Ferill 349. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 349 . mál.
1335. Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur um ferliverk á öðrum sjúkrahúsum en Ríkisspítölum og Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Ferliverk er notað hér um þá sérfræðiþjónustu sem Tryggingastofnun ríkisins tekur þátt í að greiða á stofnunum.
Árið 1996 var kostnaður, komufjöldi sjúklinga og meðalverð fyrir sérfræðiþjónustu sem Tryggingastofnunin greiddi þannig þegar tekið hefur verið tillit til þess afsláttar sem læknar gefa samkvæmt samningum og þess sem sjúklingum var endurgreitt við útgáfu afsláttarkorta (ferliverkin eru unnin á stofnunum):
Heildarkostnaður í millj. kr.
| Á stofu | Á stofnun | Samtals | |
| Hlutur Tryggingastofnunar | 482 | 194 | 675 |
| Hlutur sjúklings | 351 | 131 | 482 |
| Samtals | 833 | 324 | 1.157 |
Áætlaður komufjöldi sjúklinga.
| Á stofu | Á stofnun | Samtals | |
| Komufjöldi | 243.000 | 65.000 | 313.000 |
Meðalgreiðsla við hverja komu sjúklings, í kr.
| Á stofu | Á stofnun | Samtals | |
| Hlutur Tryggingastofnunar | 1.942 | 2.978 | 2.157 |
| Hlutur sjúklings | 1.417 | 2.012 | 1.540 |
| Samtals | 3.358 | 4.990 | 3.697 |
Þannig er hlutur sjúklinga um 42% af heildargreiðslu á læknastofum en um 40% við ferliverk á stofnunum.
Fjöldi verkanna liggur ekki fyrir en kostnaður vegna verkanna eftir sjúkrahúsum samkvæmt núverandi taxta og áætlum um magn árið 1997 má sjá í töflu 1. Umfang þessarar starfsemi er áætlað svipað og undanfarin ár.
Heildarkostnaðurinn er áætlaður um 177 millj. kr. og má út frá því ætla að komufjöldi sjúklinga sé um 35.000 á þessum stofnunum.
Skipting verkann á þessum sjúkrahúsum liggur ekki fyrir en skipting ferliverka á öllum stofnunum eftir sérgreinum má sjá í töflu 2.
Svar óskast sundurliðað eftir árunum 1993–96.
Eftirfarandi upplýsingar fengust fyrir árið 1996:
Sjúklingur án afsláttarkorts greiðir 20.028 kr. fyrir dýra bæklunaraðgerð við komu. Tryggingastofnun endurgreiðir síðan 5.352 kr. þannig að endanlegur kostnaður sjúklings við þessa komu er 14.676 kr. Sjá nánari útreikning í töflu 3.
Sjúlklingur án afsláttarkorts greiðir um 16.000 kr. fyrir dýra augnaðgerð við komu. Tryggingastofnun endurgreiðir síðan 2.667 kr. þannig að endanlegur kostnaður sjúklings við þessa komu er 13.333 kr.
Sjúklingur án afsláttarkorts greiðir allt að 7.000 kr. fyrir meltingarfæraspeglun við komu. Tryggingastofnun endurgreiðir því aðeins af þessari upphæð að sjúklingur hafi þegar greitt fyrir aðra þjónustur þannig að hann sé kominn yfir 12.000 kr. greiðsluþak.
Læknar greiða oftast um 40% af taxtanum í aðstöðugjald ef um aðgerðir er að ræða en sé aðeins um viðtöl að ræða getur greiðslan farið niður undir 15%.
Aðstöðugjaldið tekur mið af þeirri þjónustu sem spítalinn veitir. Algengasta hlutfall greiðslna lækna til spítala er 40%.
Tafla 1.
Áætlaður kostnaður við ferliverk árið 1997.
(Tafla mynduð.)
Tafla 2.
Ferliverk eftir sérgreinum.
(Tafla mynduð.)
Tafla 3.
Hæstu greiðslur sjúklinga fyrir bæklunaraðgerð.
(Tafla mynduð.)