Ferill 514. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 514 . mál.


861. Tillaga til þingsályktunar



um upplýsingar ráðherra um málefni hlutafélags í ríkiseigu.

Flm.: Ásta R. Jóhannesdóttir.



    Alþingi ályktar að skora á samgönguráðherra að veita alþingismönnum, og um leið almenningi, þær upplýsingar sem hann hefur verið inntur eftir í skriflegri fyrirspurn á Alþingi og varða ríkisfyrirtækið Póst og síma hf. og sem honum ber að veita samkvæmt lögum, m.a. lögum um hlutafélög, lögum um ársreikninga, stjórnarskrá og þingskapalögum.

Greinargerð.


    Á Alþingi hefur verið hægt að fá upplýsingar um helstu málefni fyrirtækja og stofnana í eigu ríkisins. Þingmenn hafa getað kallað eftir upplýsingum um þau með fyrirspurnum til þess ráðherra sem stofnunin eða fyrirtækið heyrir undir. Þannig hafa þau verið öllum eigendum opinber.
    Þessi réttur hefur verið tryggður í stjórnarskránni og frekar í þingsköpum Alþingis. Á þennan rétt reyndi nú á dögunum er lögð var fram fyrirspurn til samgönguráðherra um starfskjör yfirmanna Pósts og síma fyrir og eftir formbreytinguna í hlutafélag.
    Fyrirspurnin var borin fram til þess að fá upplýsingar um hvort verulegar breytingar hefðu orðið á launakjörum við formbreytinguna. Ráðherra veitti upplýsingarnar sem sneru að ríkisfyrirtækinu áður en það varð að hlutafélagi en kvaðst ekki hafa upplýsingar um Póst og síma hf. og taldi sér ekki fært að krefjast þeirra. Starfskjör væru trúnaðarmál milli stjórnar og starfsmanna.
    Þessi þingsályktun snýst um grundvallarmál sem er upplýsingaskylda ráðherra um opinber málefni gagnvart alþingismönnum. Samkvæmt 54. gr. stjórnarskrárinnar er alþingismönnum heimilt með leyfi Alþingis að óska eftir upplýsingum frá ráðherra um opinbert málefni. Þetta ákvæði stjórnarskrárinnar er ítrekað í lögum um þingsköp Alþingis, í 49. gr. Fyrirspurnin var borin fram með venjubundnum hætti og er alveg ljóst að hún styðst bæði við stjórnarskrá og þingsköp og ráðherra ber að svara eftir því sem hann hefur tök á.
    Algengt er erlendis að birta launakjör æðstu manna í fyrirtækjum og stofnunum. Fyrirspurnir um launamál eru ekki óalgengar á Alþingi, sbr. fyrirspurnir um kjör bankastjóra, en reglulega er upplýst um heildarkjör þeirra. Þannig var fyrirspurnin um starfskjör yfirmanna Pósts og síma. Veittar voru upplýsingar um launakjör fyrir breytinguna í hlutafélag en ekki eftir formbreytingu fyrirtækisins.
    Formbreytingin breytir ekki upplýsingaskyldunni að mati lögfræðinga. Hluthafi í fyrirtæki hefur ákveðin réttindi samkvæmt hlutafjárlögum til að óska eftir upplýsingum. Hluthafinn er einn í þessu tilviki, þ.e. ríkissjóður, og samgönguráðherra fer með þann hlut. Hann hefur rétt til að afla upplýsinganna, gagnstætt því sem segir í skriflegu svari hans við fyrirspurn flutningsmanns.

