Ferill 518. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


Í vinnslu
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 518 . mál.


867. Tillaga til þingsályktunar



um setningu reglna um ólaunuð leyfi starfsmanna ríkisins frá störfum.

Flm.: Rannveig Guðmundsdóttir, Bryndís Hlöðversdóttir,


Kristín Ástgeirsdóttir, Sigríður Anna Þórðardóttir, Valgerður Sverrisdóttir.

    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta semja reglur um leyfi starfsmanna frá störfum í ríkisþjónustu þegar þeir taka tímabundið við öðrum störfum, svo sem hjá alþjóðastofnunum sem Ísland er aðili að eða kjörnum trúnaðarstörfum. Í reglunum verði m.a. tekið fram hvenær starfsmenn eigi rétt til þess að fá ólaunað leyfi frá störfum, hvernig reikna skuli leyfistímann til starfsaldurs, annarra réttinda og mats á starfshæfni og hver sé réttur starfsmanns til fyrra starfs eftir að leyfi lýkur.

Greinargerð.


    Á hverju ári fær nokkur fjöldi ríkisstarfsmanna leyfi frá störfum, ýmist án launa eða að einhverju leyti á launum. Í fyrra tilvikinu er oft um að ræða starfsmenn sem ráða sig tímabundið til starfa, t.d. á vegum alþjóðastofnana sem Ísland á aðild að, en í síðara tilvikinu t.d. ræða fólk sem fær leyfi frá störfum til þess að afla sér framhaldsmenntunar er síðan nýtist því í áframhaldandi störfum fyrir ríkið.
    Í tillögunni er lagt er til að reglur verði settar sem kveða á um réttarstöðu starfsmanna og er eðlilegt að um þær reglur verði haft samráð við samtök ríkisstarfsmanna.
    Í ljósi tilvika sem upp hafa komið er nauðsynlegt að setja skýrar reglur um hvaða réttindi starfsmenn ávinna sér eða tapa með því að fá launalaus leyfi og hver sé réttur þeirra til þess að taka á ný við fyrra starfi þegar leyfi frá störfum lýkur. Er nauðsynlegt að eyða óvissu sem upp er komin um þetta efni og valdið getur því að hæfir einstaklingar fáist ekki til þess að taka að sér tímabundin störf erlendis. Þátttaka íslenskra starfsmanna á erlendum vettvangi getur verið íslenskum hagsmunum til framdráttar um leið og þeir afla sér verðmætrar þekkingar til áframhaldandi starfa í opinberri þágu.
    Mikilvægt er að um þessi leyfi séu skýrar reglur þannig að starfsmanni sé kunnugt um rétt sinn áður en hann sækir um slíkt leyfi. Benda má á að í lögum um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað frá 1995 er í 4. gr. kveðið á um rétt alþingismanns til leyfis frá opinberu starfi sem hann gegnir er hann er kjörinn til Alþingis.