Ferill 544. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–1997. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 544 . mál.


898. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 113/1984, um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum, sbr. lög nr. 60/1995.

(Lagt fyrir Alþingi á 121. löggjafarþingi 1996–97.)



1. gr.


    Í stað orðanna „1. september 1996“ í 2. mgr. A-liðar ákvæðis til bráðabirgða í lögunum kemur: 1. maí 1998.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Með lögum nr. 60/1995, um breytingu á lögum um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipun, var ákveðið að á skipi með 75–220 kw. vél (u.þ.b. 101–300 hö.) skyldi vera einn vélgæslumaður sem vera mætti hinn sami og skipstjóri á skipum að 20 rúmlestum, enda eini réttindamaðurinn í áhöfn og útivera skemmri en 24 klst. nema á tímabilinu frá 1. apríl til 30. september þegar útveran mætti vera allt að 36 klst. Í ákvæði til bráðabirgða var gert ráð fyrir að efnt yrði til námskeiða í vélgæslufræðum. Þátttakendur á námskeiðunum skyldu ganga undir próf er veitti þeim rétt til atvinnuskírteinis vélgæslumanna (VM).
    Samkvæmt bráðabirgðaákvæðinu var þó ákveðið að þeir sem væru fæddir árið 1934 eða fyrr og stundað hefðu stjórn á báti 11 rúmlestir eða minni um 10 ára skeið ættu rétt á að fá útgefið atvinnuskírteini án þess að sitja vélgæslunámskeiðið, með vissum skilyrðum þó. Þá er kveðið á um það í bráðabirgðaákvæðinu að sá sem er fæddur árið 1945 eða fyrr og annast hefur vélgæslu á bátum í fimm ár geti fengið réttindi sem vélgæslumaður á skipi að 20 rúmlestum, þrátt fyrir ákvæði a–liðar 2. gr. laganna, þegar hann hefur setið námskeið í vélgæslufræðum. Gefinn var umþóttunartími til 1. september 1996 til þess að sækja slíkt námskeið. Nú hefur hins vegar tekist svo til að fyrsta námskeiðið var haldið í janúarmánuði 1997 svo að ljóst er að það hlýtur að valda margvíslegum erfiðleikum og hamla sjósókn ef aðlögunartíminn er ekki framlengdur. Fyrir þá sök er hér lagt til að miðað skuli við 1. maí 1998 í staðinn fyrir 1. september 1996, enda sýnist það í samræmi við vilja Alþingis þegar lögin voru sett.


Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 113/1984,


um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða


á íslenskum skipum, sbr. lög nr. 60/1995.


    Frumvarp þetta felur í sér breytingu á ákvæði til bráðabirgða sem leiðir til þess að sá umþóttunartími, sem gefinn var skipsstjórnarmönnum á skipi með 75–220 kw. vél til að öðlast vélgæsluréttindi, framlengist til 1. maí 1998.
    Ekki verður séð að frumvarp þetta, verði það að lögum, hafi í för með sér kostnað fyrir ríkissjóð.