Ferill 530. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 530 . mál.


1287. Breytingartillaga



við frv. til l. um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



    Við bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Stjórnir lífeyrissjóða skulu undirbúa reglur um hvernig staðið verði að því að skipta lífeyrisréttindum sem áunnist hafa í hjónabandi eða sambúð milli aðila við hjónaskilnað eða sambúðarslit. Slíkar reglur skulu teknar upp í samþykktir lífeyrissjóða fyrir 1. janúar 1998.