Ferill 620. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 620 . mál.


1314. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 118/1993, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



1. gr.


    4. gr. laganna verður svohljóðandi:
    Tryggingastofnun er heimilt að inna af hendi umönnunargreiðslur til framfærenda fatlaðra og langveikra barna, sem dveljast í heimahúsi eða á sjúkrahúsi, allt að 53.840 kr. á mánuði og/eða taka aukinn þátt í greiðslu sjúkrakostnaðar ef andleg eða líkamleg hömlun barns hefur í för með sér tilfinnanleg útgjöld og sérstaka umönnun eða gæslu. Heimilt er að inna af hendi umönnunargreiðslur til framfærenda barna með alvarleg þroskafrávik, sem jafna má við fötlun, og barna með alvarleg hegðunarvandamál, sem jafna má við geðræna sjúkdóma. Tryggingaráði er heimilt að hækka umönnunargreiðslur um allt að 25% mæli sérstakar ástæður með því.
    Almenn leikskóla- og skólaþjónusta skerðir ekki umönnunargreiðslur. Önnur dagleg, sértæk þjónusta og vistun utan heimilis, þar með talin umtalsverð skammtímavistun, skerðir umönnunargreiðslur. Tryggingalæknar meta þörf samkvæmt ákvæði þessu.
    Um framkvæmd ákvæðis þessa fer eftir reglugerð sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra setur að fengnum tillögum tryggingaráðs.

2. gr.


    Lög þessi öðlast gildi 1. september 1997.

Greinargerð.


    Lagt er til að fellt verði út úr lagagrein um umönnunargreiðslur að „þjónusta utan heimilis“ skerði bætur. Þetta þýðir að þegar börn fara í leikskóla eða skóla lækka greiðslur til foreldra. Skerðingarákvæðið var sett þegar ekki var talið sjálfsagt að fötluð börn fengju leikskólaþjónustu sem nú verður að telja algilt og því ákvæðið í raun úrelt. Skerðingarákvæðið er einnig ranglátt. Það veldur því að mörg fötluð börn eru metin til lægri greiðslna en t.d. börn með þroskafrávik. Á umsóknum foreldra fatlaðra barna er þjónusta jafnan tilgreind samviskusamlega enda fara svæðisskrifstofur yfir umsóknirnar og eru í raun eftirlitsaðili með umsóknum vegna fatlaðra barna. Ekkert slíkt eftirlit fer fram með umsóknum frá foreldrum barna með þroskafrávik og getur verið undir hælinn lagt hvort réttilega sé tilgreint um þjónustu utan heimilis. Þá hefur umboðsmaður Alþingis gert athugasemdir við túlkun Tryggingastofnunar ríkisins á „þjónustu utan heimilis“ vegna skólagöngu sykursjúks drengs innan hins almenna skólakerfis.
    Samkvæmt ákvæðinu verður unnt að setja reglur um aukinn þátt í greiðslu læknis- og lyfjakostnaðar fatlaðra og langveikra barna. Einungis hluti þessara barna hefur í dag kort til lækkunar á lækniskostnaði.
    Þá er miðað við að dregið verði úr greiðslum til foreldra barna sem glíma við minni háttar sjúkdóma, þroska- og hegðunarfrávik, samanber þó ákvæði um heimild til aukinnar þátttöku í læknis- og lyfjakostnaði. Hinn hlutinn, þ.e. þau börn sem eiga við mikil vandamál að stríða, fái umtalsvert hærri greiðslur en nú. Gert er ráð fyrir að kostnaður við kerfið verði svipaður og nú er. Fylgiskjal.


Umönnunargreiðslur, áætlaður kostnaður.


    Miðað er við flokkun og greiðslur í drögum að nýrri reglugerð um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og sjúkra barna. Jafnframt er miðað við heildarfjölda barna sem fengu greiddar bætur í nóvember 1996, en þau voru 1.953.

Stig


I.

II.

III.

IV.


Yfirseta

Umtalsverð

Umtalsverð

Vistuð


foreldris

umönnun og

umönnun. Börn

börn.


heima/á sj.húsi.

aðstoð við ferli.

að nokkru sjálfbj.


Skammtímavistun

Skammtímavistun

Skammtímavistun

Samtals.


. 8 sólarhr./mán.

. 15 sólarhr./mán.

≥16 sólarhr./mán.

Fj. barna

Þús. kr.



1. FL.
    Kr. á mán.      53.840 26.920 13.460 0
    Hlutfall      100 50 25 0
    Börn l. fl.      67 0 0 0 67
    1. fl. þús. kr.      43.287 0 0 0 43.287

2. FL.
    Kr. á mán.      45.764 22.882 13.460 0
    Hlutfall      85 43 25 0
    Börn 2. fl.      78 39 39 0 156
    2. fl. þús. kr.      42.835 10.709 6.299 0 59.843

3. FL.
    Kr. á mán.      37.688 18.844 13.460 0
    Hlutfall      70 35 25 0
    Börn 3. fl.      109 190 179 0 478
    3. fl. þús. kr.      49.296 42.964 28.912 0 121.172

4. FL.
    Kr. á mán.      0 0 13.460 0
    Hlutfall      0 0 25 0
    Börn 4. fl.      0 0 357 0 357
    4. fl. þús. kr.      0 0 57.663 0 57.663

5. FL.
    Kr. á mán.      0 0 0 0
    Hlutfall      0 0 0 0
    Börn 5. fl.      0 0 895 0 895
    5. fl. þús. kr.      0 0 0 0

          Samtals 1.953 281.965

    Útgjöld vegna umönnunarbóta á árinu 1996 voru um 375 m.kr. Ef teknar eru með greiðslur vegna barnaörorku, bótaflokks sem er að hverfa, eru útgjöldin um 380 m.kr. Framangreindir útreikningar gefa til kynna að kostnaður við kerfið verði um 282 m.kr. Til viðbótar verður að gera ráð fyrir kostnaði vegna svokallaðra afturvirkra greiðslna sem námu um 97 m.kr. á síðasta ári.