Ferill 132. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 132 . mál.


1235. Nefndarálit



um till. til þál. um þátttöku Íslendinga í alþjóðasamstarfi.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um tillöguna og fengið á sinn fund Jón Þórodd Jónsson og Friðrik Friðriksson frá Pósti og síma hf.
    Á undanförnum áratugum hefur samstarf Íslendinga við aðrar þjóðir aukist hröðum skrefum á flestum sviðum. Þessari þróun verður ekki snúið við og Íslendingum er nauðsynlegt að sinna alþjóðasamskiptum vel. Ávinningi af þessum samskiptum fylgir einnig kostnaður sem sjálfsagt er að leitast við að takmarka eins og kostur er, m.a. með notkun nýrrar tækni í fjarskiptamálum. Tekur nefndin að þessu leyti undir efni tillögunnar. Mörg einkafyrirtæki hafa tekið nýja fjarskiptatækni í þjónustu sína og mikilvægt er að hið opinbera geri það einnig í þeim tilvikum þar sem slíkt horfir til hagræðis. Í tillögunni felst þörf ábending til opinberra aðila um að kanna slíka kosti til hlítar. Með vísan til þess leggur nefndin til að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Alþingi, 7. maí 1997.



Geir H. Haarde,

Margrét Frímannsdóttir.

Siv Friðleifsdóttir.


form., frsm.



Össur Skarphéðinsson.

Tómas Ingi Olrich.

Árni R. Árnason.



Kristín Ástgeirsdóttir.

Hjálmar Árnason.

Hjálmar Jónsson.