Ferill 189. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 189 . mál.
1278. Frumvarp til laga
um breytingar á sérákvæðum í lögum er varða réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
(Eftir 2. umr., 14. maí.)
I. KAFLI
FORSÆTISRÁÐUNEYTI
Breyting á lögum nr. 73/1969, um Stjórnarráð Íslands.
1. gr.
1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:Forsætisráðherra felur starfsmanni forsætisráðuneytis að gegna störfum ritara ráðherrafunda.
2. gr.
7. gr. laganna orðast svo:Ráðherra kveður á um skiptingu ráðuneytis í skrifstofur og starfsdeildir eftir verkefnum.
3. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 11. gr. laganna:Skrifstofu ráðuneytis stýrir skrifstofustjóri og starfsdeild deildarstjóri undir umsjón ráðuneytisstjóra.
Nú er starfsmaður ráðuneytis ráðinn deildarstjóri og þarf þá eigi að auglýsa stöðuna sem hann er fluttur í.
4. gr.
Við 12. gr. laganna bætist nýr málsliður er orðast svo: Heimilt er þó ráðherra að ráða starfsmenn í ráðuneyti undir öðrum starfsheitum.5. gr.
13. gr. laganna orðast svo:Ráðherra skipar ráðuneytisstjóra og skrifstofustjóra til fimm ára í senn.
Aðrir starfsmenn ráðuneytis eru ráðnir.
6. gr.
Í stað orðsins „deildarstjóri“ í 14. gr. laganna kemur: skrifstofustjóri.Breyting á lögum nr. 54/1974, um Þjóðhagsstofnun.
7. gr.
2. mgr. 1. gr. laganna orðast svo:Stofnunin nefnist Þjóðhagsstofnun og heyrir undir forsætisráðherra. Ráðherra skipar forstjóra hennar til fimm ára í senn.
Breyting á lögum nr. 64/1985, um Byggðastofnun.
8. gr.
1. tölul. 5. gr. laganna fellur brott og breytist röð annarra liða í samræmi við það.9. gr.
6. gr. laganna orðast svo:Forsætisráðherra skipar forstjóra til fimm ára í senn til að annast daglega stjórn stofnunarinnar.
10. gr.
2. málsl. 6. tölul. 7. gr. laganna fellur brott.11. gr.
Breyting á lögum nr. 83/1994, um umboðsmann barna.
1. málsl. 1. mgr. 2. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar umboðsmann barna til fimm ára í senn.
II. KAFLI
DÓMS- OG KIRKJUMÁLARÁÐUNEYTI
Breyting á lögum nr. 94/1962, um almannavarnir, með síðari breytingu.
12. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 4. mgr. 6. gr. laganna eins og henni var breytt með 3. gr. laga nr. 85/1985:13. gr.
Í stað orðsins „skipar“ í 1. málsl. 4. mgr. 8. gr. laganna, eins og henni var breytt með 5. gr. laga nr. 85/1985, kemur: ræður.Breyting á lögum nr. 25/1967, um Landhelgisgæslu Íslands.
14. gr.
3. gr. laganna orðast svo:Ráðherra skipar forstjóra til fimm ára í senn til þess að stjórna Landhelgisgæslunni, svo og til að vera ráðherra til aðstoðar um allt er lýtur að málefnum hennar.
15. gr.
Í stað orðanna „lög nr. 56/1963 og lög nr. 82/1961, V. kafli“ í 1. mgr. 5. gr. laganna kemur: lög um lögreglumenn og lög um meðferð opinberra mála.Breyting á lögum nr. 56/1972, um lögreglumenn.
16. gr.
Við 1. málsl. 2. mgr. 3. gr. laganna bætist: til fimm ára í senn.Breyting á lögum nr. 75/1973, um Hæstarétt Íslands, með síðari breytingu.
17. gr.
2. málsl. 1. mgr. 2. gr. laganna, eins og henni var breytt með 1. gr. laga nr. 39/1994, orðast svo: Forseti Íslands skipar hæstaréttardómara ótímabundið.18. gr.
1. mgr. 8. gr. laganna, eins og henni var breytt með 5. gr. laga nr. 67/1982, orðast svo:Forseti Hæstaréttar skipar dóminum ritara til fimm ára í senn og ræður sérfróða aðstoðarmenn og annað starfslið.
Breyting á lögum nr. 18/1975, um trúfélög.
19. gr.
2. málsl. 1. mgr. 17. gr. laganna orðast svo: Hann skal hafa almenn hæfisskilyrði til opinberra starfa, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.Breyting á lögum nr. 108/1976, um rannsóknarlögreglu ríkisins, með síðari breytingu.
20. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 2. gr. laganna eins og henni var breytt með 2. gr. laga nr. 5/1978:Ráðherra skipar yfirmann rannsóknarlögreglu ríkisins til fimm ára í senn og nefnist hann rannsóknarlögreglustjóri ríkisins.
Ráðherra skipar lögreglumenn rannsóknarlögreglunnar til fimm ára í senn. Rannsóknarlögreglustjóri ræður annað starfslið, þar á meðal löglærða deildarstjóra og/eða fulltrúa.
Breyting á umferðarlögum, nr. 50/1987, með síðari breytingu.
21. gr.
3. mgr. 114. gr. laganna, eins og henni var breytt með 3. gr. laga nr. 12/1992, orðast svo:Ráðherra skipar framkvæmdastjóra Umferðarráðs til fimm ára í senn að fengnum tillögum stjórnar þess.
Breyting á lögum nr. 48/1988, um fangelsi og fangavist.
22. gr.
1. málsl. 4. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar forstjóra fangelsismálastofnunar til fimm ára í senn.23. gr.
1. málsl. 1. mgr. 5. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar forstöðumann fangelsis til fimm ára í senn.
24. gr.
2. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar fangaverði til fimm ára í senn, en forstöðumaður stofnunar ræður aðra starfsmenn.Breyting á lögum nr. 92/1989, um aðskilnað dómsvalds og
umboðsvalds í héraði, með síðari breytingu.
25. gr.
1. málsl. 5. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar héraðsdómara ótímabundið.
26. gr.
Á eftir orðinu „héraðsdómstól“ í 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna, eins og henni var breytt með 1. gr. laga nr. 80/1995, kemur: til fimm ára í senn.27. gr.
1. málsl. 14. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar sýslumenn til fimm ára í senn.28. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 15. gr. laganna:Breyting á lögum nr. 19/1991, um meðferð opinberra mála.
29. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 25. gr. laganna:Breyting á lögum nr. 84/1996, um breyting á lögum um meðferð opinberra mála,
nr. 19 26. mars 1991, með síðari breytingum.
30. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 1. gr. laganna:Breyting á lögreglulögum, nr. 90/1996.
31. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 28. gr. laganna:32. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 37. gr. laganna:III. KAFLI
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTI
Breyting á lögum nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur, með síðari breytingu.
33. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 20. gr. laganna, sbr. a-lið 5. gr. laga nr. 75/1996:Ráðherra ræður einnig vararíkissáttasemjara og skal hann fullnægja sömu skilyrðum og ríkissáttasemjari.
Breyting á lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti
og öryggi á vinnustöðum.
34. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 76. gr. laganna:Ráðherra skipar forstjóra Vinnueftirlits ríkisins til fimm ára í senn og setur honum erindisbréf, hvort tveggja að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar.
Breyting á lögum nr. 28/1991, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
35. gr.
Í stað 1. málsl. 2. mgr. 15. gr. laganna koma tveir nýir málsliðir er orðast svo: Jafnréttisráð hefur skrifstofu og skipar ráðherra framkvæmdastjóra þess til fimm ára í senn. Framkvæmdastjóri ræður aðra starfsmenn.Breyting á lögum nr. 41/1992, um brunavarnir og brunamál.
36. gr.
Í stað orðsins „sex“ í 1. málsl. 3. mgr. 3. gr. laganna kemur: fimm.Breyting á lögum nr. 97/1993, um Húsnæðisstofnun ríkisins.
37. gr.
Í stað orðsins „sex“ í 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: fimm.IV. KAFLI
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTI
Breyting á lögum nr. 52/1966, um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings
og fjárlaga, með síðari breytingu.
38. gr.
2. málsl. 1. mgr. 90. gr., sbr. 19. gr. laga nr. 84/1985, laganna orðast svo: Hann ber ábyrgð á störfum ríkisbókhaldsins og skal skipaður af ráðherra til fimm ára í senn.Breyting á lögum nr. 63/1969, um verslun með áfengi og tóbak.
39. gr.
1. mgr. 4. gr. laganna orðast svo:Ráðherra skipar forstjóra Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til fimm ára í senn. Forstjóri ræður aðra starfsmenn.
Breyting á lögum nr. 103/1974, um lántökur ríkissjóðs og ríkisfyrirtækja.
40. gr.
Í stað orðanna „III. kafla laga nr. 38/1954“ í 6. gr. laganna kemur: lögum.Breyting á lögum nr. 94/1976, um skráningu og
mat fasteigna, með síðari breytingu.
41. gr.
7. gr. laganna, eins og henni var breytt með 2. gr. laga nr. 51/1994, orðast svo:Fasteignamat ríkisins starfar undir stjórn forstjóra sem ráðherra skipar til fimm ára í senn. Forstjóri ræður starfsfólk og kaupir sérfræðilega aðstoð eftir því sem nauðsyn ber til og heimildir fjárlaga hverju sinni segja til um.
Breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og
eignarskatt, með síðari breytingum.
42. gr.
2. málsl. 1. mgr. 86. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar skattstjóra til fimm ára í senn.43. gr.
Í stað orðsins „skipa“ í 1. málsl. 1 mgr. 87. gr. laganna kemur: ráða.44. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 88. gr. laganna:Þá ræður ráðherra vararíkisskattstjóra sem skal fullnægja sömu skilyrðum og ríkisskattstjóri.
45. gr.
1. málsl. 89. gr. laganna, eins og henni var breytt með 14. gr. laga nr. 111/1992, orðast svo: Ráðherra skipar skattrannsóknarstjóra ríkisins til fimm ára í senn.Breyting á lögum nr. 51/1985, um ríkislögmann.
46. gr.
1. málsl. 2. mgr. 1. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar ríkislögmann til fimm ára í senn.Breyting á lögum nr. 52/1987, um opinber innkaup.
47. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 4. gr. laganna:Breyting á lögum nr. 51/1985, um ríkislögmann.
48. gr.
Orðin „allt að þrír“ í 1. mgr. 3. gr. laganna falla brott.Breyting á tollalögum nr. 55/1987, með síðari breytingu.
49. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 31. gr. laganna, eins og henni var breytt með a-lið 17. gr. laga nr. 69/1996:50. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 36. gr. laganna, eins og henni var breytt með f-lið 17. gr. laga nr. 69/1996:Ráðherra skipar tollverði til fimm ára í senn. Tollstjórar ráða aðra tollstarfsmenn og skipta með þeim störfum og starfa þeir í umboði og á ábyrgð viðkomandi tollyfirvalds.
Breyting á lögum nr. 43/1990, um Lánasýslu ríkisins.
51. gr.
1. málsl. 8. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar forstjóra Lánasýslu ríkisins til fimm ára í senn.Breyting á lögum nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
52. gr.
1.–3. tölul. 7. mgr. ákvæðis laganna til bráðabrigða falla brott.V. KAFLI
HAGSTOFA ÍSLANDS
Breyting á lögum nr. 24/1913, um hagstofu Íslands, með síðari breytingu.
53. gr.
5. gr. laganna, eins og henni var breytt með 8. gr. laga nr. 71/1919, orðast svo:Hagstofunni stýrir hagstofustjóri skipaður af ráðherra til fimm ára í senn.
VI. KAFLI
HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTI
Breyting á áfengislögum, nr. 82/1969.
54. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 26. gr. laganna:Breyting á lögum nr. 35/1980, um Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.
55. gr.
2. gr. laganna orðast svo:Ráðherra skipar framkvæmdastjóra stofnunarinnar til fimm ára að fengnum tillögum stjórnar. Framkvæmdastjóri ræður yfirlækni, að fengnum tillögum stöðunefndar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, og aðra starfsmenn stofnunarinnar.
Breyting á lögum nr. 18/1984, um Þjónustu- og endurhæfingarstöð sjónskertra.
56. gr.
2. gr. laganna orðast svo:Ráðherra skipar yfirlækni til fimm ára í senn að fengnum tillögum stöðunefndar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu. Yfirlæknir ræður aðra starfsmenn stofnunarinnar.
Breyting á lögum nr. 117/1985, um geislavarnir.
57. gr.
1. málsl. 5. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar forstöðumann stofnunarinnar til fimm ára í senn að fengnum tillögum stjórnar.58. gr.
3. málsl. 6. gr. laganna orðast svo: Forstöðumaður ræður starfsfólk stofnunarinnar.Breyting á lögum nr. 97/1990, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingu.
59. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 3. mgr. 3. gr. laganna:60. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 6. gr. laganna, eins og henni var breytt með 7. gr. laga nr. 148/1994:61. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 21. gr. laganna:Ráðherra skipar þá framkvæmdastjóra heilsugæslustöðva sem gegna fullu starfi til fimm ára í senn að fengnum tillögum stjórna stöðvanna og hafa þeir sömu skyldur og framkvæmdastjórar sjúkrahúsa skv. 29. gr., sbr. og 8. mgr. 30. gr. Fer um mat á hæfni þeirra skv. 30. gr.
62. gr.
22. gr. laganna orðast svo:Þar sem ekki er skipaður framkvæmdastjóri í fullt starf ráða stjórnir heilsugæslustöðva starfslið stöðvanna og fer um laun þeirra samkvæmt kjarasamningum við opinbera starfsmenn.
63. gr.