    Samkvæmt hlutafélagalögum er kveðið á um rétt hluthafa til að kalla saman aukahluthafafund ef upplýsingar eru ekki tiltækar á hluthafafundi (85. og 86 gr.). Hluthafinn eini, þ.e. samgönguráðherra sem fer með hlutabréf ríkissjóðs, getur haldið fund hvenær sem hann óskar þess og krafið stjórn um upplýsingar er varða rekstur fyrirtækisins.
    Í lögum um ársreikninga er einnig kveðið á um þennan rétt til upplýsinga af því tagi sem fyrirspurnin til samgönguráðherra tekur til bæði í 36. gr. og 48. gr. en þar segir að laun stjórnenda skuli birt. Sömuleiðis kveða þau á um skýlausan rétt hluthafa til að óska eftir upplýsingum um þetta og önnur efni sem varða félagið.
    Sambærileg ákvæði eru í lögum um viðskiptabanka. Framkvæmdin hefur verið sú að sérstakur liður er í ársreikningi þar sem tilgreind eru heildarlaun framkvæmdastjóra og stjórnar.
    Í umræðum á Alþingi um stofnun hlutafélags um Landsbanka og Búnaðarbanka 13. mars sl. sagði viðskiptaráðherra, aðspurður, að hann væri þeirrar skoðunar að Alþingi ætti að hafa aðgang að upplýsingum um kjör yfirmanna ríkisbankanna sem hlutafélaga, ekki síst á meðan ríkið ætti 100% hlut í þeim. Í máli sínu vitnaði hann í sömu lög og lagagreinar og hér hafa verið nefnd að framan í greinargerðinni.
    Þessi þingsályktunartillaga snýst ekki um launakjör hjá hlutafélaginu Pósti og síma hf. nema að litlu leyti heldur fyrst og fremst um samband löggjafarvalds og framkvæmdarvaldsins og hvernig ber að líta á upplýsingaskyldu um ríkisfyrirtæki sem breytt hefur verið í hlutafélag.
    Í svari samgönguráðherra segir að ráðuneytið hafi ekki skipunarvald í málefnum Pósts og síma hf. og öll stjórnsýsluleg tengsl hafi rofnað. Það er rétt, en önnur tengsl hafa myndast milli ráðuneytisins, þ.e. ráðherra, og hlutafélagsins þar sem hann fer nú með allan hlut ríkisins í félaginu.
    Þá ber honum að fara eftir lögum um hlutafélög og öðrum lögum þeim tengdum, þar á meðal lögum um ársreikninga. Það er því beinlínis rangt í svari samgönguráðherra að hann geti ekki upplýst um það sem óskað er eftir í fyrirspurninni um Póst og síma hf.
    Forsætisráðherra kvað ekki upp úr um afstöðu sína til mismunandi túlkunar ráðherranna tveggja í ríkisstjórn hans í utandagskrárumræðu um málið. Það er mikilvægt að fá afstöðu hans og ekki síður Alþingis til málsins þar sem mörg ríkisfyrirtæki munu verða hlutafélög á næstunni ef marka má áform ríkisstjórnarinnar. Afstaða stjórnvalda til upplýsingaskyldunnar um ríkisfyrirtæki sem breytt hefur verið í hlutafélög verður að vera ljós áður en fleiri fyrirtækjum í eigu ríkisins verður breytt í hlutafélög samkvæmt lögum.



Fylgiskjal I.

Svar samgönguráðherra við fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur um laun og starfskjör starfsmanna Pósts og síma.
(357. mál 121. löggjafarþings)

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.     Hver eru heildarlaunakjör og starfskjör æðstu yfirmanna Pósts og síma hf., þ.e. forstjóra, framkvæmdastjóra og forstöðumanna sviða, stöðvarstjóra, deildarstjóra og annarra stjórnenda, svo og heildarlaun og starfskjör sömu eða sambærilegra yfirmanna á ári sl. þrjú ár, 1994–96, áður en Pósti og síma var breytt í hlutafélag?
                  Svar óskast sundurliðað eftir föstum grunnlaunum, öðrum greiðslum, þóknunum og fríðindum, svo sem ferðakostnaði, risnu og bifreiðahlunnindum.
     2.     Hvaða reglur gilda um risnu, ferða- og dvalarkostnað og bílafríðindi fyrrgreindra starfsmanna fyrir og eftir breytinguna og hverjar eru áætlaðar fjárhæðir í því sambandi?
     3.     Sitja eða sátu fyrrgreindir starfsmenn í stjórnum fyrirtækja eða stofnana sem tengjast starfsemi Pósts og síma eða Pósts og síma hf. og hvaða greiðslur hafa þeir þegið fyrir slík störf?
     4.     Hver eru heildarlaun og starfskjör stjórnarmanna hjá Pósti og síma hf. og hver tók ákvörðun um þau?
                  Svar óskast sundurliðað eftir launum formanns og annarra stjórnarmanna.


