Þjóðlendur

Fimmtudaginn 05. febrúar 1998, kl. 10:55:34 (3428)

1998-02-05 10:55:34# 122. lþ. 60.2 fundur 367. mál: #A þjóðlendur# frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur

[10:55]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég viðurkenni nú ekki að það hafi verið hrapað neitt að máli. Hitt fyrirkomulagið gat líka gengið. En eins og menn vita þá er ég alltaf sveigjanlegur í samningum og ég tel rétt að koma til móts við þá gagnrýni sem fram kom og tengja þetta enn fastar saman þannig að ekki orki neitt tvímælis um að frumvörpin stemmi saman.