[prenta uppsett í dálka] 58. fundur
Fyrirspyrjandi (Ágúst Einarsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir svör hans. Þau voru skýr og upplýstu þetta mál og afskipti ráðuneytisins af því.
Ég vona að málið fái farsælar lyktir og að sátt takist um staðsetningu þessa minnisvarða og tek undir óskir annarra þingmanna sem hafa látið orð falla í þá átt. Ég held að það sé mjög mikilvægt að þessi góða og virðingarverða hugmynd nái fram að ganga og að menn setji niður allar deilur um staðsetningu minnisvarðans. Ég hvet menn til að gera það en tel það ekki vera á mínu valdi og reyndar ekki annarra hér að gefa miklar ráðleggingar um hvernig eigi að leysa þetta, en hvet menn fyrir vestan til að finna sameiginlega lausn á þessu máli og vænti þess að menn séu eftir svör ráðherra betur upplýstir um málið.