    Hinn 1. janúar 1997 tók til starfa hlutafélagið Póstur og sími á grundvelli laga nr. 103/1996, um stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar. Með stofnun Pósts og síma hf. rofnuðu öll stjórnsýslutengsl milli ráðuneytis og félagsins sem áður voru milli ráðuneytis og Póst- og símamálastofnunar og hefur ráðuneytið nú ekki skipunarvald í málefnum Pósts og síma hf. Engu breytir þótt allt hlutafé sé í eigu íslenska ríkisins og samgönguráðherra fari með eignaraðild ríkissjóðs í Pósti og síma hf.
    Stjórn félagsins, sem var kosin á stofnfundi þess 27. desember 1996, ræður starfsmenn og ákveður kjör þeirra. Samgönguráðuneytið hefur engin afskipti af gerð ráðningarsamninga við starfsmenn Pósts og síma hf. Ráðningar og starfskjör starfsmanna Pósts og síma hf. teljast trúnaðarmál milli stjórnar félagsins og starfsmanna. Ráðuneytið hefur því ekki þær upplýsingar sem um er beðið í fyrirspurninni að því er varðar Póst og síma hf. og telur sér ekki fært að krefjast þeirra.
    Öðru máli gegnir um Póst- og símamálastofnun og fer hér á eftir svar við spurningum um launakjör yfirmanna Póst- og símamálastofnunar árin 1995 og 1996. Aðgangur að launagreiðslum ársins 1994 er ekki fyrir hendi, hvorki hjá Pósti og síma né fjármálaráðuneyti.
    Yfirmenn Póst- og símamálastofnunar röðuðust þannig í launaflokka árin 1995 og 1996:




Launaflokkur     Starfsheiti     Fjöldi

    160     Aðstoðarpóst- og símamálastjóri          1
    158     Framkvæmdastjóri, umdæmisstjóri          5
    157     Aðalendurskoðandi, aðstoðarframkvæmdastjóri, yfirverkfræðingur, umdæmisstjóri          10
    156     Yfirverkfræðingur, yfirviðskiptafræðingur, umdæmisstjóri          9
    155     Póstmálafulltrúi, yfirtæknifræðingur, yfirviðskiptafræðingur, umdæmisstjóri          17
    154     Yfirtæknifræðingur, yfirverkfræðingur, skólastjóri          7
    153     Deildarstjóri, deildarverkfræðingur, starfsþróunarstjóri, upplýsinga- og blaðafulltrúi,
         verkefnastjóri, yfirviðskiptafræðingur          14
    152     Deildartæknifræðingur, deildarverkfræðingur          8
    151     Deildarstjóri, deildarverkfræðingur, deildarviðskiptafræðingur, yfirviðskiptafræðingur          9
    150     Deildarstjóri, deildartæknifræðingur, verkefnastjóri          7
    149     Alþjóðafræðingur, deildarstjóri, deildarviðskiptafræðingur, verkefnastjóri          7
    147     Deildarviðskiptafræðingur          1
    455     Aðalféhirðir          1
    452     Birgðastjóri, deildarstjóri, forstöðumaður, skrifstofustjóri, yfirdeildarstjóri          12
    451     Póstrekstrarstjóri          1
    450     Skrifstofustjóri, yfirdeildarstjóri          6

    Dagvinnulaun framgreindra eru frá 91.123 kr. til 156.547 kr. á mánuði, eða að meðaltali 123.835 kr. á mánuði. Yfirvinna þeirra var að meðaltali 1.046.373 kr. á hvern starfsmann árið 1995 og 1.215.854 kr. árið 1996.
    Póst- og símamálastjóri fékk greidd laun samkvæmt launaflokki 171 og að meðaltali 50 klst. yfirvinnu á mánuði.
    Fjöldi og röðun stöðvarstjóra á Póst- og símastöðvum 31. desember 1996 var þannig:
     Launaflokkur     Fjöldi
    453     1
    452     4
    451     9
    450     2
    449     12
    448     13
    447     1
    446     18
    445     18
    444     9
    443     6     (hlutastöðvar)
         
         93
    Laun fyrir dagvinnu samkvæmt ofangreindum launaflokkum eru frá 80.724 kr. til 119.431 kr. á mánuði, eða að meðaltali 100.078 kr. á mánuði.
    Yfirvinna stöðvarstjóra nam alls 39.133.000 kr. árið 1995, eða 420.785 kr. að meðaltali, og 45.617.000 kr. árið 1996, eða 490.505 kr. að meðaltali.
    Engir starfsmenn njóta risnuhlunninda.
    Greiðsla fyrir bifreiðanotkun í árslok 1996 er samkvæmt reglum bílanefndar ríkisins, þ.e. að hámarki 2.000 km á ári, eða samkvæmt akstursdagbók.
    Greiðsla fyrir ferða- og gistikostnað er samkvæmt ákvörðun ferðakostnaðarnefndar.
    Skólanefnd Póst- og símaskólans var eina launaða nefnd stofnunarinnar. Í henni voru sjö nefndarmenn. Fyrir setu í skólanefnd fékk hver nefndarmanna 54.744 kr. ársgreiðslu á árinu 1996.
    Laun stjórnarmanna hjá Pósti og síma hf. voru ákveðin á stofnfundi félagsins 27. desember 1996 og fær hver stjórnarmaður 41.734 kr. í laun á mánuði, en formaður tvöfalda þá fjárhæð. Þetta eru heildarlaun stjórnarmanna.




