Ferill 445. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996–97. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 445 . mál.
1343. Frumvarp til laga
um heimild til samninga um álbræðslu á Grundartanga.
(Eftir 2. umr., 16. maí.)
1. gr.
Heimild.
Iðnaðarráðherra er veitt heimild til að gera samninga fyrir hönd ríkisstjórnarinnar innan ramma þessara laga við hlutafélag og stofnanda þess (stofnandinn), en félagið verður stofnað samkvæmt íslenskum hlutafélagalögum og þessum lögum í þeim tilgangi að reisa og reka álbræðslu og tengd mannvirki á Íslandi (verkefnið).
Samningurinn skal kveða á um þær skuldbindingar af hálfu ríkisins, stofnandans og félagsins sem kunna að þykja nauðsynlegar og viðeigandi fyrir félagið og starfsemi þess, þar með talin framkvæmd á ákvæðum laga þessara. Í slíkum samningi skal ákveðið hversu lengi ákvæði hans skuli gilda og skulu þau eigi gilda skemur en í 20 ár frá stofnun félagsins.
Samningur sá, sem iðnaðarráðherra undirritar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, samkvæmt lögum þessum, um meginatriði varðandi verkefnið, skal birtur í B-deild Stjórnartíðinda.
Félagið skal rekið í samræmi við íslensk lög og reglugerðir eins og nánar er kveðið á um í lögum þessum.
2. gr.
Verkefnið.
Verkefnið, sem þessi lög heimila, felur í sér að félagið byggir verksmiðju á Grundartanga í Hvalfjarðarstrandarhreppi og Skilmannahreppi til framleiðslu á áli og aðstöðu sem tengist slíkri framleiðslu og skyldri starfsemi, þar með talin stækkun hafnarmannvirkja eins og nánar verður um samið í samningi sem gerður verður innan ramma þessara laga milli iðnaðarráðherra og félagsins og hafnarsamningi milli félagsins og hafnarsjóðs Grundartangahafnar. Álverið skal í upphafi hannað til framleiðslu á um það bil 60.000 tonnum af áli á ári með möguleikum á aukinni framleiðslugetu.
3. gr.
Verksmiðjulóðin.
Ríkisstjórninni er heimilt að láta flytja núverandi veg af fyrirhugaðri verksmiðjulóð, sbr. 2. gr., í samræmi við skipulag á svæðinu.
4. gr.
Ábyrgðir ríkisstjórnarinnar.
Í tengslum við framkvæmd verkefnisins skv. 2. gr. er ríkisstjórninni heimilt að tryggja efndir af hálfu hreppsnefnda Skilmanna- og Hvalfjarðarstrandarhreppa eins og þær eru ákveðnar í samningi, auk efnda hafnarsjóðs Grundartangahafnar eins og kveðið er á um í hafnarsamningi.
5. gr.
Undanþágur frá lögum.
Stofnandi (stofnendur) félagsins skv. 1. gr. skal teljast hæfur til að vera stofnandi slíks félags, án tillits til ákvæða 3. mgr. 3. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Fjöldi og búseta stofnenda og fjöldi hluthafa í félaginu skal vera óháður ákvæðum 2. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 20. gr. nefndra laga. Félagið skal undanþegið ákvæðum 2. mgr. 66. gr. hlutafélagalaga, nr. 2/1995, um að meiri hluti stjórnarmanna skuli vera búsettur hér á landi.
Félagið skal undanþegið ákvæðum 4. tölul. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 19/1966, um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, sem setur að skilyrði að 4 / 5 hlutafjár hlutafélags sé eign íslenskra ríkisborgara og að meiri hluti atkvæða á hluthafafundum sé í höndum íslenskra ríkisborgara og að allir stjórnendur séu íslenskir ríkisborgarar.
Félagið skal undanþegið ákvæðum laga nr. 48/1994, um brunatryggingar, eða ákvæðum síðari laga um sameiginlega skyldutryggingu húseigna, enda verði með öðrum hætti tryggilega séð fyrir brunatryggingum. Ákvæði laga nr. 55/1992, um Viðlagatryggingu Íslands, skulu ekki eiga við um félagið. Félagið skal viðhalda fullnægjandi viðlagatryggingu.
