Ferill 544. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 544 . mál.


1158. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 113/1984, um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum, sbr. lög nr. 60/1995.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið. Umsögn barst nefndinni frá Vélstjórafélagi Íslands.
    Frumvarpið felur í sér breytingu á ákvæði til bráðabirgða og leiðir til þess að sá umþóttunartími sem gefinn var vélgæslumönnum, sem fæddir eru árið 1945 og fyrr, á skipi með 75–220 kw. vél til að öðlast vélgæsluréttindi framlengist frá 1. september 1996 til 1. maí 1998.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins.
    Kristín Halldórsdóttir sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 7. maí 1997.



Einar K. Guðfinnsson,

Magnús Stefánsson.

Egill Jónsson.


form., frsm.



Stefán Guðmundsson.

Kristján Pálsson.

Árni Johnsen.



Guðmundur Árni Stefánsson.

Ragnar Arnalds.

Ásta R. Jóhannesdóttir.