Í 6. mgr. 29. gr. laganna falla brott orðin „yfirlæknum, hjúkrunarforstjórum og“.64. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 30. gr. laganna:Forstjóri ríkisspítala skv. 1. mgr. og framkvæmdastjórar sjúkrahúsa skv. 3. mgr. ráða annað starfslið sjúkrahúsa ríkisins. Um ákvörðun launa fer samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
65. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 31. gr. laganna:Breyting á lögum nr. 117/1993, um almannatryggingar.
66. gr.
3. málsl. 2. mgr. 2. gr. laganna orðast svo: Ráðherra er heimilt að staðfesta skipurit fyrir stofnunina að fengnum tillögum tryggingaráðs og forstjóra stofnunarinnar.67. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 3. gr. laganna:Ráðherra skipar forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins til fimm ára í senn og tryggingayfirlækni, hvorn um sig að fengnum tillögum tryggingaráðs.
Forstjóri ræður skrifstofustjóra, tryggingafræðing, aðalgjaldkera og deildarstjóra að fengnum tillögum tryggingaráðs og tryggingalækni að fengnum tillögum tryggingaráðs og tryggingayfirlæknis. Forstjóri ræður einnig aðra starfsmenn.
68. gr.
2. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna fellur brott.VII. KAFLI
IÐNAÐARRÁÐUNEYTI
Breyting á lögum nr. 64/1965, um rannsóknir í þágu
atvinnuveganna, með síðari breytingu.
69. gr.
50. gr. laganna, sbr. 1. gr. laga nr. 107/1974, orðast svo:Ráðherra skipar forstjóra stofnunarinnar til fimm ára í senn. Forstjóri skal hafa lokið háskólaprófi. Forstjóri ræður annað starfslið stofnunarinnar.
70. gr.
2. mgr. 55. gr. laganna, sbr. 1. gr. laga nr. 107/1974, orðast svo:Ráðherra ákveður deildaskiptingu í rannsóknastofnunum. Forstjóri ræður deildarstjóra viðkomandi stofnunar. Deildarstjórar og sérfræðingar skulu hafa lokið meistaraprófi eða öðrum hliðstæðum háskólaprófum í fræðigrein sinni. Þó skal forstjóra heimilt að víkja frá þessu ákvæði hafi umsækjandi á annan hátt sannað vísindalega hæfni sína.
Breyting á lögum nr. 47/1968, um vörumerki.
71. gr.
2. málsl. 12. gr. laganna orðast svo: Skráninguna annast vörumerkjaskráritari er ráðherra skipar til fimm ára í senn.Breyting á orkulögum, nr. 58/1967, með síðari breytingu.
72. gr.
1. málsl. 3. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar framkvæmdastjóra Orkustofnunar til fimm ára í senn.73. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 5. gr. laganna:74. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 60. gr. laganna, sbr. 2. gr. laga nr. 53/1985:Breyting á lögum nr. 41/1978, um Iðntæknistofnun Íslands.
75. gr.
Í stað orðsins „4ra“ í 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna kemur: fimm.76. gr.
1. mgr. 7. gr. laganna orðast svo:Forstjóri ræður framkvæmdastjóra aðaldeilda.
77. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 10. gr. laganna:Starfslið stofnunarinnar skal ýmist ráðið ótímabundið með gagnkvæmum uppsagnarfresti eða til ákveðins tíma, t.d. til ákveðinna verkefna.
VIII. KAFLI
LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTI
Breyting á lögum nr. 91/1936, um garðyrkjuskóla ríkisins.
78. gr.
1. málsl. 6. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar skólastjóra garðyrkjuskóla ríkisins til fimm ára í senn og ræður hann kennara og annað starfslið skólans.Breyting á lögum nr. 3/1955, um skógrækt.
79. gr.
2. málsl. 2. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar skógræktarstjóra til fimm ára er annast framkvæmd þessara mála.80. gr.
1. málsl. 3. gr. laganna orðast svo: Skógræktarstjóri ræður skógarverði.Breyting á lögum nr. 17/1965, um landgræðslu, með síðari breytingum.
81. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 3. gr. laganna, eins og henni var breytt með 2. gr. laga nr. 54/1975 og 8. gr. laga nr. 73/1996:82. gr.
4. gr. laganna orðast svo:Landgræðslustjóra er heimilt að ráða landgræðsluverði sér til aðstoðar.
Breyting á lögum nr. 64/1965, um rannsóknir í þágu
atvinnuveganna, með síðari breytingu.
83. gr.
1. og 2. málsl. 32. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar forstjóra til fimm ára í senn. Forstjóri skal hafa lokið háskólaprófi.Breyting á lögum nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði, með síðari breytingu.
84. gr.
1. málsl. 1. mgr. 86. gr. laganna, eins og henni var breytt með 6. gr. laga nr. 63/1994, orðast svo: Ráðherra skipar veiðimálastjóra til fimm ára í senn.Breyting á lögum nr. 55/1978, um búnaðarfræðslu.
