Ferill 502. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 502 . mál.
1262. Frumvarp til laga
um breyting á þjóðminjalögum, nr. 88/1989, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 13. maí.)
1. gr.
1. gr. laganna orðast svo:Tilgangur þessara laga er að tryggja sem best varðveislu menningarsögulegra minja þjóðarinnar. Lögin kveða á um starfsemi Þjóðminjasafns Íslands og byggðasafna, fjalla um fornminjar, kirkjugripi og minningarmörk, auk friðunar húsa og annarra mannvirkja.
2. gr.
Í stað orðanna „safnstjóri Þjóðminjasafns“ í 4. málsl. 2. mgr. 2. gr. laganna kemur: staðgengill hans.3. gr.
5. gr. laganna orðast svo:
Þjóðminjasafn Íslands er eign íslenska ríkisins. Það er miðstöð þjóðminjavörslu í landinu.
Um skipulag safnsins skal mælt fyrir í reglugerð að fengnum tillögum þjóðminjaráðs. Sérsöfn geta haft stöðu deilda í Þjóðminjasafni.
Þjóðminjavörður ræður starfsmenn Þjóðminjasafns. Skulu yfirmenn stjórnunareininga safnsins og aðrir sérfræðingar hafa sérfræðimenntun á starfssviði sínu.
4. gr.
Síðasti málsliður 22. gr. laganna fellur brott.5. gr.
Í stað ártalsins „1900“ í 2. mgr. 36. gr. laganna kemur ártalið: 1918.6. gr.
5. mgr. 46. gr. laganna orðast svo:Varsla og reikningshald sjóðsins skal falið bankastofnun nema húsafriðunarnefnd ákveði aðra tilhögun að fengnu samþykki menntamálaráðuneytis.
7. gr.
Ákvæði til bráðabirgða í lögunum orðast svo:Ráðið skal í allar stöður minjavarða, sbr. 4. gr., fyrir árslok 2000.
8. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.