Ferill 585. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 585 . mál.


998. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



1. gr.

    Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða er orðast svo:

I.


    Þrátt fyrir ákvæði laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum, skal innheimtuhlutfall í staðgreiðslu vera 40,88% vegna launatímabila frá 1. maí 1997 til og með 31. desember 1997.

II.


    Þrátt fyrir ákvæði A- og B-liða 68. gr. laganna skal persónuafsláttur vera 286.812 kr. á ári og sjómannaafsláttur vera 671 kr. á dag við álagningu tekjuskatts og eignarskatts á árinu 1998 vegna tekna og eigna árið 1997.
    Sjómannaafsláttur, 671 kr. á dag, samkvæmt þessu ákvæði, svo og persónuafsláttur, 23.901 kr. á mánuði, skal gilda í staðgreiðslu vegna launatímabila frá 1. maí 1997 til og með 31. desember 1997.

2. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Í umfjöllun sinni um 528. mál, frumvarp til laga um breyting á lögum um tekjuskatt og eignarskatt, ákvað efnahags- og viðskiptanefnd að kljúfa úr því frumvarpi einstaka þætti sem þurfa að öðlast gildi fyrir 1. maí nk. og flytja í sérstöku frumvarpi. Um er að ræða tvö bráðabirgðaákvæði í framangreindu frumvarpi.
    Í frumvarpinu er lagt til að við staðgreiðslu opinberra gjalda á tímabilinu frá 1. maí 1997 til og með 31. desember 1997 verði tekið tillit til þess að fyrirhugað er að skattprósenta vegna tekna ársins 1997 verði lækkuð. Við álagningu ársins 1998 vegna tekna á árinu 1997 mun mismunur sem myndast við þessar breytingar leiðréttur þannig að skattalækkun vegna mánaðanna janúar til apríl skilar sér við álagningu tekjuskatts á árinu 1998.