Ferill 576. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 576 . mál.


949. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um réttarstöðu flóttamanna sem leita hælis hér á landi.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



    Hvenær er fyrirhugað að heildarstefna og skipulag málefna er varða flóttamenn liggi fyrir, í ljósi þess að flóttamannaráð var sett á laggirnar á árinu 1995 og hlutverk þess m.a. að leggja til við ríkisstjórn heildarstefnu og skipulag málefna er varða móttöku á flóttamönnum?
    Hefur flóttamannaráði verið falin endurskoðun á lögum nr. 45/1965, um eftirlit með útlendingum? Ef svo er, hvenær lýkur því starfi?
    Telur ráðherra að endurskoðun á lögum um eftirlit með útlendingum sé hluti af mótun heildarstefnu í málefnum flóttamanna sem leita hér hælis?