Ferill 353. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 353 . mál.
783. Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar um skotvopn í opinberri eigu.
Svar óskast sundurliðað eftir fjölda og tegundum.
Til þessa hafa þær upplýsingar sem fyrirspyrjandi biður um talist til löggæsluupplýsinga sem af öryggisástæðum er ekki greint frá opinberlega. Af þeim sökum telur ráðuneytið ekki rétt að svara spurningunni.
Þessar reglur eru til og voru settar af ráðuneytinu 22. maí 1987. Af sömu ástæðum og fyrr voru nefndar hafa þær ekki verið birtar opinberlega heldur notaðar sem innanhússreglur hjá lögreglu. Lögregluskólinn hefur unnið að endurskoðun reglnanna. Ekki eru sjáanleg nein rök sem mæla með því að reglurnar verði nú gerðar opinberar.
Skv. 21. gr. reglugerðar um skotvopn og skotfæri, nr. 16 20. janúar 1978, er innflutningur eftirtalinna tegunda skotvopna bannaður:
— Skotvopn sem eingöngu eru ætluð til nota í hernaði.
— Sjálfvirk skotvopn.
— Hálfsjálfvirkir rifflar.
Enn fremur hefur ráðuneytið fellt undir þetta bann önnur skotvopn og hluta þeirra, enda verði talið að slíkur búnaður sé sérstaklega hættulegur. Hefur m.a. alfarið verið bannað að flytja hljóðdeyfa til landsins á grundvelli þess.
Ráðuneytið hefur heimild til þess að veita undanþágu frá banninu, enda sé brýn nauðsyn á því. Hafa slíkar undanþágur verið veittar stöku sinnum á umliðnum árum, einkum lögreglu sem talið hefur rétt að fara eftir skotvopnalögum að þessu leyti þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 2. gr. laga um skotvopn, sprengiefni og skotelda, nr. 46 13 maí 1977.
Með vísan til almennra reglna skotvopnalöggjafarinnar þarf samþykki ráðuneytisins alltaf að koma til áður en eigendaskipti geta átt sér stað á fyrrgreindum skotvopnum. Ekki hefur komið til þess á umliðnum árum að slíkt samþykki hafi verið veitt.
Ekki er kunnugt um að skotvopn séu í eigu stofnana sem heyra undir ráðuneytið, annarra en lögreglu og landhelgisgæslu.
Verði þess óskað mun ráðuneytið veita allsherjarnefnd Alþingis upplýsingar í trúnaði um 1. og 2. lið fyrirspurnarinnar.