Ferill 614. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 614 . mál.


1226. Skýrsla



allsherjarnefndar um 176. mál, frumvarp til laga um breytingar á hjúskaparlögum, nr. 31/1993 (ellilífeyrisréttindi).

    Allsherjarnefnd hefur haft til athugunar 176. mál, frumvarp til laga um breytingar á hjúskaparlögum. Telur nefndin nauðsynlegt að huga að því sem þar kemur fram, en þar sem athugun nefndarinnar á málinu er ekki lokið að fullu ákvað hún að gera þinginu grein fyrir athuguninni með skýrslu skv. 1. mgr. 31. gr. þingskapalaga.
    Frumvarp um lífeyrisréttindi hjóna var lagt fram alls sjö sinnum frá árinu 1989, síðast á 120. löggjafarþingi, en náði ekki fram að ganga. Frumvarp það sem hér er til umfjöllunar er sama efnis. Það felur í sér að ellilífeyrisréttindi hjóna sem áunnist hafa í hjúskap, skuli teljast hjúskapareign þeirra og koma því jafnt til skipta verði slit á fjárfélagi hjónanna.
    Mál þetta hefur nokkuð verið rætt í nefndinni og eru nefndarmenn sammála um nauðsyn þess að leysa úr því vandamáli sem upp kemur ef slit verða á fjárfélagi hjóna og aðeins annar maka hefur áunnið sér lífeyrisréttindi eða lífeyrisréttindi annars eru miklum mun meiri en hins. Ljóst er að engin einföld lausn er til á þessu máli.
    Hafa þær ábendingar komið fram á fundum nefndarinnar að áður en afstaða er tekin til þess hvort eðlilegt sé að breyta hjúskaparlögum þannig að ellilífeyrisréttindi hjóna, sem ávinnast meðan á hjónabandi stendur, skuli ekki falla utan skipta við hjónaskilnað þurfi að huga að eftirfarandi atriðum:
    Í fyrsta lagi þarf að huga að gildistöku slíks ákvæðis. Meginreglan er að lög eru ekki afturvirk og því mundi lagabreyting aðeins ná til ellilífeyrisréttinda sem ávinnast eftir gildistöku laganna.
    Þá þarf að hafa í huga að réttindi hjá lífeyrissjóðum eru verðmetin með tilliti til stöðu sjóðfélagans og koma þar inn þættir eins og aldur, kyn og fleira. Samkvæmt þeim reglum sem nú er unnið eftir mundi það raska fjárhagsstöðu sjóðanna ef hjónaskilnaður ætti að leiða til þess að réttindi væru yfirfærð til maka þannig að tekið yrði tillit til stöðu hans. Þannig þarf að taka afstöðu til þess hvort það eru réttindin sem slík eða verðmæti þeirra á ákveðnum tímapunkti sem eiga að koma til skipta. Ef niðurstaðan verður sú að réttindin sjálf komi til skipta eru líkur á því að slíkt hefði mikil fjárhagsleg áhrif fyrir lífeyrissjóðina og þær tryggingafræðilegu forsendur sem þeir vinna eftir.
    Einnig þarf að huga að áhrifum umræddra breytinga á búskipti. Ef lífeyrisréttindi verða aðeins metin til fjár við hjónaskilnaði og gengið út frá því að sjálf réttindin séu óskiptanleg er hætt við að það gæti leitt til þvingaðra skipta, sérstaklega þar sem lífeyrisréttindi eru tiltölulega stór hluti af heildareignum búsins.
    Ef valin er sú leið að maki njóti eftir skipti ákveðinnar hlutdeildar í réttindum sem ráðist áfram einungis af stöðu sjóðfélagans getur komið upp einkennileg staða, til dæmis ef fráskilinn sjóðfélagi verður öryrki. Í slíku tilviki gæti fyrrverandi maki mögulega fengið hlutdeild í útborguðum örorkulífeyri, en slíkt verður að teljast óeðlilegt. Þannig þyrfti að athuga hvort hægt er að takmarka hlutfallsrétt maka við elli- og fjölskyldulífeyrisréttindi.
    Þá telur nefndin að samhliða vinnu við þetta mál eigi að huga að möguleikum þeirra sem eru utan vinnumarkaðar á að greiða til lífeyrissjóða og njóta beint eða óbeint sambærilegrar skattalegrar meðferðar og þeir sem afla tekna. Þannig gæti til dæmis komið til álita að heimila þeim makanum sem aflar tekna að draga iðgjald beggja frá tekjum sínum.
    Í ljósi þess sem rakið hefur verið hér er ljóst að kanna þarf margt betur áður en lagabreyting í þessa átt er afgreidd. Því hefur allsherjarnefnd falið nefndasviði Alþingis að vinna í sumar að mótun tillagna um málið í samvinnu við dómsmála- og fjármálaráðuneyti og mun nefndin taka málið til athugunar að nýju í haust.

Alþingi, 13. maí 1997.



Sólveig Pétursdóttir,

Valgerður Sverrisdóttir.

Jóhanna Sigurðardóttir.


form., frsm.



Árni R. Árnason.

Jón Kristjánsson.

Ögmundur Jónasson.



Hjálmar Jónsson.

Guðný Guðbjörnsdóttir.

Kristján Pálsson.