85. gr.
7. gr. laganna orðast svo:Ráðherra skipar skólastjóra til fimm ára í senn og hafa þeir á hendi stjórn skóla, skólabús, rannsókna og annarrar starfsemi skólans.
86. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 9. gr. laganna:Skólastjóri ræður fasta kennara og stundakennara.
Ráða má bústjóra við skólabúin með sömu kjörum og kennara, enda hafi þeir sambærilega menntun.
87. gr.
1. og 2. mgr. 21. gr. laganna orðast svo:Skólastjóri ræður fasta kennara sem fullnægja skulu sömu kröfum og gerðar eru til háskólakennara og njóta sömu kjara.
Skólastjóri ræður kennara og annað starfslið.
Breyting á lögum nr. 77/1981, um dýralækna, með síðari breytingu.
88. gr.
1. mgr. 5. gr. laganna, eins og henni var breytt með 3. gr. laga nr. 54/1989, orðast svo:Ráðherra skipar yfirdýralækni, héraðsdýralækna og dýralækni fisksjúkdóma til fimm ára í senn.
89. gr.
Í stað orðsins „launalögum“ í 3. málsl. 16. gr. laganna, eins og henni var breytt með 41. gr. laga nr. 108/1988, kemur: ákvörðun kjaranefndar.Breyting á lögum nr. 63/1989, um Hagþjónustu landbúnaðarins.
90. gr.
Við 3. gr. laganna bætist ný málsgrein, 3. mgr., er orðast svo:Ráðherra skipar forstöðumann til fimm ára í senn.
91. gr.
1. tölul. 4. gr. laganna fellur brott og breytist röð annarra töluliða í samræmi við það.
Breyting á lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
92. gr.
Í stað 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna koma tveir málsliðir sem orðast svo: Skal það nefnast aðfangaeftirlit og skipar ráðherra forstöðumann þess til fimm ára í senn. Forstöðumaður hefur á hendi umsjón með framkvæmd laga þessara og reglugerða sem settar verða samkvæmt þeim.IX. KAFLI
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTI
Breyting á íþróttalögum, nr. 49/1956.
93. gr.
3. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna fellur brott.Breyting á lögum nr. 38/1965, um Myndlista- og handíðaskóla Íslands.
94. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 9. gr. laganna:Skólastjóri skal skipaður af ráðherra til fimm ára í senn að fengnum tillögum skólastjórnar. Skólastjóri ræður kennara og annað starfslið skólans.
95. gr.
1. mgr. 10. gr. laganna fellur brott.96. gr.
11. gr. laganna fellur brott.Breyting á lögum nr. 24/1970, um æskulýðsmál.
97. gr.
4. gr. laganna fellur brott.Breyting á lögum nr. 65/1972, um Íþróttakennaraskóla Íslands.
98. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 9. gr. laganna:Skólastjóri skal skipaður af ráðherra til fimm ára í senn. Kennarar og aðrir starfsmenn skólans skulu ráðnir af skólastjóra.
99. gr.
2. mgr. 10. gr. laganna fellur brott.100. gr.
1. mgr. 11. gr. laganna orðast svo:
Launakjör skjólastjóra skulu ákveðin samkvæmt lögum um kjaranefnd. Launakjör kennara og annarra fastra starfsmanna skulu ákveðin samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
Breyting á lögum nr. 66/1972, um Tækniskóla Íslands.
101. gr.
2. gr. laganna orðast svo:Ráðherra fer með yfirstjórn skólans og skipar skólanefnd. Ráðherra skipar rektor til fimm ára í senn.
102. gr.
3. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:Enn fremur ræður hann kennara og annað starfsfólk skólans.
103. gr.
Í stað orðsins „skipa“ í 2. mgr. 6. gr. laganna kemur: ráða.Breyting á lögum nr. 70/1972, um Stofnun Árna Magnússonar.
104. gr.
2. málsl. 5. gr. laganna orðast svo: Þeir skulu ráðnir af forstöðumanni.
Breyting á lögum nr. 10/1973, um Fósturskóla Íslands.
105. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 17. gr. laganna:Ráðherra skipar skólastjóra til fimm ára í senn. Skólastjóri ræður kennara og aðra starfsmenn.
Breyting á lögum nr. 37/1975, um Leiklistarskóla Íslands.
106. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 3. gr. laganna:Breyting á lögum um almenningsbókasöfn, nr. 50/1976.
107. gr.
2. og 3. málsl. 10. gr. laganna falla brott.Breyting á lögum nr. 58/1978, um Þjóðleikhús.
108. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 6. gr. laganna:Skipaður skal maður með staðgóða þekkingu á starfi leikhúsa. Starfið skal auglýsa samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Endurnýja má skipun þjóðleikhússtjóra einu sinni til næstu fimm ára, ef meiri hluti þjóðleikhúsráðs mælir með því. Ella skal skipa annan þjóðleikhússtjóra, eftir að starfið hefur verið auglýst að nýju og að fenginni umsögn þjóðleikhúsráðs.
109. gr.
Í stað orðanna „menntamálaráðuneytið skipar“ í 1. mgr. 7. gr. laganna kemur: þjóðleikhússtjóri ræður.110. gr.
Í stað orðsins „ráðinn“ í 2. málsl. 10. gr. laganna kemur: skipaður.111. gr.
Í stað orðsins „ráðinn“ í 1. málsl. 2. mgr. 13. gr. laganna kemur: skipaður.Breyting á lögum nr. 35/1982, um Blindrabókasafn Íslands.
112. gr.
3. málsl. 4. gr. laganna orðast svo: Forstöðumaður Blindrabókasafns ræður starfslið stofnunarinnar.113. gr.
Í stað orðsins „þriggja“ í 3. málsl. 6. gr. laganna kemur: fimm.Breyting á lögum nr. 94/1984, um kvikmyndamál.
114. gr.
4. gr. laganna orðast svo:Ráðherra skipar framkvæmdastjóra sjóðsins til fimm ára í senn, að fengnum tillögum sjóðstjórnar. Framkvæmdastjóri ræður annað starfsfólk.
Breyting á lögum nr. 40/1985, um Þroskaþjálfaskóla Íslands.
115. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 4. gr. laganna:Skólastjóri ræður kennara og annað starfslið skólans.
Breyting á lögum nr. 66/1985, um Þjóðskjalasafn Íslands.
116. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 1. gr. laganna:Ráðherra skipar þjóðskjalavörð til fimm ára í senn að fenginni umsögn stjórnarnefndar safnsins. Þjóðskjalavörður annast daglegan rekstur og stjórn safnsins og kemur fram fyrir hönd þess út á við.
Þjóðskjalavörður ræður skjalaverði og aðra fasta starfsmenn. Við safnið starfi skjalfræðingur eða sagnfræðingur með skjalfræðimenntun.
Breyting á útvarpslögum, nr. 68/1985.
117. gr.
1. mgr. 18. gr. laganna orðast svo:Ráðherra skipar útvarpsstjóra til fimm ára í senn. Útvarpsstjóri annast rekstur Ríkisútvarpsins, sér um fjárreiður þess og semur ár hvert fjárhagsáætlun þess.
118. gr.
Í stað orðsins „skipaðir“ í 2. málsl. 6. mgr. 21. gr. laganna kemur: ráðnir.Breyting á lögum nr. 75/1985, um fjárhagslegan stuðning
við tónlistarskóla, með síðari breytingu.
119. gr.
2. málsl. 1. mgr. 12. gr. laganna, eins og henni var breytt með 71. gr. laga nr. 87/1989, fellur brott.120. gr.
Í stað orðanna „námsstjóri tónmennta í grunnskólum, skipaður án tilnefningar, námsstjóri tónlistarfræðslunnar, skipaður án tilnefningar, og er hann jafnframt formaður nefndarinnar“ í 2. mgr. 13. gr. laganna kemur: tveir fulltrúar án tilnefningar og er annar þeirra formaður nefndarinnar.Breyting á lögum nr. 50/1986, um Rannsóknadeild fisksjúkdóma.
121. gr.
1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:Forstöðumaður Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði ræður deildarstjóra Rannsóknadeildar fisksjúkdóma, sbr. lög nr. 67/1990.
Breyting á lögum nr. 58/1988, um Listasafn Íslands.
122. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 4. gr. laganna:123. gr.
5. gr. laganna orðast svo:Forstöðumaður ræður nauðsynlegt starfslið.
Breyting á þjóðminjalögum, nr. 88/1989, með síðari breytingu.
124. gr.
Orðin „til fimm ára í senn“ í 2. málsl. 3. mgr. 4. gr. laganna, eins og henni var breytt með 3. gr. laga nr. 98/1994, falla brott.125. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 5. gr. laganna, eins og henni var breytt með 4. gr. laga nr. 98/1994:Breyting á lögum nr. 2/1990, um Íslenska málnefnd.
126. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 4. gr. laganna:Forstöðumaður ræður annað starfsfólk. Hann stjórnar daglegum rekstri málstöðvarinnar, gefur árlega skýrslu um starfsemi stöðvarinnar og leysir af hendi önnur þau verkefni sem málnefndin felur honum.
Breyting á lögum nr. 58/1990, um launasjóð stórmeistara í skák.
127. gr.
