Ferill 591. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 591 . mál.


1034. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um skipan prestakalla og prófastsdæma og um starfsmenn þjóðkirkju Íslands, nr. 62 17. maí 1990.

Frá allsherjarnefnd.



1. gr.


    4. tölul. V. liðar 1. gr. laganna orðast svo:
    Skálholtsprestakall:
        Skálholts-, Bræðratungu-, Haukadals- og Torfastaðasóknir.
        Prestssetur: Skálholt.

2. gr.


    2. mgr. 42. gr. laganna fellur brott.

3. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða í lögunum:
    5. tölul. ákvæðis til bráðabirgða orðast svo: Nú losnar embætti sóknarprests í Bergþórshvolsprestakalli og er þá heimilt að setja prest til að gegna því embætti allt til 1. janúar 1999.
    Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Heimilt er í Grafarvogsprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra að ráða sóknarpresti annan prest til aðstoðar fram til 1. janúar 1999.

4. gr.


    Lög þessi öðlast gildi 1. júní 1997.

Greinargerð.


    Í frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á skipan Skálholtsprestakalls, en samkvæmt 2. mgr. 42. gr. laganna skal vígslubiskup í Skálholti hafa með höndum prestsþjónustu í Skálholtsprestakalli. Í 5. tölul. ákvæðis til bráðabirgða segir hins vegar að vígslubiskup gegni ekki prestsstörfum í Skálholtsprestakalli meðan núverandi sóknarprestur þjónar kallinu. Sóknarprestur sá sem nú gegnir starfi í Skálholtsprestakalli mun láta af störfum fyrir aldurs sakir 1. janúar 1998. Af hálfu biskups Íslands og sóknarnefnda Skálholtsprestakalls hafa komið fram eindregin tilmæli um að í Skálholti verði áfram starfandi sóknarprestur. Hefur verið vakin athygli á því að prestakallið sé víðfeðmara og meira krefjandi en svo að vígslubiskup geti sinnt því ásamt öðrum embættisskyldum. Starfi hans fylgja ferðalög og fjarvistir og því verður ekki unnt að veita þá þjónustu í prestakallinu sem verið hefur. Fjórar kirkjusóknir heyra undir prestakallið og þar fer fólki fjölgandi, auk þess sem gjarnan er leitað eftir sérstakri þjónustu sóknarprests vegna ört

Prentað upp.

vaxandi sumarhúsabyggðar og fjölsóttra sögustaða í prestakallinu. Rétt þykir að verða við þessum tilmælum biskups og sóknarnefnda og eru því lagðar til nauðsynlegar breytingar á lögunum.
    Einnig eru lagðar til breytingar á ákvæði til bráðabirgða, en um þessar mundir fer fram endurskoðun á Rangárvallaprófastsdæmi með það fyrir augum að fækka stöðum sóknarpresta vegna fámennis sókna og fólksfækkunar. Að svo komnu máli þykir ekki rétt að skipa prest í Bergþórshvolsprestakalli, en núverandi sóknarprestur mun láta af embætti fyrir aldurs sakir 1. júní 1997. Þess í stað er gert ráð fyrir að nágrannaprestur verði fenginn til að þjóna prestakallinu. Hefur biskup Íslands og sóknarnefnd í prestakallinu lýst sig samþykka þessu fyrir sitt leyti. Er því lagt til að sett verði inn í ákvæði til bráðabirgða heimild til að setja prest í það embætti tímabundið meðan endurskoðun á prófastsdæminu fer fram.
    Í Grafarvogsprestakalli hefur íbúafjöldi vaxið með ótrúlegum hraða og telur það nú rúmlega 13.000 íbúa. Samsetning íbúa og lega sóknarinnar, sem er langfjölmennasta sókn landsins, er með þeim hætti að ekki stendur til að kljúfa prestakallið upp í tvær sóknir eins og stendur. Vegna mikils vinnuálags á prestana tvo í prestakallinu þykir óhjákvæmilegt að fjölga um einn prest til viðbótar. Lagt er til að heimild til ráðningar prestsins gildi frá gildistöku laganna til ársloka 1998, en þá er gert ráð fyrir að lög um skipan prestakalla og prófastsdæma falli úr gildi og kirkjuþing hafi sett starfsreglur um þetta efni.