Hvalfjarðarstrandarhreppi og Skilmannahreppi er heimilt, þrátt fyrir ákvæði byggingarlaga, að stofna sjálfstæða, sameiginlega byggingarnefnd til þess að fjalla um öll byggingarmál álvers á Grundartanga, svo og allt byggingareftirlit meðan á framkvæmdum stendur. Byggingarnefndinni er heimilt að ráða sérstakan byggingarfulltrúa meðan á framkvæmdum stendur en að öðru leyti skal fara að ákvæðum byggingarlaga.
6. gr.
Skattlagning.
Félagið skal greiða skatta og önnur opinber gjöld, sem almennt eru á lögð hér á landi, eftir þeim reglum sem um þau gilda samkvæmt lögum á hverjum tíma, nema að því leyti sem á annan veg er mælt í lögum þessum:
Fé í hinum sérstaka fjárfestingarsjóði, sem ekki hefur verið notað til fjárfestinga eða til að vega upp á móti rekstrartapi innan framangreindra tímamarka, skal telja til skattskyldra tekna og það skattlagt með skatthlutfalli þess árs þegar það var lagt inn. Það sama skal eiga við ef félagið er leyst upp.
Almenn ákvæði íslenskra laga um tekjuskatt, virðisaukaskatt og gjöld sem sveitarfélög leggja á og í gildi eru á hverjum tíma og varða skattframtal, framtalsfrest, álagningu, endurskoðun, endurálagningu, innheimtu, gjalddaga og greiðslu, sem og aðrar uppgjörsreglur varðandi tekjuskatt, virðisaukaskatt og gjöld sem sveitarfélög leggja á, auk andmæla og ágreinings í tengslum við þau, skulu gilda um félagið.
Á fyrsta samningstímabilinu getur félagið valið að almenn ákvæði íslenskra skattalaga, eins og þau eru á hverjum tíma, gildi um það. Beiðni um slíka breytingu skal gerð með skriflegri tilkynningu sem lögð skal fram eigi síðar en 1. júní árið áður en breytingarnar eiga að taka gildi. Slík breyting á fyrirkomulagi skatta getur fyrst átt sér stað árið 2000 en á hverju ári þar eftir.
7. gr.
Reikningsskilareglur.
Með samningum, sem gerðir eru samkvæmt lögum þessum, má ákveða sérstakar reikningsskilareglur fyrir félagið sem grundvallaðar eru á íslenskum lögum með þeim skýringum og breytingum sem taldar eru viðeigandi varðandi félagið. Í þessum reikningsskilareglum er heimilt að hafa ákvæði þar sem félaginu er heimilað að skrá allar færslur og gefa út fjárhagsyfirlit í Bandaríkjadölum, í samræmi við almennt viðurkenndar reikningsskilareglur sem gefnar eru út af alþjóðlega reikningsskilaráðinu. Slíkt ákvæði má fela í sér undanþágu frá 10., 36. og 53. gr. laga nr. 75/1981, með áorðnum breytingum, og öðrum ákvæðum laga sem ekki eru í samræmi við slíkt fyrirkomulag.
8. gr.
Lögsaga og lausn deilumála.
Uppbygging, túlkun og framkvæmd samninga, sem gerðir verða innan ramma þessara laga, skulu lúta lögsögu íslenskra laga. Heimilt skal að vísa ágreiningi til gerðardóms ef aðilar eru því samþykkir.
9. gr.
Innflutningur og útflutningur.
Innflutningur og kaup félagsins eða einhvers fyrir þess hönd hérlendis, á byggingarefnum, vélum og tækjum og öðrum fjárfestingarvörum og varahlutum fyrir verksmiðjuna og tengd mannvirki, svo og til reksturs þeirra, skal vera undanþeginn tollum og vörugjöldum samkvæmt lögum nr. 97/1987, með áorðnum breytingum. Með samningum, sem gerðir eru innan ramma laga þessara, er heimilt að fella niður eða endurgreiða tolla og vörugjöld á vöru og þjónustu sem keypt er innan lands vegna byggingar bræðslunnar.
10. gr.
Framsal.
Heimilt er að semja um framsal félagsins á samningnum.
11. gr.
Gildistaka.
Lög þessi öðlast þegar gildi.