Ferill 362. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 362 . mál.


1013. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna á íslenskum skipum, nr. 112/1984, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 22. apríl.)



1. gr.


    Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr liður, svohljóðandi:
D.    Heimilt er að gefa út atvinnuskírteini samkvæmt eldri lögum til þeirra sem hófu nám fyrir gildistöku laga nr. 62/1995, um breytingu á lögum þessum, en þó ekki lengur en til 31. ágúst 1999.

2. gr.

    Lög þessi taka þegar gildi.