Ferill 578. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 578 . mál.


1334. Svar



heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra við fyrirspurn Sturlu Böðvarssonar og Árna M. Mathiesen um starfsemi hjúkrunarheimila og öldrunarstofnana árin 1995–97.

    Hversu mörg rúm eru á hjúkrunarheimilum og dvalarheimilum sem starfrækt eru og njóta framlaga úr ríkissjóði, skipt eftir árum og stofnunum innan kjördæma?
    Áætlaður fjöldi vistrýma fyrir aldraða á árinu 1997 á landinu öllu eru 1.108 dvalarrými og 1.993 hjúkrunarrými, þar með talin hjúkrunarrými á sjúkrahúsum. Að auki eru 349 dagvistir. Skipting á rýmum eftir kjördæmum árið 1997 er:


Dagvist

Dvalarrými

Hjúkrunarrými
Hjúkrunarrými á sjúkrahúsum
Reykjavík 173     340      727      138          
Reykjanes 54     139      363      11          
Vesturland 23     121      63      39          
Vestfirðir 16     13      23      46          
Norðurland vestra 0     29      0      132          
Norðurland eystra 56     215      116      82          
Austurland 14     52      58      54          
Suðurland 13     199      96      45          

    Nánari sundurliðun á stofnanir eftir árum og kjördæmum má sjá í fylgiskjali I.
    Athuga ber að hjúkrunarrými á sjúkrahúsum eru reiknuð út frá legudagafjölda sjúklinga sem lágu 90 daga og lengur árið 1995, miðað við 100% nýtingu, og fjöldinn er þar af leiðandi jafn nýtingunni.

    Hversu mörg rúm voru ekki nýtt að meðaltali hvert ár á umræddum stofnunum?
    Í örfáum tilvikum fer nýting niður fyrir 98%–100%, sem að mati ráðuneytisins telst full nýting. Af daggjaldastofnunum ber helst að nefna: Dvalarheimili aldraðra Stykkishólmi með 80% nýtingu 1996 og Dvalar- og hjúkrunarheimilið Barmahlíð, Reykhólum, með 67% nýtingu sama ár. Ráðuneytið hefur gert reynslusveitarfélagssamning annars vegar við Akureyri og hins vegar við Höfn í Hornafirði. Í samningnum við Akureyri er greitt fyrir 120 dvalarrými en nýtingin er 113 rými. Á Höfn er greitt fyrir 34 hjúkrunarrými 1996 og 33 hjúkrunarrými 1997, en nýtingin á árinu 1996 var um 26 rými. Á hjúkrunarheimilum á föstum fjárlögum er Sjúkraskýlið á Þingeyri með fjögur rými sem ekki eru nýtt eða 43% nýtingu og Sjúkraskýlið á Hólmavík og Sundabúð á Vopnafirði með nálægt 80% nýtingu. Öldrunarstofnun Önfirðinga hefur haft eitt rými laust en er fullnýtt í dag.
    Á höfuðborgarsvæðinu hefur rúmum verið lokað tímabundið á stofnunum á föstum fjárlögum í sparnaðarskyni. Hér ber að nefna Sunnuhlíð sem var með 3,2 rými laus á árinu 1995 en árið 1996 voru laus rými 7,5 eða 86% nýting. Áætluð nýting 1997 eru 45–46 rými eða um 87% nýting.

    Hver er kostnaður á hvern legudag að teknu tilliti til nýtingar fyrir hverja stofnun?
    Fyrir dagvist 1997 greiðir Tryggingastofnun ríkisins 1.674 kr. á dag og er eitt gjald fyrir landið allt. Einstaklingurinn greiðir 500 kr. til viðbótar.
    Daggjald á dvalarrýmum er 2.986 kr.
    Fyrir flest hjúkrunarrými á daggjöldum greiðast 6.521 kr. á dag. Kostnaðurinn er nokkru lægri á stofnunum sem hafa léttari sjúklinga og hjá stofnunum sem eru í nálægð við sjúkrahús með langlegudeildum sem hafa tök á að vista þyngstu hjúkrunarsjúklingana. Sundurliðun á kostnaði eftir stofnunum og kjördæmum má sjá í töflu í fylgiskjali II. Í töflunni koma fram daggjöld en ef stofnunin fer fram úr daggjöldum hefur ríkið ekki greitt hallann.
    Kostnaður af hjúkrunarrýmum á sjúkrahúsum er hluti af heildarkostnaði hverrar stofnunar og liggur skipting á kostnaði ekki fyrir. Á nokkrum þeirra hafa forsvarsmenn stofnana leitast við að skipta kostnaðnum og er stuðst við áætlaðan kostnað 1997 í óútkomnum verkefnavísum 1998.

    Hver er talin þörfin fyrir hjúkrunarrúm og dvalarheimili í hverju kjördæmi fyrir sig miðað við íbúafjölda í lok ársins 1996?
    Fyrri tölurnar eru samkvæmt vistunarmati aldraðra en seinni eru reiknaðar út frá íbúafjölda.

Vistunarmat aldraðra Miðað við íbúafjölda
Dvalarheimili  Hjúkrun Dvalarheimili   Hjúkrun
Reykjavík 222      187     435      1.014    
Reykjanes 80      10     145      376    
Vesturland 18      4     126      118    
Vestfirðir 2      1     14      69    
Norðurland vestra 7      19     38      100    
Norðurland eystra 52      17    245      226    
Austurland 10      3     48      100    
Suðurland 29      3     237      174    
Samtals 420      244     1.288      2.177    

    Þess ber að geta, að íbúðir aldraðra, bæði eignar- og leiguíbúðir, eru í auknum mæli að taka við dvalarheimilisþjónustunni, m.a. vegna bættrar heimaþjónustu.


    Hvar eru í byggingu hjúkrunarheimili, langlegudeildir og dvalarheimili? Hversu mörg rúm verða þar?

Reykjavík:
Skógarbær, í smíðum 68 hjúkrunarrými 11  önnur rými fyrir
     yngri en 67 ára
Fell, í smíðum 12
Reykjanes:
D-álma? 30
Garðvangur? 10
Norðurland vestra:
Blönduós, endurbætur 12
Austurland:
Fáskrúðsfjörður? 12
Suðurland:
Ljósheimar, endurbætur 26 (til að rýma gömlu Ljósheima)
Ás, Hveragerði 13 13  önnur rými fyrir
     geðsjúka
Samtals Ný rými 93 Önnur rými 24
Endurbætur 38
Vantar endanlegar niðurstöður  52

    Þess ber að geta að fjöldi annarra stofnana hefur óskað eftir að fá að breyta dvalarrýmum í hjúkrunarrými og fjölga dagvistar-, dvalar- og hjúkrunarrýmum. Ef verða ætti við þessum óskum öllum er þörf á um 200 m.kr. auknu fé til reksturs dvalar- og hjúkrunarheimila. Samtals er óskað eftir að breyta 119 rýmum og til viðbótar óskað eftir 33 nýjum rýmum.



Fylgiskjal I.


Yfirlit yfir vistrými stofnana eftir árum og kjördæmum.



(4 síður myndaðar.)






Fylgiskjal II.


Kostnaður á legudag eftir stofnunum.



(2 síður myndaðar.)