Fylgiskjal II.

Úr ræðu Finns Ingólfssonar iðnaðar- og viðskiptaráðherra
um stofnun hlutafélaga um Lansbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands.

(409. mál 121. löggjafarþings. 1. umræða, 13. mars 1997.)

    Ég held ég hafi svarað flestum þeim spurningum sem fram komu hjá hv. þm. Ágústi Einarssyni með öðrum þeim spurningum sem hér hafa komið fram. Þó er þeirri spurningu ósvarað sem snýr að því hvað verður um upplýsingar um launakjör bankastjóra þegar breytt hefur verið í hlutafélag. Þá vil ég vitna fyrsta lagi til 54. gr. stjórnarskrárinnar, þar sem segir, með leyfi forseta:
    „Heimilt er alþingismönnum, með leyfi Alþingis, að óska upplýsinga ráðherra eða svars um opinbert málefni með því að bera fram fyrirspurn um málið eða beiðast um það skýrslu.“
    Þannig tel ég að þessi möguleiki sé fyrir hendi. Í lögum um ársreikninga segir í 36. gr.:
    „Í skýringum í ársreikningi eða í skýrslu stjórnar, ef hún er hluti ársreiknings, skal a.m.k. veita upplýsingar umþau atriði sem tilgreind eru í 37.–51. gr., auk þeirra upplýsinga sem krafist er samkvæmt öðrum ákvæðum laga þessara.“
    Ég ætla þá að vitna í 48. gr.:
    „Upplýsa skal um fjölda starfsmanna að meðaltali á reikningsári. Þá skulu laun og launatengd gjöld sundurliðuð ef það er ekki gert í rekstrarreikningi.
    Veita skal upplýsingar um heildarlaun, þóknanir og ágóðahluta til stjórnenda félags vegna starfa í þágu þess.
    Greina skal frá samningum, sem gerðir hafa verið við stjórn, framkvæmdastjóra eða starfsmenn um eftirlaun, og tilgreina heildarfjárhæðir.“
    Þetta tel ég að eigi allt að liggja fyrri í skýrslum og ársreikningum þegar þeir eru kynntir á hverju einasta ári. (Gripið fram í.) Lög um ársreikninga, nr. 144/1994, þannig að þessar upplýsingar eiga allar að liggja fyrir og það er skylda og þessi regla mun gilda um hlutafélög.
    Í reglugerð nr. 544/1994, um gerð ársreiknings viðskiptabanka, sparisjóða og annarra lánastofnana, þar sem þetta er sérstaklega tilgreint, segir í 42. gr., með leyfi forseta:
    „Í skýringum við rekstrarlið 8.1, laun og launatengd gjöld, skulu koma fram upplýsingar um laun og þóknanir til stjórnar og stjórnenda stofnunar vegna starfa í þágu hennar enda séu þessar upplýsingar ekki í skýrslu stjórnar.“ Samkvæmt þessu eiga þóknanirnar líka að koma fram. Ég tel að þarna séu allir möguleikar til staðar til þess að verða við þeim óskum sem hafa komið fram. Ég er þeirrar skoðunar að Alþingi eigi að hafa þennan aðgang að vita hver þessi kjör eru, og ekki síst á meðan ríkið á 100% í þessu hlutafélagi, fyrir utan það að ef þetta frv. verður samþykkt þá mun viðskrh. velja stjórn viðkomandi stofnunar og stjórn viðkomandi hlutafélags á að gefa viðskrh. upplýsingar um launakjör eins og greint er á um í 79. gr. laga um hlutafélög:
    „Aðalfundur ákveður árlega laun stjórnarmanna og fulltrúanefndarmanna. Félagsstjórn ákveður laun og starfskjör framkvæmdastjóra.“
    Það er því stjórnin sem ákveður þetta. Og þar sem stjórnin er skipuð af viðskrh. í þessu tilfelli þá eiga þessar upplýsingar að vera til staðar ef menn leita eftir þeim. (Gripið fram í.) Ég ætla ekkert mat að leggja á það og hef ekki kynnt mér hvort þessu er öðruvísi farið hjá Pósti og síma. En mér sýnist þetta liggja þannig í lögum sem snúa að viðskiptabönkum og sparisjóðum að það sé opinn aðgangur að þessum upplýsingum.