draga 50% af framlagi launþega og sjálfstæðra atvinnurekenda í lífeyrissjóð frá tekjum til skatts. Hlutfallið átti að hækka í 75% frá og 1. júlí 1996 og frá og með 1. júlí 1997 átti framlagið að vera að fullu frádráttarbært, þó að hámarki 4% af launum (2. gr. og 6. gr. laga nr. 30/1995).
        Hlutfallið var hækkað í 75% frá og með 1. janúar 1996 og frá og með 1. júlí 1996 varð framlagið að fullu frádráttarbært (22. gr. laga nr. 145/1995).
        Jafnframt var felld niður heimild ellilífeyrisþega til að draga frá tekjum 15% af greiddum lífeyri úr lífeyrissjóðum, sbr. h-lið hér að framan (4. gr. laga nr. 145/1995).

2. Eignarskattur.
    Við álagningu 1990 bættist við nýtt skattþrep. 1,5% sem lagðist á eignarskattsstofn umfram 8.050.000 kr. (16. gr. laga nr. 97/1988).
    Frá og með álagningu 1991 var gerð sú breyting á hærra skattþrepinu, sbr. a-lið hér að ofan, að skatthlutfallið var lækkað í 0,75% og ef tekjuskattsstofn var undir 1.839.600 kr. þá lækkaði skatturinn hlutfallslega þar til að hann féll að fullu niður ef tekjuskattsstofn var undir 919.800 kr. (12. gr. laga nr. 117/1989).
    Frá og með álagningu 1995 var hærra skattþrepið fellt niður (8. gr. laga nr. 147/1994).
    Frá og með álagningu 1996 var heimilt að færa niður verð bifreiða um 10% af því verði sem þær voru taldar til eignar hjá framteljenda árið áður (10. gr. laga nr. 145/1995).

3. Greiðslur með börnum.
    Frá og með 1992 voru barnabætur lækkaðar en á móti voru grunnfjárhæðir barnabótaauka hækkaðar. Lækkun barnabóta náði þó ekki til viðbótar vegna barna yngri en 7 ára, sjá nánar töflur D–F í viðauka. (11. og 12. gr. laga nr. 85/1991.)
    Frá og með 1993 voru gerðar verulegar breytingar á greiðslum vegna barna einstæðra foreldra. Mæðra- og feðralaun voru lækkuð en á móti voru meðlag / barnalífeyrir og grunnfjárhæð barnabótaauka einstæðra foreldra hækkuð. Einnig voru tekjumörk vegna barnabótaauka lækkuð, sjá nánar töflu F og töflur I–J í viðauka, varðandi breytingar á fjárhæðum. (10. gr. laga nr. 111/1992 og 2. gr. 104/1992.)
    Frá og með álagningu 1996 var tekjutenging barnabótaaukans rýmkuð. Í stað þess að skerðingin væri 7% fyrir fyrsta barn, 6% fyrir annað barn, 5% fyrir þriðja barn og 4% fyrir hvert barn umfram þrjú verða skerðingarhlutföllin 6% fyrir eitt barn, 11% fyrir tvö börn og 15% með þremur börnum eða fleiri. (9. gr. laga nr. 145/1995.)

4. Greiðslur vegna íbúðarhúsnæðis.
4.1 Vaxtabætur.
    Frá og með álagningu 1990 voru teknar upp vaxtabætur og frá sama tíma voru húsnæðisbætur aflagðar, þó voru bráðabirgðaákvæði sem kváðu á um að ef framteljandi hafði fengið húsnæðisbætur samkvæmt eldri lögum átti hann rétt á þeim til og með ársins 1993. (Lög nr. 79/1989 og 9. gr. laga nr. 117/1989.)
    Við álagningu 1994 voru vaxtabætur reiknaðar út frá 90% vaxtagjalda í stað þess að vera reiknaðar út frá öllum vaxgjöldum. Einnig breyttist eignaskerðingin, þannig að efri skerðingarmörkin voru nú 60% hærri en neðri skerðingarmörkin í stað þess að vera tvöföld neðri mörkin.
    Frá og með álagningu 1995 voru gerðar þær breytingar að vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta geta ekki orðið hærri en sem nemur 7% af skuldum vegna íbúðarhúsnæðis eins og þær eru í árslok. Einnig var útvíkkað hvaða vaxtatekjur dragast frá vaxtagjöldum og nær það ákvæði nú til flestallra vaxtatekna.
        Reglur um eignaskerðingu sem giltu við álagningu 1994 gilda áfram. (9. gr. laga nr. 122/1993 og 7. gr. laga nr. 147/1994.)

4.2 Húsaleigubætur.
    Frá og með 1. janúar 1995 voru teknar upp húsaleigubætur. (Lög nr. 100/1994).
Viðauki.
Yfirlit fjárhæða samkvæmt skattalögum 1990–1996.





(Töflur A–J)


(3 bls. myndaðar)