Ferill 609. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. –
609
. mál.
1174. Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um tjón á bílum.
Frá Guðna Ágústssyni.
Hvers vegna er reglum um skráningarferli skemmdra bifreiða ekki framfylgt nema um innfluttar tjónabifreiðar?
Hvers vegna eru skoðanavottorð bifreiða, sem skemmst hafa erlendis, viðgerðra af fagmönnum hér og skoðaðra af löggiltum aðilum, stimpluð „tjónabifreið“ sem fylgir bifreiðinni upp frá því, en slíks er ekki krafist af sams konar tjónabifreið sem skemmist hér á landi og er seld af tryggingafélagi eða eiganda?
Hvaða reglum er framfylgt varðandi tjónabíla, mismunandi mikið skemmda, sem eigandi eða sá sem eignast lætur sjálfur gera við? Eru þeir burðarvirkis- og hjólstöðumældir af skoðunarstöð, og þá að beiðni hvers?
Hve margar bifreiðar lenda í umferðaróhöppum árlega og hve stór hluti tjóna á bílum er bótaskyldur?
Hver annast skráningu og mat tjóna á bílum á tjónastað?
Hvaða eftirlit er af hálfu umferðaryfirvalda með viðgerð bifreiða sem hafa orðið fyrir bótalausu tjóni?