Ferill 587. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 587 . mál.


1006. Fyrirspurn



til forsætisráðherra um stefnumótandi byggðaáætlun.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



    Hvernig hefur gengið að framfylgja því meginmarkmiði stefnumótandi byggðaáætlunar, sem samþykkt var á Alþingi í maí 1994, að draga úr fólksflutningum til höfuðborgarsvæðisins, til hvaða aðgerða hefur verið gripið í því skyni og hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar?
    Hvernig hefur miðað þeim aðgerðum sem samþykktar voru í stefnumótandi byggðaáætlun til að auka opinbera þjónustu og starfsemi opinberra stofnana á landsbyggðinni og draga að sama skapi úr sömu þjónustu og starfsemi á höfuðborgarsvæðinu? Hvernig hefur gengið að koma á samstarfi ríkisstofnana um svæðisskrifstofur þar sem það þykir hagkvæmt?