Orðin „nr. 38/1954“ í 5. gr. laganna falla brott.Breyting á lögum nr. 67/1990, um Tilraunastöð Háskóla Íslands
í meinafræði að Keldum.
128. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 1. mgr. 5. gr. laganna:129. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 6. gr. laganna:Breyting á lögum nr. 129/1990, um Samskiptamiðstöð
heyrnarlausra og heyrnarskertra.
130. gr.
5. gr. laganna orðast svo:Forstöðumaður ræður annað starfsfólk.
Breyting á lögum nr. 131/1990, um Háskóla Íslands.
131. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:132. gr.
Í stað orðsins „kennaraembætti“ í 2. málsl. 2. mgr. 4. gr. laganna kemur: kennarastarfi.133. gr.
1. mgr. 12. gr. laganna orðast svo:Þegar sérstaklega stendur á getur menntamálaráðherra, samkvæmt tillögu háskóladeildar og með samþykki háskólaráðs, boðið vísindamanni að taka við prófessorsstarfi við háskólann án þess að það sé auglýst laust til umsóknar. Á sama hátt getur rektor boðið vísindamanni að taka við lektors- eða dósentsstarfi.
134. gr.
Í stað orðanna „menntamálaráðherra veitir lausn“ í 1. málsl. 2. mgr. 14. gr. laganna kemur: fær lausn.135. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 2. mgr. 18. gr. laganna:136. gr.
Í stað orðsins „stöðuna“ í 4. málsl. 19. gr. laganna kemur: starfið.137. gr.
37. gr. laganna orðast svo:Ný prófessorsstörf verða stofnuð með ákvörðun menntamálaráðherra, að fengnum tillögum háskólaráðs og háskóladeildar. Önnur ný kennarastörf verða stofnuð með ákvörðun rektors, að fengnum tillögum háskóladeildar.
138. gr.
Í stað orðanna „slíkar stöður“ í 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna kemur: slík störf.139. gr.
Í stað orðanna „Kennaraembætti og kennarastöður“ í heiti VIII. kafla laganna kemur: Kennarastörf.Breyting á lögum nr. 21/1992, um Lánasjóð íslenskra námsmanna.
140. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 4. mgr. 4. gr. laganna:Breyting á lögum nr. 76/1993, um Rannsóknastofnun
uppeldis- og menntamála.
141. gr.
Í stað orðsins „ráðinn“ í 1. málsl. 5. gr. laganna kemur: skipaður.Breyting á lögum nr. 61/1994, um Rannsóknarráð Íslands.
142. gr.
1. málsl. 1. mgr. 5. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar framkvæmdastjóra til fimm ára í senn.Breyting á lögum nr. 71/1994, um Landsbókasafn – Háskólabókasafn.
143. gr.
1. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar landsbókavörð til fimm ára í senn.144. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 1. mgr. 4. gr. laganna:X. KAFLI
SAMGÖNGURÁÐUNEYTI
Breyting á lögum nr. 119/1950, um stjórn flugmála, með síðari breytingu.
145. gr.
2. gr. laganna, sbr. lög nr. 26/1954, orðast svo:Ráðherra skipar flugmálastjóra til fimm ára í senn að fengnum tillögum flugráðs. Flugmálastjóri veitir Flugmálastjórn Íslands forstöðu og annast daglega stjórn hennar undir yfirstjórn samgönguráðherra. Í erindisbréfi flugmálastjóra, er ráðherra setur að fengnum tillögum flugráðs, skal nánar kveðið á um störf hans.
Ráðherra ræður framkvæmdastjóra að fengnum tillögum flugmálastjóra og flugráðs. Flugmálastjóri ræður aðra starfsmenn Flugmálastjórnar.
Hlutverk Flugmálastjórnar er að fara með framkvæmdarvald samkvæmt lögum um loftferðir og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum á sviði flugmála.
Breyting á vegalögum, nr. 45/1994.
146. gr.
Í stað 2. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna koma þrír nýir málsliðir er orðast svo: Til að stjórna framkvæmdum í þessum málum skipar ráðherra vegamálastjóra til fimm ára í senn og veitir hann Vegagerðinni forstöðu. Ráðherra ræður aðstoðarvegamálastjóra að fengnum tillögum vegamálastjóra. Vegamálastjóri ræður aðra starfsmenn Vegagerðarinnar.Breyting á lögum nr. 117/1994, um skipulag ferðamála.
147. gr.
1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo:Að fenginni umsögn Ferðamálaráðs skipar ráðherra ferðamálastjóra til fimm ára í senn. Ferðamálastjóri annast daglega stjórn Ferðamálaráðs samkvæmt því sem ráðið ákveður.
XI. KAFLI
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTI
Breyting á lögum nr. 64/1965, um rannsóknir í þágu
atvinnuveganna, með síðari breytingu.
148. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 13. gr. laganna, eins og henni var breytt með 1. gr. laga nr. 72/1984:Forstjóri ræður annað starfslið stofnunarinnar.
149. gr.
22. gr. laganna orðast svo:Ráðherra skipar forstjóra til fimm ára í senn og ræður aðstoðarforstjóra, hvort tveggja að fengnum tillögum stjórnar. Ráðherra ræður forstöðumenn sviða að fengnum tillögum stjórnar og forstjóra. Forstjóri ræður annað starfsfólk. Hann skal hafa lokið háskólaprófi. Ráðherra ákveður stjórnskipulag Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins.
Breyting á lögum nr. 36/1992, um Fiskistofu.
150. gr.
1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:Ráðherra skipar forstöðumann Fiskistofu, fiskistofustjóra, til fimm ára í senn.
XII. KAFLI
UMHVERFISRÁÐUNEYTI
Breyting á skipulagslögum, nr. 19/1964.
151. gr.
1. málsl. 1. mgr. 2. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar skipulagsstjóra ríkisins til fimm ára í senn að fengnum tillögum skipulagsstjórnar.Breyting á lögum nr. 30/1985, um Veðurstofu Íslands.
152. gr.
2. mgr. 2. gr. laganna orðast svo:Veðurstofustjóri ræður annað starfsfólk stofnunarinnar.
Breyting á lögum nr. 31/1985, um Landmælingar Íslands.
153. gr.
3. gr. laganna orðast svo:Forstjóri ræður aðra starfsmenn stofnunarinnar.
Breyting á lögum nr. 81/1988, um hollustuhætti
og heilbrigðiseftirlit, með síðari breytingu.
154. gr.
Eftirtaldar breytingar verða á 14. gr. laganna, eins og henni var breytt með 2. gr. laga nr. 70/1995:Breyting á lögum nr. 60/1992, um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.
155. gr.
4. málsl. 7. gr. laganna orðast svo: Forstjóri ræður deildarstjóra og sérfræðinga.Breyting á lögum nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar
á villtum fuglum og villtum spendýrum.
156. gr.
1. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna orðast svo: Ráðherra skipar veiðistjóra til fimm ára í senn að fengnum tillögum ráðgjafarnefndar um villt dýr.XIII. KAFLI
UTANRÍKISRÁÐUNEYTI
Breyting á lögum nr. 39/1971, um utanríkisþjónustu Íslands.
157. gr.
Í stað orðanna „sem til þess eru skipaðir“ í 2. mgr. 3. gr. laganna kemur: sem það er falið.158. gr.
Í stað orðsins „embættismanna“ í 1. mgr. 7. gr. laganna kemur: starfsmanna.159. gr.
9. gr. laganna orðast svo:Ráðherra skipar til fimm ára í senn þá starfsmenn sem taldir eru í 1. og 2. flokki 8. gr. Heimilt er þó að skipa kjörræðismenn ótímabundið. Aðrir starfsmenn eru ráðnir.
160. gr.
10. gr. laganna orðast svo:Starfsmenn utanríkisþjónustunnar eru skyldir til að starfa sem fulltrúar utanríkisþjónustunnar erlendis eða í utanríkisráðuneytinu samkvæmt ákvörðun ráðherra. Eigi þarf nýja skipun þótt embættismaður sé fluttur milli staða eða starfa innan sama flokks skv. 8. gr. en skipunartími hans framlengist við flutninginn til fimm ára í senn.
161. gr.
Í stað orðsins „embættismenn“ í 2. mgr. 11. gr. laganna kemur: starfsmenn.XIV. KAFLI
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTI
Breyting á lögum nr. 36/1986, um Seðlabanka Íslands.
162. gr.
Í stað orðsins „sex“ í 2. málsl. 2. mgr. 13. gr. laganna kemur: fimm.163. gr.
Í stað orðsins „sex“ í 2. málsl. 2. mgr. 26. gr. laganna kemur: fimm.Breyting á samkeppnislögum nr. 8/1993.
164. gr.
Í stað orðsins „sex“ í 1. málsl. 2. mgr. 8. gr. laganna kemur: fimm.Breyting á lögum nr. 60/1994, um vátryggingastarfsemi.
165. gr.
Í stað orðsins „sex“ í 1. málsl. 3. mgr. 50. gr. laganna kemur: fimm.Breyting á lögum nr. 113/1996, um viðskiptabanka og sparisjóði.
166. gr.
1. málsl. 1. mgr. 29. gr. laganna orðast svo: Bankastjórn ríkisviðskiptabanka skal skipuð þremur bankastjórum sem skulu eigi skipaðir til lengri tíma en fimm ára í senn.XV. KAFLI
GILDISTAKA
167. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.