[prenta uppsett í dálka] 53. fundur
Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):
Herra forseti. Eins og ég lýsti í upphafi máls míns þá er vandi minn sá að fyrir liggja skrifaðar fyrirspurnir sem ég svaraði en hv. þm. var með allt aðrar spurningar í töluðu máli sínu sem var inngangur að fyrirspurnunum. Þess vegna spurði ég hæstv. forseta hvernig ætti að bregðast við í tilvikum sem þessum. Ég svaraði síðan spurningu hans um húsakost fyrir Frið 2000 og háskóla þeirrar stofnunar.
Ég tel að æsingur hv. þm. eigi ekki við í þessu tilviki. Ég tel það rangt metið hjá hv. þm. að halda að minning Snorra Sturlusonar ráðist af því hvernig rekstri heimavistarhúsnæðis verði háttað í Reykholti og hvort þar verði aðstaða til veitingasölu. Að sjálfsögðu ræðst virðing Snorra Sturlusonar ekki af því hvernig þessum húsakosti er sinnt en honum þarf að sinna eins og öðru þarna á staðnum. Menn mega ekki gleyma því að starfandi er sérstök stofnun, Snorrastofa, í Reykholti með aðild menntmrn. Ráðuneytið hefur tekið þátt í þeirri uppbyggingu og þar er minningu Snorra Sturlusonar sinnt. Þar á að sinna vísindum, listum og menningarstarfi í nafni Snorra Sturlusonar. Hér er um að ræða tryggingu þess að það sé aðstaða fyrir þá sem koma á staðinn til þess að gista og njóta matar. Flóknara er það ekki. Að hv. þm. skuli telja þetta atriði varðandi rekstur í Reykholti ráða örlögum um minningu Snorra Sturlusonar, það er auðvitað allt annað og þar bind ég mestar vonir við starf Snorrastofu. Allar ákvarðanir í þessu máli hafa verið teknar í fullu samráði við heimamenn sem bera hag staðarins mjög fyrir brjósti. Til þessa verks hefur ekki verið gengið með neinni óvirðingu við Snorra Sturluson. Þvert á móti tel ég að þarna séu skapaðar forsendur fyrir fjölbreyttu starfi í Reykholti þar sem minningu hans verður haldið á lofti og öðru sem tengist þessum merka sögustað.